Mosfellingur - 06.07.2023, Síða 31
Lausar stöður
í leikskólum
Mosfellsbær www.mos.is 525 6700
Vinnustaðurinn
Leikskólar í Mosfellsbæ eru alls
átta og hver öðrum skemmtilegri.
Þeir eru:
Helgafellsskóli
Hlaðhamrar
Hlíð
Hulduberg
Höfðaberg
Krikaskóli
Leirvogstunga
Reykjakot
Full vinnustytting er komin
á og að jafnaði hættir
starfsfólk kl. 14:00 á
föstudögum, auk þess að fá
vetrarfrí, jólafrí og páskafrí
líkt og tíðkast í grunnskólum.
Áherslur og viðmið starfsins
Í starfi í leikskóla er lögð áhersla
á gleði, umhyggju og virðingu.
Vilja til að leggja sitt af mörkum,
búa yfir góðri samskiptahæfni,
vera tilbúin að læra og tileinka sér
fagleg vinnubrögð.
Hlutverk kennara og leiðbein-
anda í leikskólum er að:
Sinna menntun barna undir
leiðsögn stjórnenda þar sem
megináhersla er lögð á nám í
gegnum leik
Taka þátt í umönnun barna
og aðstoða þau eftir þörfum og
stuðla að vellíðan þeirra
Taka þátt í að skipuleggja
faglegt leikskólastarf
Taka þátt í gleði barnanna við
að uppgötva heiminn
Fyrir mig?
Ef þér finnst gaman að vinna með
fólki og vilt leggja þitt af mörkum,
þá er starf í leikskóla einmitt fyrir
þig. Í leikskólum Mosfellsbæjar
er samhentur hópur starfsmanna
og mikið samstarf. Starfið fer
fram inni og úti þar sem unnið
er í teymum undir leiðsögn
stjórnenda. Börnin eru að læra
á lífið og tilveruna og þarfnast
umhyggju, öryggis, athygli og
menntunar.
Leikskólinn er fyrsta
skólastigið og þau sem starfa
við kennslu ættu að hafa
leikskólakennaramenntun. Þó
gefst svigrúm til undanþágu
frá þeirri kröfu og því er fólk
með aðra menntun og reynslu
kærkomin viðbót í öflugan hóp
starfsfólks.
Laun eru samkvæmt samningi
Mosfellsbæjar og viðkomandi
stéttarfélags.
Fríðindi sem fylgja starfinu:
• Full stytting vinnuvikunnar –
Unnið að jafnaði til kl. 14:00
á föstudögum og frí í vetrar-,
jóla– og páskafríum
Frítt fæði
Forgangur barna í leikskóla
Sundkort
Samgöngustyrkur
Líkamsræktarstyrkur
Möguleikar á að sækja
námskeið eða lengra nám
samhliða starfi t.d. námsleyfi
v/leikskólakennaranáms
Umsókn um starf í leikskólum
Mosfellsbæjar er að finna á
mos.is – Laus störf
Jafnframt er hægt að senda póst
til leikskólastjóra viðkomandi
leikskóla eða hringja
Að vinna í leikskóla er áhugavert, líflegt, skemmtilegt og ekki síst er
starfið gefandi, þakklátt og fræðandi. Starfsfólk í leikskóla fær tækifæri
til að taka þátt í að móta og hafa áhrif á framtíð komandi kynslóða með
mikilvægasta fólki landsins – börnum.
Útvarp Mosfellsbær auglýsir eftir fólki til að taka
þátt í starfsemi útvarpsins dagana 24.-27. ágúst!
Langar þig að vera með
Útvarpsþátt
á næstu bæjarhátíð?
Frekari upplýsingar og skil á umsóknum:
utvarpmoso@gmail.com
Miðað er við að þættirnir verði um klukkutíma langir og
mega vera um hvað sem er – hvernig er best að skreyta
húsið sitt, tónlist frá níunda áratugnum, sögu Álafosskvosar,
fyrstu geimferðina eða annað sem þú hefur áhuga á.
www.mosfellingur.is - 31