Mosfellingur - 22.08.2023, Síða 6
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið
- Bæjarblaðið í 20 ár6
Nýr kórstjóri Karla
kórs Kjalnesinga
Lára Hrönn Pétursdóttir hefur
verið ráðin kórstjóri hjá Karlakór
Kjalnesinga en hún tekur við keflinu
af Þórði Sigurðarsyni sem lætur af
störfum vegna
flutninga út á
land. Lára hefur
víðtæka reynslu
úr tónlistarlífinu,
hefur komið
að stjórnun
barnakóra og
sönghópa, hún
þekkir aðeins til starfsins hjá Karla-
kór Kjalnesinga en hún hefur komið
fram með kórnum á tónleikum.
Lára Hrönn hefur lokið 8 stigum
í söng og þrælvön að koma fram
bæði með einsöng og kórum.
Lára Hrönn er búsett í Mosfellbæ
ásamt fjölskyldu sinni og þess má
geta að hún gegndi hlutverki fjall-
konu Mosfellsbæjar á 17. júní í ár.
Stekkjarflöt
álafoSSkvoS
kjarni
varmárvöllur
íþróttamiðStöðin
að varmá
Hlégarður
Að vanda verður líf og fjör í Mosfellsbæ
þegar bæjarhátíðin Í túninu heima fer fram
helgina 24.-27. ágúst. Hátíðin heppnaðist
gríðarlega vel í fyrra eftir tveggja ára hlé
vegna heimsfaraldurs.
Íbúar, félagasamtök og fyrirtæki taka
virkan þátt í hátíðinni og ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þekktir liðir verða á sínum stað, svo sem
flugvéla- og fornvélasýning á Tungubökk-
um, kjúklingafestival og Pallaball, en einnig
opið hús á slökkvistöðinni við Skarhóla-
braut sem notið hefur mikilla vinsælda.
Setning og ullarpartý á föstudagskvöld
Dagskrá hátíðarinnar verður veglegri
með hverju árinu er dagskráin farin að
teygja sig langt fram í vikuna. Formleg
setning fer þó fram á föstudeginum. Skrúð-
göngur í hverfalitunum fjórum leggja af
stað frá Miðbæjartorgi kl. 20:30 á föstudag
með hestamannafélagið Hörð í broddi
fylkingar. Þaðan liggur leiðin í Álafosskvos
þar sem hátíðin er sett. Að því loknu verður
Ullarpartý með brekkusöng og skemmti-
dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Í Álafosskvos fer fram markaður og
skátafélagið Mosverjar skapar notalega
kaffihúsastemningu.
Nýjung við hátíðina í ár er Kjúllinn, sem
er tónlistarveisla í Hlégarði á föstudags-
kvöldið auk upphitunar fyrr um daginn.
Heilsueflandi dagskrárliðir
Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag
og því vel við hæfi að á dagskrá séu
Fellahringurinn, fótboltamót og
Tindahlaupið, en það er eitt vin-
sælasta utanvegahlaup landsins.
Fjórar vegalengdir eru í boði,
einn, þrír, fimm eða sjö tindar
á fellunum umhverfis bæinn.
Mosfellingar bjóða heim
Mosfellingar taka vel á
móti gestum og gangandi,
skreyta hús og garða sína
í hverfislitunum og bjóða
heim.
Fjölbreytileg dagskrá
er í görðum bæjarbúa og
opnar vinnustofur víða.
Hápunktur á torginu
Stórtónleikar á Mið-
bæjartorgi eru hápunktur
hátíðarinnar. Þar skemmta
landsþekktar hljómsveitir
ásamt heimamönnum. Kynnir
verður Dóri DNA.
Frítt verður í Varmárlaug og á
Gljúfrastein allan laugardaginn.
Dagskrá hátíðarinnar er að finna í
miðopnu blaðsins og á vefsíðu Mos-
fellsbæjar www.mos.is.
Fjölbreytt skemmtun Í túninu heima • Líf og fjör um allan bæ • Dagskrá í miðopnu
Bæjarhátíð Mosfellsbæjar
verður haldin um helgina
Höfðar, Hlíðar,
Tún og Mýrar
Tangar, Holt
og Miðbær
Teigar, Krikar, Lönd,
Ásar, Tungur og Dalur
Reykjahverfi og
Helgafellshverfi
HveRfasKReyTingaR
Mosfellsbæ er skipt upp í fjóra
hluta og hefur hver hluti sinn
sérstaka lit til að skreyta með.
ræSt í tindaHlaupið
moSfellingar bjóða Heim
gönguStjórar á miðbæjartorginu
tónleikar á miðbæjartorginu
miðbæjar-
torg
HelgiHald næStu vikna
Lágafellssókn tekur þátt í bæjarhátíð-
inni Í túninu heima með tónleikum,
kyrrðarbænanámskeiði og kvöldmessu.
Sjá nánar í dagskrá hátíðarinnar.
Sunnudagur 27. ágúst
Sjá nánar auglýsingu Í túninu heima
Sunnudagur 3. september
Upphaf safnaðarstarfsins í Lágafells-
sókn! Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafells-
kirkju. Sr. Henning Emil Magnússon.
Sunnudagur 10. september
Upphaf barnastarfsins í Lágafellssókn!
Kl. 13: Fjölskylduguðsþjónusta í Lága-
fellskirkju. Barnakór, fjör og fræðsla í
umsjá æskulýðsleiðtoga.
æskulýðsfélagið ósoM
(8. - 10. bekkur) á þriðjudögum í vetur
Byrjar 5. september kl. 20-21:30 í safn-
aðarheimilinu. Öll velkomin - kynning á
landsmóti ÆSKÞ á Egilsstöðum helgina
13.-15. október.
Foreldramorgnar
á fimmtudögum í vetur
Hefjast 14. september kl. 10-12 í
safnaðarheimilinu. Kríli og krútt í fylgd
með foreldrum velkomin.
Barnakór lágafellsóknar
Skráning er hafin á lagafellskirkja.is
Æfingar hefjast mánudaginn 4. sept-
ember í safnaðarheimilinu, Þverholti 3.
Kórstjóri er Valgerður Jónsdóttir.
4.–7. bekkur: Kóræfingar á
mánudögum kl. 15:15–16:00.
1.–3. bekkur: Kóræfingar á
mánudögum kl. 16:15–17:00.
lagafel lsk i rk ja . i s
Endilega fylgdu okkur á samfélags-
miðlunum facebook & instagram.
Fjölbreyttur úti
markaður í Kvosinni
Markaðurinn í Álafosskvosinni
verður á sínum stað Í túninu
heima. Opið verður föstudagskvöld
kl. 19:30-22:00 og á laugardag kl.
12:00-16:00. Á föstudagskvöldinu
fer fram Ullarpartí í Kvosinni með
skemmtidagskrá og brekkusöng.
Á laugardeginum verður fjölbreytt
dagskrá á sviðinu allan daginn.
Kjúklingafestival
haldið í áttunda sinn
Hjalti Úrsus býður til matarveislu
ársins í Mosfellsbæ laugardaginn
26. ágúst. Kjúklingafestivalið hefur
fest sig í sessi á bæjarhátíðinni og
stækkar með
hverju árinu.
Festivalið fer
fram við
íþróttamið-
stöðina að
Varmá kl. 14-16.
„Kjúklingafram-
leiðendur sem
dagsdaglega
eru í harðri samkeppni koma saman
í einn dag, sameina krafta sína og
kynna fyrir fólki þennan holla og
góða mat,“ segir Hjalti Úrsus. „Mos-
fellsbær hefur alltaf verið þekktur
sem kjúklingabær og stendur svo
sannarlega undir nafni.“