Mosfellingur - 08.06.2023, Side 22
- Fréttir úr bæjarlífinu22
Bókasafn Mosfellsbæjar
Sumarlestur
með nýju sniði RITSMIÐJA
fyrir 10-12 ára
í Bókasafni Mosfellsbæjar
12.-14. júní kl. 9:30-12:00
Í smiðjunni læra þátttakendur að:
> búa til skemmtilegar sögupersónur
> skrifa spennandi sögur
> skrifa handrit að stuttmynd
Smiðjustjóri er Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur.
Eva Rún skrifar bækur, hljóðbækur og sjónvarpshandrit
fyrir krakka. Hún hefur m.a. skrifað bækurnar
um Stúf, hljóðbækurnar Sögur fyrir svefninn og
sjónvarpshandrit fyrir Stundina okkar.
Smiðjan er ókeypis og allt efni innifalið.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Skráningar sendist á bokasafn@mos.is
Líkt og fyrri ár mun
Bókasafn Mosfellsbæj-
ar bjóða upp á Sumar-
lestur. Markmið Sumar-
lestursins er að hvetja til
yndislestrar hjá börnum
yfir sumartímann.
Í ár mun safnið taka
þátt í sameiginlegu sum-
arlestursverkefni sem
verður í boði í nær öllum
almenningsbókasöfnum
á landinu. Fyrirkomulag-
ið verður því með aðeins
öðruvísi sniði en áður.
Nú munu þátttakendur
fá ævintýrakort til eignar
og safna á það límmiðum
fyrir lesnar bækur. Ævin-
týrakortið er myndskreytt
af Ara Yates og sýnir átta mismunandi eyjur
sem lesendur ferðast á milli, leysa þrautir
og kynnast þannig ævin-
týraheimum bókanna.
Hugmyndin með verk-
efninu er að búa til lestr-
arhvetjandi upplifun með
ríka áherslu á myndlæsi.
Að auki stendur þátttak-
endum til boða að fylla
út bókaumsögn eins og
verið hefur og skila inn
í safnið. Dregið verður
vikulega úr þeim í allt
sumar og hlýtur einn
heppinn þátttakandi
bókaverðlaun.
S u m a r l e s t u r i n n
mun hefjast um leið og
ævintýrakortin berast
safninu og hvetjum við
því alla til að fylgjast vel
með heimasíðu og Facebook-síðu safnsins,
www.bokmos.is og facebook.com/bok-
mos
Vilt þú
taka þátt?
Bæjarhátíð Mosfellsbæjar,
Í túninu heima, verður haldin
dagana 24.-27. ágúst.
Hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð þar
sem allir ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi í fjölbreyttri dagskrá.
Ef þið lumið á hugmyndum eða viljið vera
með viðburði, þá endilega sendið póst á
ituninuheima@mos.is
Íbúar, félagasamtök og fyrirtæki
í Mosfellsbæ eru hvött til að taka
virkan þátt í hátíðarhöldunum.
Mosfellsbær www.mos.is 525 6700