Skinfaxi - 01.01.2019, Page 25
SKINFAXI 25
Ás styrktarfélag
• Ás styrktarfélag vinnur að innleiðingu sjö markmiða sem
valin hafa verið til að vinna með í verkefninu „Vinna &
virkni“.
• Markmiðin eru 1, 4, 8, 10, 12, 14 og 15. Þau ná til
baráttunnar gegn fátækt og að fólk í viðkvæmri stöðu
skuli eiga jafnan rétt á við aðra. Markmið 12, 14 og
15 fjalla um endurvinnslu og
nýtingu til þess að draga úr
sóun og minnka úrgang.
Dæmi um innleiðingu félagasamtaka:
Landvernd
• Við upphafsfasa allra nýrra verkefna og uppfærslu eldri
verkefna er vísað í Heimsmarkmiðin.
• Við gerð styrkumsókna vísar félagið í markmið og
undirmarkmiðin.
• Við gerð námsefnis.
• Heimsmarkmiðin alltaf höfð að leiðarljósi.
Landvernd leggur helst áherslu á markmið 4, 11, 12, 13,
14 og 15, en sérstaklega 12-15, þar sem þau ríma vel við
markmið samtakanna eins og þau eru
skilgreind í lögum þeirra. Landvernd
ætlar að leggja meiri áherslu á mark-
mið 13 og 17 á næstu árum.
Skátarnir
• Starfsfólk horfði út fyrir landsteina og kynnti sér nálgun
annarra landssamtaka skáta á heimsmarkmiðunum.
Farið var í samstarf við dönsku skátana um innleiðing-
una á Íslandi.
• Áhersla á markmiði 17 um samvinnu um heimsmark-
miðin.
• Skátarnir eru með tvö heimsmarkmið í brennidepli;
markmið fjögur um menntun fyrir alla og heimsmarkmið
18 um styrkja og virkja ungt fólk. Átjánda heimsmark-
miðið er að vísu ekki eitt af markmiðum Sameinuðu
þjóðanna en DUF (Dansk Ungdoms Fællesråd) bætti því
við til gamans í því skyni að draga
athygli að hlutverki ungs fólks
við innleiðingu markmiðanna.
Svona passa Heimsmarkmiðin inn í starf UMFÍ
• UMFÍ styður markmið Heimsmarkmiðanna um heilsu og
vellíðan. UMFÍ leggur áherslu á að allir geti tekið þátt
í íþróttum og hreyfingu og verið hluti af öflugri liðsheild
í samfélaginu.
• UMFÍ lætur sig varða lýðheilsu og leggur sitt af mörkum
til að búa komandi kynslóðum sem best uppvaxtarskil-
yrði. UMFÍ styður markmiðið vegna þess að kyrrseta
hefur aukist mikið og æ fleiri þjást af sjúkdómum tengd-
um lífsstíl og hreyfingarleysi. Á það einnig við um and-
lega líðan.
• UMFÍ styður jafnframt markmið um Jafnrétti kynjanna.
Í öllu starfi UMFÍ og sambandsaðila er lögð rík áhersla
á jöfn tækifæri. UMFÍ telur mikilvægt að einstaklingar
séu ekki skilgreindir út frá kyni og komið sé fram á allan
hátt jafnt fram við konur sem karla.
• Í öllu starfi UMFÍ er ungt fólk í brennidepli og
markmið verkefna er að virkja, efla
og styðja ungt fólk til þroska og
áhrifa samfélaginu til góða.