Mosfellingur - 22.08.2023, Síða 42
- Mosfellingurinn Regína Ásvaldsdóttir42
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Regína Ásvaldsdóttir tók við sem
bæjarstjóri í Mosfellsbæ 1. sept-
ember 2022. Hún býr yfir víðtækri
reynslu af stjórnun og rekstri á vettvangi
sveitarstjórnarmála og hefur átt sæti í
fjölmörgum stjórnum og starfshópum.
Regína segist þakklát fyrir það traust
sem henni var sýnt með ráðningunni,
fram undan séu stór verkefni, meðal
annars í uppbyggingu og stefnumótun til
framtíðar.
Regína fæddist í Reykjavík 30. júní 1960.
Foreldrar hennar eru þau Erna María Jó-
hannsdóttir fv. þjónustufulltrúi hjá Sýslu-
manninum í Kópavogi og Ásvaldur Andrés-
son bifreiðasmiður en hann lést árið 2020.
Regína á tvær systur, Hönnu Sveinrúnu f.
1956 og Ragnhildi f. 1966.
Varði mörgum stundum í Birkihlíð
„Ég bjó fyrstu árin mín í Birkihlíð í Kópa-
vogi með foreldrum mínum og eldri systur
á meðan foreldrar mínir byggðu sér hús í
Löngubrekku sem var skammt frá. Í Birki-
hlíð ráku afi minn og amma gróðrarstöð og
þar varði ég mörgum stundum á mínum
uppvaxtarárum.
Ég gekk í Kópavogsskóla og síðar Víg-
hólaskóla, lærði að lesa fjögurra ára gömul
og leiddist oft í skólanum fyrst árin því mér
fannst ég ekki hafa nóg fyrir stafni, ég var
frekar baldin sem barn og unglingur.
Ég vann alltaf á gróðrarstöðinni á vorin
frá 10 ára aldri en seinni hluta sumars var
ég í alls konar störfum, m.a. að passa börn
í Neskaupstað, í sveit á Sómastöðum við
Reyðarfjörð og síðar við afgreiðslustörf í
Njarðarbakaríi og í mötuneytinu á Hrafn-
istu.“
Meistarapróf frá Skotlandi
„Eftir landspróf fór ég í Menntaskóla
Kópavogs en á sumrin starfaði ég á hóteli
í Balestrand í Sognfirði í Noregi.
Eftir annan bekk tók ég ársfrí
með vinkonum mínum og við
fórum í langa Evrópuferð eftir
sumarið í Balestrand. Við störf-
uðum á vínræktarbúgarði í Suður-Frakk-
landi og síðan í skíðabænum Geilo í Noregi.
Ég kláraði svo stúdentsprófið árið 1981.“
Eftir útskrift úr menntaskóla fór Regína
í nám til Noregs og lærði afbrotafræði og
félagsráðgjöf. Hún bætti svo við sig dipl-
óma námi í opinberri stjórnsýslu og eftir
það fór hún til Skotlands í háskólann í
Aberdeen þar sem hún tók meistarapróf í
hagfræði með áherslu á breytingastjórnun
og nýsköpun.
Í frábærum golfhópi
Regína er gift Birgi Pálssyni deildarstjóra
hjá Íslenskri erfðagreiningu en þau kynnt-
ust árið 1992. Regína á tvær dætur frá fyrra
hjónabandi, Ernu Maríu f. 1981 sem starfar
sem flugmaður hjá Icelandair og Ýr f. 1984
sem er fatahönnuður. Birgir á eina dóttur,
Auði Kolbrá f. 1989, en hún starfar sem
lögfræðingur hjá Kópavogsbæ.
„Ég hef brennandi áhuga á starfinu mínu
og öllu því sem viðkemur rekstri Mosfells-
bæjar og það tekur svolítið yfir núna,“ segir
Regína aðspurð um áhuga-
málin. „Golf er aðaláhugamál
okkar hjóna en Birgir stundar
það betur en ég þótt mér finn-
ist dásamlegt á vellinum þegar ég gef mér
tíma. Við erum í frábærum golfhópi með
vinum okkar og ferðumst mikið saman. Ég
er að sjálfsögðu búin að skrá mig í Golf-
klúbb Mosfellsbæjar og finnst skemmtilegt
að taka kvöldstund á Bakkakotsvellinum.
Við erum líka í gönguhópi á vegum
Ferðafélagsins en mér finnst mjög gaman
að klífa fell og fjöll og svo keyptum við
okkur lítinn sumarbústað í landi Efstadals
fyrir þremur árum og höfum verið að gera
hann upp og það fer nú töluverður tími í
það líka.“
Þakklát fyrir traustið
Regína hefur tekið að sér ýmis krefjandi
störf í gegnum tíðina, hún starfaði sem
félagsmálastjóri í Skagafirði, við velferð-
arþjónustu, stýrði þjónustumiðstöðinni
Miðgarði í Grafarvogi, var skrifstofustjóri
og staðgengill borgarstjórans í Reykjavík
auk þess að sinna víðtækum stjórnkerf-
isbreytingum, bæjarstjóri á Akranesi og
sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Auk stjórnunarstarfa
hefur Regína verið
stundakennari við
Háskólann á Bifröst
og við Háskóla Ís-
lands.
„Ég hóf störf í Mos-
fellsbæ 1. september
2022 og er gríðarlega
þakklát fyrir traustið
sem mér var sýnt að
fá að stýra þessum
fallega bæ. Mosfells-
bær hefur orð á sér
fyrir að vera mjög
fjölskylduvænn bær
og það er mikilvægt
að þær áherslur haldi sér.
„Ég er í einstaklega góðu sambandi
við oddvitana þrjá sem mynduðu
meirihlutann, þær Höllu Karen, Önnu
Sigríði og Lovísu og við ræðum okkur í
gegnum mál á hreinskiptinn hátt sem
ég met mikils.
Ég er líka ánægð með samstarfið við
alla bæjarstjórnina og hef lagt mig fram við
að kynna stór mál sem eru í gangi á sér-
stökum vinnufundum með öllum fulltrúum
hvort sem þeir eru í meiri- eða minnihluta.
Auðvitað kastast stundum í kekki eins og
oft vill verða í pólitík vegna einstakra mála
en í langflestum tilvikum tekst að ná sátt
um mikilvæg mál.“
Góður hópur starfsfólks
„Það er einstaklega góður hópur fólks
sem starfar hjá Mosfellsbæ, hópur sem
hefur mikinn metnað. Stofnanir bæjarins
eru mjög vel reknar með sterkum stjórn-
endum en auðvitað getur ýmislegt komið
upp á eins og óvæntar framkvæmdir með
tilheyrandi kostnaði.
Rekstur Skálatúns hefur verið erfiður
en það náðist að lenda því máli farsællega
í samstarfi við mennta- og barnamála-
ráðuneytið og innviðaráðuneytið. Á landi
Skálatúns munu rísa byggingar sem eru
ætlaðar til þjónustu við börn og ungmenni
og fjölskyldur þeirra og Mosfellsbær mun
þjónusta fatlaða íbúa Skálatúns eins og aðra
fatlaða einstaklinga sem búa í bænum.“
Mikil uppbygging
„Breytingar hafa verið gerðar á stjórn-
sýslu bæjarins sem ég vona að verði til góðs
þar sem við leggjum meðal annars áherslu
á stafrænar breytingar. Það sem við erum í
vanda með eins og mörg sveitarfélög sem
eru í örum vexti er skuldastaðan sem er
erfið á þessum verðbólgutímum. Hér hefur
verið mikið byggt upp, meðal annars nýr
grunnskóli í Helgafellslandi og við vorum
að skrifa undir samning við fyrirtækið
Alefli ehf. í Mosfellsbæ um byggingu nýs
leikskóla. Lóðin er erfið og þetta verða því
miður kostnaðarsamar framkvæmdir en
við munum fá mjög vandaðan og góðan
150 barna leikskóla í hverfið.
Nýtt gervigras var sett á æfingavöllinn
við Varmá og við erum að skoða frekari
framkvæmdir á Varmársvæðinu. Þá er
að hefjast uppbygging á viðbyggingu við
hjúkrunarheimilið í bænum með 66 við-
bótarrýmum.“
Í túninu heima um helgina
„Fjölmargt skemmtilegt er fram undan,
menningarlífið blómstar og Hlégarður hef-
ur fengið aukið hlutverk eftir að við réðum
Hilmar Gunnarsson sem viðburðastjóra.
Bæjarhátíðin Í túninu heima er svo á næsta
leiti, hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð
sem stendur í þrjá daga og það ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í fjöl-
breyttri dagskrá.
Við vorum að ráða fleira fólk inn í stjórn-
endateymið okkar og væntum mikils af
þeim góða hópi. Það er því ekki hægt að
segja annað en að framtíðin sé björt hér í
Mosfellsbæ með áframhaldandi uppbygg-
ingu í þágu bæjarbúa,” segir Regína og
brosir þegar við kveðjumst.Birgir, Tindur Páll, Niclas, Erna María, Regína, Ýr, Auður Kolbrá og Matthías Már.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir þjónustu við bæjarbúa mikilvægasta verkefnið
Það er einstaklega
góður hópur fólks sem
starfar hjá Mosfellsbæ, hópur
sem hefur mikinn metnað.
HIN HLIÐIN
Hvaða freistingu stenst þú ekki?
Eina með öllu.
Draumaborgin? Metz í Frakklandi, þar
sem tengdaforeldrar mínir höfðu sitt
annað heimili um nokkurra ára skeið.
Hvað drífur þig áfram? Löngun til að
breyta og bæta samfélagið.
Hvað hefur haft mest áhrif á líf þitt?
Það er svo margt sem hefur haft áhrif
en kannski er það bara jarðtengingin úr
Löngubrekkunni í Kópavoginum sem hefur
nýst mér best.
Þrjú orð sem lýsa þér best? Ég er
hreinskiptin, metnaðarfull og lífsglöð.
Hver kom þér síðast á óvart og
hvernig? Ég sjálf eiginlega, þegar ég
tók stökkið og ákvað að sækja um starf
bæjarstjóra hér í Mosfellsbæ.
Uppáhaldsverslun? Apotek Atelier á
Laugaveginum, dásamleg hönnunarperla
sem ein dætra minna rekur í félagi við tvo
aðra.
Besta ráð sem þú hefur nýtt þér?
Tengdafaðir minn, Páll Skúlason
heitinn, gaf mér það heilræði að byggja á
styrkleikum mínum í lífinu í stað þess að
eyða ævinni í að vinna á veikleikunum.
Það hefur nýst mér afskaplega vel.
Þakklát fyrir traustið
halla karen, regína
og Birna á Bikarleik 7 ára á grímuBalli
Við eldgosið í geldingadöl-