Mosfellingur - 11.05.2023, Page 37

Mosfellingur - 11.05.2023, Page 37
Matjurtagarðar Opnað hefur verið fyrir umsóknir um matjurtagarða í Mosfellsbæ Matjurtagarðar bæjarins verða staðsettir austan við Varmárskóla þar sem gömlu skólagarðarnir hafa verið. Aðkoma að görðunum verður að norðanverðu frá tjaldsvæðinu við eldri deild Varmárskóla. Aðgengi að vatni og kaffiskúr verður við garðana. Staðsetningu garða og fyrirkomulag má sjá á meðfylgjandi korti. Leiguverð fyrir matjurtagarða er óbreytt, eða 2.500 kr. fyrir 50 fm garð. Tekið er við umsóknum á netfangið tjonustustod@mos.is garðar verða tilbúnir til notkunar föstudaginn 19. maí nk. Einnig eiga íbúar í Mosfellsbæ möguleika á að fá leigða mat- jurtagarða á vegum Reykjavíkur- borgar í Skammadal. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar sér um útleiguna og geta áhugasamir sett sig í samband við Þóru Jónasdóttur umsjónarmann matjurtagarða í Reykjavík í síma 411 1111, eða í netfangið matjurtagardar@ reykjavik.is, og látið skrá sig á lista með ósk um garð. Taka þarf fram að viðkomandi sé íbúi í Mosfellsbæ. Umhverfissvið Mosfellsbæjar www.mosfellingur.is - 37

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.