Skinfaxi - 01.01.2019, Side 21
SKINFAXI 21
Versta leiðin til að takast á við erfið mál
innan íþrótta- og ungmennafélaga er að
reyna að þagga þau niður og vinna á
þeim innan félags.
„Vænlegasta leiðin til að takast á við krísur, sem upp kunna
að koma innan íþróttafélaga, er að leita aðstoðar hjá utanað-
komandi fagaðilum. Þá er líka mjög hentugt að hafa tiltæka
handbók um hvernig slíku ferli verði best hagað,“ segir Jón
Birgir Valsson. Hann er nemandi í miðlun og almannatengslum
við Háskólann á Bifröst og vinnur um þessar mundir að ritun
B.A.-ritgerðar sinnar um krísustjórnun innan íþróttafélaga, það
er hvernig þau séu í stakk búin þegar erfið mál koma upp.
Margir þekkja leiðirnar
Jón Birgir hefur í tengslum við nám sitt rætt við stjórnendur nokk-
urra íþrótta- og ungmennafélaga, framkvæmdastjóra félaga og í
sumum tilvikum íþróttastjóra viðkomandi félags á og við höfuð-
borgarsvæðið. Í viðtölunum hefur komið í ljós að krísustjórnun
er æði misjöfn. Sumir hafa tilbúnar handbækur sem hægt er að
grípa til, komi upp tilvik sem krefjast aðgerða. Í þeim er að finna
ferla yfir skrefin sem þarf að taka og upplýsingar um einstakl-
inga og stofnanir sem kann að þurfa að hafa samband við og
vinna með; yfirvöld, presta, lögfræðinga, lögreglu og fleiri fag-
aðila.
En hvað er krísa?
Krísur eru af ýmsum toga og geta birst þegar minnst varir. En
hverjar eru þær?
Mörg dæmi má nefna um krísur. Kynferðisbrot eru þeirra
alvarlegust. Önnur tilvik geta verið slys eða andlát félagsmanna
en líka geta orðið krísur þegar íþróttafólk verður uppvíst að ein-
hverju misjöfnu, segjum að stórstjarna, sem spilar með ung-
mennafélagi, verði uppvís að notkun ólöglegra lyfja.
„Það koma upp krísur í öllum félögum á einum tíma eða öðr-
um,“ segir Jón Birgir. „Forystumenn allra félaga geta þurft að
takast á við dramatísk mál af ýmsum toga. Þar á meðal má
nefna uppsögn þjálfara sem sumir segja vera krísu en er í raun
drama en ekki krísa. Þegar upp er staðið má segja að ef atvikið,
sem um ræðir, skaðar ekki orðspor félagsins, ungmennafélags-
ins, héraðssambandsins eða sérsambandsins er ekki um krísu
heldur drama að ræða.“
Ekki reyna að þagga niður málið
Jón Birgir leggur áherslu á mikilvægi þess að vinna úr krísu,
sama hve fólk telji að hún sé lítil eða mikil eða leita ráðgjafar
til að bregðast við henni. Sumir nýti sér handbækur sem til eru.
Þeir forsvarsmenn aðildarfélaga, sem hafi leitað til UMFÍ, beri
þeirri leið vel söguna.
Jón Birgir, sem hefur starfað innan íþróttahreyfingarinnar, m.a.
sem stjórnarmaður, hefur sjálfur bitra reynslu af erfiðu máli og
viðurkennir að í því tilviki hafi hann brugðist. „Mesta hættan í
krísu og það er sú gildra sem ég féll sjálfur í, er að vinna sjálfur
í málinu og beita þöggunartilburðum. Sumir bregðast þannig
við en það er kolröng leið,“ segir hann og líkir slíku við að
læknir reyni að lækna sjálfan sig af meiri háttar veikindum.
„Það er bara þannig að þú læknar ekki sjálfan þig með
aðgerð á sjálfum þér. Þú þarft alltaf að leita til annarra og út
fyrir félagið. Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir því. Mið-
að við þau félög sem ég hef haft samband við og eru sam-
bandsaðilar UMFÍ eru þau mjög vel áttuð og vita til hvaða ráða
er gott að grípa,“ segir Jón Birgir Valsson.
Hvað er krísa?
Krísa er atvik sem getur haft
neikvæð á hrif á orðspor og
ímynd þess sem í henni
lendir. Markmiðið með krísu-
stjórnun er að hindra að
atvikið leiði til krísuástands
og að draga úr neikvæðum
áhrifum þess. Þar geta fyrstu
klukkustundirnar skipt sköp-
um. Ekkert fyrirtæki eða
félag sleppur við krísu í ein-
hverri mynd. Það er ekki um
það að ræða hvort óvæntur
atburður muni ríða yfir held-
ur hvenær, af hvaða tagi
og með hvaða hætti. Mark-
miðið með krísustjórnun er
að standa vörð um orðspor
félagsins og að koma sjón-
armiðum þess sem krísa
varðar á framfæri.
Félög í vanda
leita til UMFÍ