Mosfellingur - 06.07.2023, Side 6
Sérsniðin þjónusta til
byggingaraðila
A L L T . I S - A L L T @ A L L T . I S - 5 6 0 5 5 0 5
- Skálatún6
Mánudaginn 3. júlí var mikið um dýrðir
þegar sameiningu Skálatúns og Mosfells-
bæjar var fagnað í blíðskaparveðri á Skála-
túni.
Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri, bauð
starfsfólk og íbúa Skálatúns hjartanlega
velkomin til Mosfellsbæjar og færði af
þessu tilefni framkvæmdastjóra Skálatúns,
Þóreyju I. Guðmundsdóttur, blómvönd.
Bæjarstjóri, bæjarfulltrúar og starfsfólk
Mosfellsbæjar grilluðu pylsur fyrir gesti í
sameiningarathöfninni og Jógvan Hansen
skemmti gestum af sinni alkunnu snilld.
Öflugur hópur starfsfólks
Á Skálatúni búa 32 íbúar og starfsmenn
eru rúmlega 100, þannig að eftir samein-
inguna munu starfa rúmlega 900 manns
í sveitarfélaginu öllu. Búsetukjarnarnir
á Skálatúni bætast í hóp búsetukjarna á
velferðarsviði Mosfellsbæjar.
Skálatún hóf starfsemi sína 1954 og
starfsfólkið þar býr yfir mikilli þekkingu og
reynslu á sviði þjónustu við fatlað fólk.
Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmda-
stjóri velferðarsviðs, segist vera einstak-
lega ánægð með að fá þennan öfluga hóp
starfsfólks til Mosfellsbæjar og hlakkar til
samstarfsins á komandi árum. „Með sam-
einingunni skapast spennandi tækifæri til
áframhaldandi þróunar og umbóta á þeirri
mikilvægu þjónustu sem íbúum Skáltúns er
veitt.“
Að mörgu að hyggja við sameininguna
Mikill undirbúningur liggur að baki sam-
einingunni enda að mörgu að hyggja við að
sameiningu sem þessa. Sigríður Indriða-
dóttir ráðgjafi var fengin til að leiða breyt-
ingaferlið og segir hún ferlið fela bæði í sér
áskoranir en sé jafnframt skemmtilegt sam-
vinnuverkefni stjórnenda og starfsfólks.
„Mosfellsbær leggur mikla áherslu á að
halda vel utan um bæði íbúa og starfsfólk í
sameiningarferlinu með áherslu á virka þátt-
töku og skilvirka upplýsingamiðlun til íbúa,
aðstandenda, starfsfólks og stjórnenda.
Á næstu vikum verður unnið áfram í að
móta sameiginlega vinnustaðarmenningu á
velferðarsviði og í lok ágúst verður haldinn
starfsdagur alls starfsfólks á velferðarsviði
í Hlégarði,“ segir Sigríður.
Sameiningunni fagnað í veðurblíðu
Mosfellsbær og Skálatún í eina sæng • Mikil reynsla og þekking á þjónustu við fatlað fólk • Boðið til veislu
ólafur þormar og garðar samúel
regína bæjarstjóri og þórey
framkvæmdastjóri skálatúns í skálatúninu heima
grillað í góða veðrinu