Mosfellingur - 22.08.2023, Blaðsíða 24
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað24
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Miðnætti er leikhópur með aðsetur í
Mosfellsbæ sem sérhæfir sig í vönduðum
leiksýningum, sjónvarpsefni og tónlist fyrir
börn og ungmenni.
Hópinn stofnuðu þær Agnes Wild leik-
kona og leikstjóri, Sigrún Harðardóttir
tónlistarkona og Eva Björg Harðardóttir
leikmynda- og búningahönnuður.
Í þremur leikhúsum næsta leikár
Það er í nógu að snúast hjá Miðnætti
þessa dagana, ungbarnasýningin þeirra,
Tjaldið, verður sýnd þriðja leikárið í röð í
Borgarleikhúsinu, brúðusýningin Á eigin
fótum verður sýnd í Þjóðleikhúsinu á nýju
ári og heldur svo í leikferðalag til Japan
næsta sumar. Áður hefur Miðnætti ferðast
með sýninguna til Grænlands, Eistlands og
Póllands.
„Okkur finnst svo gaman að gera sýning-
ar sem eru óháðar tungumáli, og þá spilar
tónlistin líka svo stóran þátt og verður að
tungumáli sýningarinnar. Og þá geta líka
miklu fleiri notið sýningarinnar, hvort sem
er á leikferðalögum eða hér á landi,“ segir
Sigrún, tónlistarkona.
Álfana Þorra og Þuru kannast margar
barnafjölskyldur við, en þeir verða á fjölum
Tjarnarbíós í desember og svo er hægt að
horfa á tvær sjónvarpsseríur með þeim á
RÚV og hlusta á tónlistina þeirra á Spotify.
Heill dagur af skemmtun
Miðnætti var valið bæjarlistamaður Mos-
fellsbæjar árið 2022 og býður af því tilefni
til sumarhátíðar í Bæjarleikhúsinu með
fjölbreyttri dagskrá úr verkum Miðnættis.
„Dagurinn hefst á morgunstund fyrir 0-
3ja ára og foreldra þeirra. Leifur og María
úr ungbarnasýningunni Tjaldið verða með
ljúfa stund fyrir krílafjölskyldur kl. 10 og
aftur kl. 11. Kl. 12:30 verða Þorri og Þura
með skemmtiatriði inni í sal og kl. 13:30
verður boðið uppá singalong-bíósýningu
með Þorra og Þuru, en skemmtilegu sjón-
varpsþættirnir „Þorri og Þura: vinir í raun“
verða sýndir á tjaldi.
Kl. 15 verður svo opin brúðustund þar
sem börnum og áhugafólki um brúðuleik-
hús gefst tækifæri til að skoða ýmsar brúð-
ur úr sýningum Miðnættis og fá að prófa
mismunandi gerðir brúðuleikhúss,“ segir
Eva Björg og bætir því við að allan daginn
verður heitt á könnunni, veitingasala, and-
litsmálning, ljósmyndabás og Þorri, Þura
og vinir þeirra verða á vappi.
Miðar á atriðin sem fara fram inni í sal
fást í miðasölu Bæjarleikhússins 30 mínút-
um fyrir hvern viðburð. Dagskrána í heild
sinni má finna á www.midnaetti.com.
Sterkar rætur
Agnes, Sigrún og Eva Björg eru allar ald-
ar upp í Mosfellsbæ og eru þakklátar fyrir
tækifærin sem þær hlutu í uppvextinum.
„Skólahljómsveitin, leikfélagið, kórarnir
og ræturnar eru í Mosfellsbæ. Og við höf-
um einnig í okkar listræna starfi lagt mikla
áherslu á tengingu við bæinn, m.a. við val
á tökustöðum í sjónvarpsþáttum,“ segir
Agnes.
„Það er jarðvegurinn sem skiptir öllu
máli til að listir geti blómstrað,“ bætir Sig-
rún við.
Miðnætti með stútfulla dagskrá í Bæjarleikhúsinu Í túninu heima • „Jarðvegurinn skiptir máli svo listir geti blómstrað“
Bæjarlistamenn bjóða á sumarhátíð
Eva Björg, agnEs og sigrún
Mosfellsbær www.mos.is 525 6700
Ný grenndarstöð
við Vefarastræti
DEILISKIPULAGSBREYTING
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt
að kynna deiliskipulagsbreytingu í
Helgafellshverfi skv. 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að staðsetja nýja grenndarstöð
við Vefarastræti í samræmi við áætlun um fjölgun
grenndarstöðva og innleiðingu hringrásarhagkerfisins.
Markmiðið með deiliskipulagsbreytingunni er að fjölga
grenndarstöðvum og bæta þannig aðgengi íbúa að
flokkunarstöð fyrir endurvinnanlegt efni.
Gögn eru aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is/
skipulagsauglysingar og á vef Skipulagsstofnunar,
skipulagsgatt.is mál númer 503/2023. Þau sem
þess óska geta kynnt sér tillöguna og gert við hana
athugasemdir með rafrænum hætti í Skipulagsgáttinni.
Umsagnafrestur er frá 22. ágúst
til og með 4. október 2023
Opið í ÞverhOlti 5
12-17 mánudaga-föstudaga
Erum að undirbúa námskeiðin fyrir haustið, fylgist með!