Mosfellingur - 22.08.2023, Blaðsíða 48

Mosfellingur - 22.08.2023, Blaðsíða 48
 - GM snillingar 65+18 www.mosfellingur.is4 Mosfellsbær www.mos.is 525 6700 Laus störf í Leirvogstunguskóla Leirvogstunguskóli leitar að leikskóla- kennurum, uppeldismenntuðum einstakl- ingum og/eða öðru starfsfólki til starfa. Í boði eru fjölbreytt og skemmtileg störf í leikskóla með frábæru samstarfsfólki í sveitarfélagi sem býr yfir ríkri sögu, menningu og einstakri náttúru. Í Leirvogstungu- skóla eru 112 börn á 6 deildum. Í skólanum er unnið framsækið og öflugt skólastarf þar sem kærleikurinn og gleðin eru höfð að leiðarljósi. Deildarstjóri Leitað er eftir fólki með kennaramenntun, uppeldis- menntun eða aðra tengda menntun til að leiða starf deildar við skólann. Unnið er markvisst eftir kennslu- aðferðinni „Leikur að læra“ sem gengur út á að kenna börnum hljóð, stafi, stærðfræði, form og liti í gengum leik. Ábyrgðarsvið deildarstjóra er stjórnun og skipu- lagning á starfi deildar og mat á starfinu, auk fleiri þátta sem snúa beint að samskiptum við börn og foreldra þeirra. Um 100% starfshlutfall er að ræða. Leikskólakennari eða einstaklingur með aðra menntun/færni sem nýtist í starfi Leitað er eftir fólki með leikskólakennaramenntun eða menntun/færni sem nýtist í daglegu starfi við fjölbreytt störf með börnum og starfsfólki Leirvogstunguskóla. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri færni í samvinnu og samskiptum, hafa jákvætt og lausnarmiðað viðhorf gagnvart starfinu og beri virðingu og hafi áhuga á börnum. Æskilegt er að viðkomandi tali íslensku eða sé tilbúin til að tileinka sér tungumálið. Bent er á að full vinnustytting er komin á og að jafnaði hættir starfsfólk kl. 14.00 á föstudögum, auk þess að fá vetrarfrí, jólafrí og páskafrí líkt og tíðkast í grunnskólum. Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Mosfellsbær leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um störf, óháð kyni, fötlun eða menningarlegum bakgrunni. Lesið nánar um störfin á vefnum www.alfred.is og skilið þar inn rafrænum umsóknum. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfinu. Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2023. élsmiðjan ehf Gleðilega bæjarhátíð! Mosfellingar á verðlaunapalli á Akureyri Jóhann Arnór Elíasson og Jökull Þór Kristjánsson gerðu sér lítið fyrir og lentu báðir á verðlaunapalli á Downhill keppninni á Akureyri sem fór fram þann 16. júlí. Jóhann Arnór vann sinn flokk, fékk gullið, Jökull Þór lenti í 3. sæti. Vel gert hjá þessum Mosfell- ingum, þeir kepptu báðir fyrir Aftureldingu, þar sem þeir voru með hjólanámskeið fyrr í sumar. Út er komin ljóðabókin „Kurteisissonnett- an og önnur kvæði“ eftir Gunnar J. Straum- land, myndlistarmann og kennara við Var- márskóla í Mosfellsbæ. Í Varmárskóla hefur Gunnar lagt áherslu á skapandi starf með börnum undanfarin ár þar sem ljóðlist og myndlist vinna saman. Þetta er önnur bók höfundar en árið 2019 kom „Höfuðstafur, háttbundin kvæði“ út á vegum Bókaútgáfunnar Sæmundar sem einnig gefur nýju bókina út. Í bókinni, sem er 224 bls., skiptist lýrísk sýn, alvara, glens og hálfkæringur á undir afskaplega fjölbreyttum bragarháttum en öll kvæði bókarinnar eru háttbundin í formi. Þar má finna sonnettur, dróttkveð- ur, limrur, sléttubönd og fjölda rímnahátta auk ljóða undir ótilgreindum bragarháttum sem allir lúta þó stuðlanna þrískiptu grein. Lesandinn rekst einnig á sjaldgæfari gerðir eins og kvæði undir gripluhætti, slitruhætti og afdráttarhætti. Forsíðumynd bókarinnar er vatnslita- mynd eftir Gunnar sem nefnist „Þeir bræð- ur frá Síam.“ Bókin hefst á eftirfarandi kvæði: Arfur Mér var kennt við móðurhné að muna ef ég léti í té aumum hjálp til handa að geyma það sem gullin vé í gleði og engum segja, né miklast í mínum anda. Gunnar J. Straumland gefur út nýja ljóðabók Kurteisissonnettur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.