Mosfellingur - 11.05.2023, Page 2
Í þá gömlu góðu...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Héðan og þaðan
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti MosfelliNgur keMur út 8. júNí
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út mánaðarlega.
Almenningur hefur lengi kallað
eftir samræmingu á flokkunar-
kerfi við heimili og óskað eftir
lausnum fyrir sérsöfnun á lífrænum
úrgangi. Nú styttist í
það að íbúar á öllu
höfuðborgarsvæðinu
búi við eitt kerfi og
einar reglur þegar
kemur að sorp-
hirðu.
Samkvæmt
lögum sem taka
gildi árið 2023
þarf að hætt að
urða lífrænan
úrgang.
Með þessu nýja kerfi er almenn-
ingi þannig gert að lágmarka
úrgang sem þarf að grafa. Það
vonandi hjálpar okkur Mosfellingum
líka í þeirri eilífðarbaráttu að urðun
verði einhvern tímann alfarið hætt
hjá nágrönnum okkar í Álfsnesi.
Rúm vika er í að fyrstu tunnurnar
mæti til leiks í gula hverfið í
Mosó. Síðan koll af kolli samkvæmt
áætlun yfir sex vikna tímabil.
Í blaðinu í dag finnið þið helstu
upplýsingar um þetta allt saman
auk þess sem hægt er að fá svör við
nánast öllu á www.flokkum.is.
Fjórflokkun í Mosó
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
6 - Fréttir úr bæjarlífinu2
Nemendur við Brúarlandsskóla í Mos-
fellsveit 1961-1964 fermdust í Lágafells-
kirkju þann 5. maí árið 1963. Síðan eru
liðin 60 ár.
Prestur var sr. Bjarni Sigurðsson en
alls fermdust 25 krakkar þennan dag. 20
þeirra voru nemendur í Brúarlandsskóla
en 5 utanaðkomandi. Fermingarbörnin
höfðu flest haldið hópinn í sveitinni frá
7 ára aldri.
Fermingarmyndin er fengin hjá Sveini
Sveinssyni á Bjargi en er úr ljósmynda-
safni Reykjavíkur.
Sveinn minnist þess að hafa fengið
skrifborð, prímus, bakpoka og svefnpoka
í fermingargjöf sem þóttu stórgjafir á
þessum tíma. Prímusinn gaf nýlega upp
öndina.
Skólasystkinin, árgangur ‘49, héldu
endurfund síðsumars árið 1991 og komu
saman í gamla Brúarlandsskólanum. Þá
var farið í Hlégarð og efnt til sameigin-
legs borðhalds.
Myndin hér til hliðar er söguleg og
bendir Sveinn á að engum stekkur bros.
Aftast: Lilja Gísladóttir, Hlíðartúni, Hans Gíslason, Hlíðartúni, Garðar Haraldsson, Markholti, Þórður G. Sigurðsson, Lundi, Jón S. Guðmundsson,
Hamrafelli, Gísli Arason, Reykjaseli, Sveinn Sveinsson, Bjargi, Baldur Sigurðsson, Reykjadal, Kristján Einarsson, Reykjadal.
Í miðju: Sveinbjörg Steingrímsdóttir, Selási, Alda María Magnúsdóttir, Selási, Örlygur Jessen, Borg, Sigurður Frímannsson, Blómsturvöllum,
Þuríður María Hákonardóttir, Grund, Hilmir Bjarnason, Mosfelli, Hildur Jörundsdóttir, Litlalandi, Jónas Þór Arnaldsson, Blómvangi,
Rúna Jónsdóttir, Reykjahlíð, Kristrún Jónsdóttir, Reykjahlíð, Erna G. Sigurjónsdóttir, Lyngási.
Fremst: Jónína Líneik Magnúsdóttir, Árbæjarbletti, Arnþrúður, Guðmundsdóttir, Markholti 2, Jóhanna S. Magnúsdóttir, Mel,
sr. Bjarni Sigurðsson, Mosfelli, Ásthildur Jónsdóttir, Steinum, Guðrún Jóhannsdóttir, Dalsgarði.
fermdust saman
fyrir 60 árum