Skinfaxi - 01.01.2019, Qupperneq 22
22 SKINFAXI
„Það hlýtur [...] að teljast áhyggjuefni að tæplega tveir fimmtu
íslenskra leikmanna í handbolta, sem taka þátt í getraunum í
eigin íþrótt, hafi á annað borð veðjað á leiki í eigin deild,“
skrifar Guðmundur Sigurðsson í lokaverkefni til B.S.-prófs í sál-
fræði við Háskóla Íslands. Í verkefninu kannaði hann þátttöku í
peningaspilum og algengi spilavanda á meðal handboltafólks
á Íslandi.
Í rannsókninni skoðaði Guðmundur hvort handboltaleikmenn
á Íslandi veðjuðu á úrslit eigin leikja eða leikja í eigin deild.
Hann bauð öllum leikmönnum í meistaraflokki félagsliða í öllum
deildum Íslandsmótsins 2017–2018, bæði kvenna og karla,
að taka þátt í rannsókninni. Alls svöruðu 309 þátttakendur og
voru flestir þeirra á aldrinum 18–20 ára.
Alls höfðu 46,8% leikmanna tekið þátt í peningaspili að
minnsta kosti einu sinni á síðustu 12 mánuðum. Þátttaka í pen-
ingaspilum var töluvert meiri meðal karlmanna en 71,1%
þeirra spiluðu peningaspil síðastliðna 12 mánuði og 14% spil-
uðu vikulega eða oftar. Á hinn bóginn höfðu aðeins 15,6%
handboltakvenna spilað peningaspil á síðastliðnum 12 mánuð-
um og engin kona vikulega eða oftar.
Hefur áhyggjur
af veðmálum íþróttafólks
Vinsælasta tegund peningaspila var íþróttagetraunir. Guð-
mundur mat mögulegan spilavanda þátttakenda með mæli-
vísitölunni Problem Gambling Severity Index. Samkvæmt því
glíma 2% þátttakenda við spilavanda.
Nokkrir veðja á eigin leiki
Í ritgerð Guðmundar kemur fram að tæp 12% þátttakenda
þekktu til leikmanna sem veðjuðu á atburði leikja í eigin deild
en 4,9% leikmanna viðurkenndu að hafa veðjað á atburði
leikja í eigin deild. Jafnframt sögðust 2,5% þátttakenda vita
um leikmenn sem hefðu veðjað á atburði í eigin leik og tryggt
að sá atburður gerðist. Þegar leikmenn voru spurðir um eigin
veðmál sögðust aðeins þrír leikmenn hafa veðjað á atburði í
eigin leik og þar af hafði einn leikmaður tryggt að sá atburður
gerðist.
Af þeim sem höfðu veðjað á handbolta voru 26% sem veðj-
uðu á atburði í eigin deild. Að veðja á atburði í leikjum getur
verið auðvelt í framkvæmd (að veðja á hvaða lið skori fyrsta
markið, fái fyrsta gula spjaldið o.s.frv.). Guðmundur segir þetta
geta skapað verulega hættu á hagræðingu úrslita.
Fram kemur í nýlegri ritgerð að handboltamenn veðja á úrslit leikja í eigin deild. Nokkrir glíma
við spilavanda. Mun fleiri karlar veðja á leiki vikulega. Engin handboltakona gerir það.
VEÐMÁL