Skinfaxi - 01.01.2019, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI
Soffía Ámundadóttir er önnur konan til að
setjast í stól formanns íþróttanefndar ríkisins. Hún
segir mikilvægt að setja kraft í umræðuna um kynja-
jafnrétti í íþróttum og vill auka fjárframlög til íþrótta.
„Við ætlum að einbeita okkur að nokkrum atriðum: Að jafna
hlut kvenna í íþróttum. Við munum svo áfram setja börn af
erlendum uppruna í forgang ásamt öðrum jaðarhópum, fötluð-
um, fólki sem afplánar dóma og fleiri sem eru ekki í kastljósinu,“
segir Soffía Ámundadóttir. Í upphafi árs tók hún við sæti for-
manns íþróttanefndar ríkisins af Stefáni Konráðssyni sem hafði
verið formaður frá árinu 2014. Það er menntamálaráðherra
hverju sinni sem skipar formann nefndarinnar til fjögurra ára í
senn án tilnefningar. Soffía er yngst í nefndinni og önnur konan
til að setjast í formannsstólinn á eftir knattspyrnukonunni Ásthildi
Helgadóttur sem var settur formaður íþróttanefndar árið 2008.
Soffía segir að þótt hlutverk nefndarinnar sé einkum að gera
tillögur um fjárframlög til íþróttamála og úthlutun úr Íþróttasjóði
séu fjölmörg önnur stór mál á borði hennar. Þar á meðal eru mál-
efni þjóðarleikvangs og félagasamtaka og mótun nýrrar og upp-
færðrar íþróttastefnu sem ná á yfir árin 2019–2030. Það er
talsvert lengra tímabil en fyrri stefnur hafa náð yfir. Til saman-
burðar var fyrri stefna í gildi árin 2011–2015. Hún á þó enn
eftir að sjá nýja íþróttastefnu.
Soffía segir tímalengdina gera það að verkum að nefndin
þurfi að láta til sín taka. „Það er margt áhugavert í gangi,“
heldur Soffía áfram. „Nefndin á að endurspegla samfélagið.
Það er ágæt kynjaskipting í íþróttanefndinni. En eftir samtal
mitt við menntamálaráðherra um málið teljum við mikilvægt að
kraftur verði settur í umræðuna um almennt kynjajafnrétti í íþrótt-
um. Ég þekki þá hlið mála mjög vel eftir starf mitt sem þjálfari,
það er að segja sem kona í karlaheimi. En ég þekki það líka
sem foreldri barna í íþróttum,“ segir hún.
Áherslan á kynjajafnrétti
og jaðarhópa í íþróttum