Mosfellingur - 06.07.2023, Blaðsíða 30

Mosfellingur - 06.07.2023, Blaðsíða 30
 - Aðsendar greinar30 þökkum fyrir stuðninginn 3. flokkur karla í knattspyrnu í æfinga- og keppnisferð á spáni Rafgæðiehf GLERTÆKNI ehf Það var í lok septembermánaðar árið 1994 sem ég labbaði yfir Karlsbrúna á leið í minn fyrsta píanótíma til prófessorsins míns í Tónlistarakademíu í Prag, sem þá hafði nýverið verið flutt í nýuppgerða Lichten- stein-höllina í Malá Strana hverfinu fyrir neðan Kastalann. Borgin var að vakna, Pragbúar voru að upplifa „indian summer“ og hitinn var að færa sig yfir tuttugu gráðurnar þennan fallega haustdag. Hamingjan hreinlega helltist yfir mig þegar ég gerði mér grein fyrir að ég væri að ganga yfir Moldá, hina sömu og Smetana hafði ort um í tónum, beggja vegna brúarinnar voru byggingar sem bjuggu yfir mörg hundruð ára gamalli sögu og þetta varð allt svo yfirþyrmandi að ég fékk kökk í hálsinn og hnén á mér byrj- uðu að skjálfa. Heimsóknir í tvo ólíka skóla Þessi minning rifjaðist upp fyrir mér þegar ég tók að mér að leiða kollega mína í námsferð Listaskóla Mosfellsbæjar 28. maí - 1. júní. Á dagskrá voru heimsóknir í tvo ólíka skóla, rythmíska Konservatoríu Jaro- slava Ježka, sem nefnd er eftir tónskáldinu Jaroslav Ježek (1906-1942), sem mætti segja að sé svona tékknesk útgáfa af Gershwin og svo í fyrrnefnda tónlistarakademíu, sem enn er staðsett í hinni sömu dásamlegu höll. Það er ómetanlegt að geta farið í svona skólaheimsóknir til að sjá hvað kollegar eru að gera í sínum heimalöndum, bera sig saman við og læra af og er frábært af stétt- arfélögunum FT og FÍH að standa sig vel í því að veita styrki til slíkra heimsókna. Það var ekki laust við að hökur hafi sigið í átt að bringum í fyrri heimsókninni þegar tónlistarskólakennararnir, sem mættir voru í jazzkonservatoríuna fengu að heyra að nemendur skólans væru um 300 og kenn- arar (ekki allir í fullu starfi) væru 150. Í Listaskólanum í Mosó eru 360 nemend- ur og kennarar eru 31. Jazzkonservatorían hefur til umráða tvær 6 hæða byggingar, 110 kennslu- og æfingarými þar sem eru 55 flyglar eða píanó og að auki er heimavist fyrir þá sem eru utan af landi. Rúsínan í pylsuendanum á þessari lygilegu staðreynd er svo að skólagjöld eru engin. Það verður að segjast að þessi skóla- heimsókn var bæði vel skipulög og ákaflega fróðleg og í þokkabót vorum við leyst út með einu Mezzoforte lagi sem hluti stór- sveitar þeirra hafði æft okkur til heiðurs. Að sjálfsögðu var meðlimum Mezzoforte tilkynnt það á messenger og svar kom til baka: „Þú getur sagt þeim að við séum að spila í Lucerna í Prag 14. júní.“ Glæsilegur hljómburður Heimsóknin í tónlistarakademíuna í Lichtenstein-höllina, sem reyndar hýsir einnig dansakademíuna, var eins og gefur að skilja dálítið formfastari. Það er líka eins og mann setji ósjálfrátt hljóðan að ganga inn í höllina eins stórkostlega fullkomin og hún er í sínum klassíska stíl, byggð á gömlum grunni með gotneskum turni, sem skilur að álmur sem hýsa tónlistina og dansinn. Þar fékk hópurinn smá nasasjón af glæsilegum hljómburði tónleikasalarins, sem kenndur er við tékkneska tónskáldið Bohuslav Martinu (1890-1959), þar sem ungur orgelleikari sat við æfingar. Nokkrir úr hópnum fylgdust með gít- artíma og einn gítarkennari Listaskólans sagðist eftir þann tíma ekki getað beðið eftir að komast heim til að æfa sig. Reynd- ar held ég að við flestöll sem þarna vorum hefðum helst viljað fara aftur í tímann þar sem engar áhyggjur voru af neinu öðru en að æfa sig og einbeita sér að tónlistinni áður en lífsbaráttan tæki við. Saga á hverju götuhorni Prag er sannkölluð tónlistarborg og menningarperla og þar er saga á hverju götuhorni líkt og hópurinn hafði á orði eftir fjögurra stunda gönguferð um fjóra bæjarhluta. Göngutúrinn endaði að sjálf- sögðu á gamalgróinni tékkneskri krá þar sem alls kyns tékkneskt góðgæti var tekið til kostanna. Þegar við kvöddumst eftir daginn bað ég kollega mína vinsamlegast um að fara ekki á google maps, því að villast í miðborginni leiddi mann oft á merkilega staði og ekki mætti gleyma að horfa upp, þar væri líka ýmislegt að sjá. Arndís Ásgeirsdóttir tónlistarkennari segir frá námsferð Listaskóla Mosfellsbæjar • Skólaheimsóknir til Prag Námsferð til tónlistarborgarinnar Prag Hópurinn fyrir utan jazzkonservatoríumið tónlistarsalur í prag

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.