Skinfaxi - 01.01.2019, Page 28
28 SKINFAXI
„Við höfum verið með heimasíðu í mörg ár. Við höfðum samt
lengi verið gagnrýnd fyrir síðuna því að hún var ekki góð og
fréttir voru settar inn á hana með mjög óreglulegum hætti, stund-
um ekki nema tvær í mánuði. Þegar ég fór að leita upplýsinga
um síðuna fann ég heldur ekki neitt um hana, ekki hver gerði
hana, hver hýsti hana og fleira í þeim dúr,“ segir Marteinn
Ægisson, framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins Þróttar í
Vogum á Vatnsleysuströnd.
Marteinn segir nokkrar
ástæður vera fyrir því að
stjórnendur félagsins hafi
viljað skipta um heimasíðu.
Í fyrsta lagi stækki sveitar-
félagið hratt. „Þegar fólk er
að velta því fyrir sér að flytja
í bæinn vill það átta sig á
hvaða íþróttir séu í boði.
Það fyrsta sem það sér er
heimasíða Þróttar. Hún er því
andlit félagsins út á við.
Gamla síðan var fyrir löngu
komin til ára sinna,“ segir
hann.
Vefsíða fyrir öll tæki
Ný vefsíða Þróttar var í vinnslu hjá fyrirtækinu Allra átta í sam-
starfi við ungmennafélagið Þrótt í um hálft ár og fór í loftið í
byrjun árs. Síðan er gerð í vefumsjónarkerfinu Wordpress og
sníður sig að öllum skjám, svo sem farsímum. Marteinn segir
hana enn í þróun og fagni bæði hann og stjórn félagsins öllum
ábendingum um það sem betur megi fara. Brugðist verður við
öllum ábendingum. Í haust er stefnt að því að opna á síðunni
aðgengi fyrir iðkendur og forráðamenn þeirra á skráningarsíðu
Nora. Það er tengt frístundakerfum sveitarfélaga.
Gátlisti fyrir framtíðina
Á sama tíma og síðan var í þróun vann Marteinn gátlista um
síðuna fyrir þá sem taka við félaginu í framtíðinni. „Á listanum
eru allar helstu upplýsingar um vefsíðu Þróttar, hver hýsir hana,
lykilorð, tengiliður við félagið og fleira,“ segir hann og bætir
við að samhliða þessu hafi verið ákveðið hverjir setji efni inn
á nýju heimasíðuna.
Á nýrri síðu ungmennafélagsins Þróttar má finna allar helstu
upplýsingar um félagið. „Bakhjarlar Þróttar fá líka meiri umfjöll-
un en áður og svo getum við fjallað betur um grasrótarstarfið
auk þess sem betri upplýsingar eru þar um alla starfsemina,
framboðið, þjálfara og fleira. Við viljum að heimasíðan verði
félaginu til sóma,“ segir hann.
Heimasíða ungmennafélagsins Þróttar https://throtturvogum.is/
Gallar:
• Síðan breytist ekki eftir því hvort hún er skoðuð í
tölvu, spjaldtölvu eða síma.
• Erfitt að leita að upplýsingum um starfsemi félagsins.
• Gamlar fréttir og gamlar myndir.
• Enginn veit hvar síðan er hýst.
• Enginn hjá félaginu veit hvert eigi að leita til að
breyta síðunni.
• Enginn eða fáir vita hverjir eigi að hafa umsjón
með síðunni.
Kostir:
• Gátlisti er til með helstu upplýsingum um lykilorð,
hýsingaraðila og fleira.
• Fréttir með nýjum myndum eru settar reglulega á
síðuna.
• Heimasíða félags er hjarta ungmennafélagsins.
Fréttir af henni eru settar á samfélagsmiðla og hlekkir
sendir iðkendum og öðrum móttakendum af síðunni.
• Heimasíðan sníður sig að öllum tækjum (tölvum,
símum og spjaldtölvum).
• Notendur geta fundið helstu upplýsingar um félagið
og starfsemi þess.
• Vitað er hverjir setja inn efni á síðuna og hafa
aðgang að henni.
Ungmennafélagið
Þróttur í Vogum
endurnýjaði heima-
síðu félagsins fyrir
skömmu.
Marteinn Ægisson,
framkvæmdastjóri
Þróttar, segir góða
síðu lyfta félaginu,
styðja betur við gras-
rótarstarfið og gera
styrktaraðilum hærra
undir höfði en áður.
„Heimasíðan er andlit félagsins“
Hvað einkennir slæma heimasíðu og
aðgengi að henni fyrir notendur og
stjórnendur og hvað er góð síða?
Hér eru nokkur atriði.