Mosfellingur - 22.08.2023, Blaðsíða 6

Mosfellingur - 22.08.2023, Blaðsíða 6
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið - Bæjarblaðið í 20 ár6 Nýr kórstjóri Karla­ kórs Kjalnesinga Lára Hrönn Pétursdóttir hefur verið ráðin kórstjóri hjá Karlakór Kjalnesinga en hún tekur við keflinu af Þórði Sigurðarsyni sem lætur af störfum vegna flutninga út á land. Lára hefur víðtæka reynslu úr tónlistarlífinu, hefur komið að stjórnun barnakóra og sönghópa, hún þekkir aðeins til starfsins hjá Karla- kór Kjalnesinga en hún hefur komið fram með kórnum á tónleikum. Lára Hrönn hefur lokið 8 stigum í söng og þrælvön að koma fram bæði með einsöng og kórum. Lára Hrönn er búsett í Mosfellbæ ásamt fjölskyldu sinni og þess má geta að hún gegndi hlutverki fjall- konu Mosfellsbæjar á 17. júní í ár. Stekkjarflöt álafoSSkvoS kjarni varmárvöllur íþróttamiðStöðin að varmá Hlégarður Að vanda verður líf og fjör í Mosfellsbæ þegar bæjarhátíðin Í túninu heima fer fram helgina 24.-27. ágúst. Hátíðin heppnaðist gríðarlega vel í fyrra eftir tveggja ára hlé vegna heimsfaraldurs. Íbúar, félagasamtök og fyrirtæki taka virkan þátt í hátíðinni og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þekktir liðir verða á sínum stað, svo sem flugvéla- og fornvélasýning á Tungubökk- um, kjúklingafestival og Pallaball, en einnig opið hús á slökkvistöðinni við Skarhóla- braut sem notið hefur mikilla vinsælda. Setning og ullarpartý á föstudagskvöld Dagskrá hátíðarinnar verður veglegri með hverju árinu er dagskráin farin að teygja sig langt fram í vikuna. Formleg setning fer þó fram á föstudeginum. Skrúð- göngur í hverfalitunum fjórum leggja af stað frá Miðbæjartorgi kl. 20:30 á föstudag með hestamannafélagið Hörð í broddi fylkingar. Þaðan liggur leiðin í Álafosskvos þar sem hátíðin er sett. Að því loknu verður Ullarpartý með brekkusöng og skemmti- dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Í Álafosskvos fer fram markaður og skátafélagið Mosverjar skapar notalega kaffihúsastemningu. Nýjung við hátíðina í ár er Kjúllinn, sem er tónlistarveisla í Hlégarði á föstudags- kvöldið auk upphitunar fyrr um daginn. Heilsueflandi dagskrárliðir Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag og því vel við hæfi að á dagskrá séu Fellahringurinn, fótboltamót og Tindahlaupið, en það er eitt vin- sælasta utanvegahlaup landsins. Fjórar vegalengdir eru í boði, einn, þrír, fimm eða sjö tindar á fellunum umhverfis bæinn. Mosfellingar bjóða heim Mosfellingar taka vel á móti gestum og gangandi, skreyta hús og garða sína í hverfislitunum og bjóða heim. Fjölbreytileg dagskrá er í görðum bæjarbúa og opnar vinnustofur víða. Hápunktur á torginu Stórtónleikar á Mið- bæjartorgi eru hápunktur hátíðarinnar. Þar skemmta landsþekktar hljómsveitir ásamt heimamönnum. Kynnir verður Dóri DNA. Frítt verður í Varmárlaug og á Gljúfrastein allan laugardaginn. Dagskrá hátíðarinnar er að finna í miðopnu blaðsins og á vefsíðu Mos- fellsbæjar www.mos.is. Fjölbreytt skemmtun Í túninu heima • Líf og fjör um allan bæ • Dagskrá í miðopnu Bæjarhátíð Mosfellsbæjar verður haldin um helgina Höfðar, Hlíðar, Tún og Mýrar Tangar, Holt og Miðbær Teigar, Krikar, Lönd, Ásar, Tungur og Dalur Reykjahverfi og Helgafellshverfi HveRfasKReyTingaR Mosfellsbæ er skipt upp í fjóra hluta og hefur hver hluti sinn sérstaka lit til að skreyta með. ræSt í tindaHlaupið moSfellingar bjóða Heim gönguStjórar á miðbæjartorginu tónleikar á miðbæjartorginu miðbæjar- torg HelgiHald næStu vikna Lágafellssókn tekur þátt í bæjarhátíð- inni Í túninu heima með tónleikum, kyrrðarbænanámskeiði og kvöldmessu. Sjá nánar í dagskrá hátíðarinnar. Sunnudagur 27. ágúst Sjá nánar auglýsingu Í túninu heima Sunnudagur 3. september Upphaf safnaðarstarfsins í Lágafells- sókn! Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafells- kirkju. Sr. Henning Emil Magnússon. Sunnudagur 10. september Upphaf barnastarfsins í Lágafellssókn! Kl. 13: Fjölskylduguðsþjónusta í Lága- fellskirkju. Barnakór, fjör og fræðsla í umsjá æskulýðsleiðtoga. æskulýðsfélagið ósoM (8. - 10. bekkur) á þriðjudögum í vetur Byrjar 5. september kl. 20-21:30 í safn- aðarheimilinu. Öll velkomin - kynning á landsmóti ÆSKÞ á Egilsstöðum helgina 13.-15. október. Foreldramorgnar á fimmtudögum í vetur Hefjast 14. september kl. 10-12 í safnaðarheimilinu. Kríli og krútt í fylgd með foreldrum velkomin. Barnakór lágafellsóknar Skráning er hafin á lagafellskirkja.is Æfingar hefjast mánudaginn 4. sept- ember í safnaðarheimilinu, Þverholti 3. Kórstjóri er Valgerður Jónsdóttir. 4.–7. bekkur: Kóræfingar á mánudögum kl. 15:15–16:00. 1.–3. bekkur: Kóræfingar á mánudögum kl. 16:15–17:00. lagafel lsk i rk ja . i s Endilega fylgdu okkur á samfélags- miðlunum facebook & instagram. Fjölbreyttur úti­ markaður í Kvosinni Markaðurinn í Álafosskvosinni verður á sínum stað Í túninu heima. Opið verður föstudagskvöld kl. 19:30-22:00 og á laugardag kl. 12:00-16:00. Á föstudagskvöldinu fer fram Ullarpartí í Kvosinni með skemmtidagskrá og brekkusöng. Á laugardeginum verður fjölbreytt dagskrá á sviðinu allan daginn. Kjúklingafestival haldið í áttunda sinn Hjalti Úrsus býður til matarveislu ársins í Mosfellsbæ laugardaginn 26. ágúst. Kjúklingafestivalið hefur fest sig í sessi á bæjarhátíðinni og stækkar með hverju árinu. Festivalið fer fram við íþróttamið- stöðina að Varmá kl. 14-16. „Kjúklingafram- leiðendur sem dagsdaglega eru í harðri samkeppni koma saman í einn dag, sameina krafta sína og kynna fyrir fólki þennan holla og góða mat,“ segir Hjalti Úrsus. „Mos- fellsbær hefur alltaf verið þekktur sem kjúklingabær og stendur svo sannarlega undir nafni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.