Verzlunartíðindi - 01.12.1957, Qupperneq 8
Valdimar Ólafsson verzlunarráðunautur:
Á FERÐ í
(Niðurlag).
Nýjasta fyrirbærið í verzluninni vestan hafs eru
„afsláttarhúsin“ (discount houses) svokölluðu.
Þessi tegund verzlunar byrjaði 1947 og stendur
nú með blóma. Að vísu veltur á ýmsu, en sala
þeirra hefur aukizt jafnt og þétt. Viðskiptin sem
þessi fyrirtæki reka byggjast á litlum tilkostnaði.
Allt er eins ódýrt og frekast er unnt, léleg húsa-
kynni og engin þjónusta, aðal áherzlan er lögð á
að ekkert sé gert nema það allra nauðsynlegasta,
þjónusta kostar peninga.
Mikil áherzla er lögð á að greiða sölufólki
prósentur af sölu. Fatakaupmaður einn, sem við
töluðum við, sagðist engin föst laun borga, bara
prósentur, og ef hann lagði mikla áherzlu á að
losa sig við einhverja ákveðna vöru, þá kom hann
á nokkurs konar keppni, sölumaðurinn fær sér-
stakar prósentur fyrir söluna á þessum hlut.
1955 voru 24.700 ,,Super-Markets“ í Bandaríkj-
unum, sem seldu fyrir 23,5 milljarða dollara.
„Superrettes" búðir voru 375.000 og seldu fyrir
10.4 milljarða dollara, smærri matvöruverzlanir
voru 252.500 og seldu fyrir 5,5 milljarða dollara
eða 32% af sölu Super-Markets. Ástæðan fyrir
velgengni „Super-Markets“ er fyrst og fremst verð-
ið og að fjöldaframleiðslu er fjöldadreifing nauð-
synleg, slík sem „Super-Market“ gefur kost á.
Sjálfsafgreiðslufyrirkomulagið byrjaði á árum
fyrri heimsstyrjaldarinnar, vegna skorts á sölu-
fólki. Fyrstu „Super-Markets“ voru opnaðir 1932,
á kreppuárunum.
Það voru heildsalar, sem stofnuðu sjálfboða-
keðjurnar í U.S.A., en ekki kaupmenn eins og í
Evrópu.
Bandaríkjamenn álíta gluggaútstillingu mjög
hæpna, hún kostar of mikla vinnu, og stilla búð-
inni sjálfri út í gluggann; gluggar stela dýrmætu
söluplássi (hillum). Aftur á móti leggja þeir
áherzlu á að „skreyta" gluggana með auglýsinga-
skiltum og samkvæmt rannsókn þar vestra kom í
ljós, að blaðaauglýsingar og slíkar gluggaskreyting-
ar eru beztu auglýsingarnar.
Sameiginlegar innkaupastofnanir eru mjög al-
gengar vestra. Eru þær reknar sameiginlega af
mörgum smásölum, með litlum tilkostnaði og þjón-
AMERIKU
ustu. Fyrirtæki þessi voru aðallega stofnuð af ein-
stökum kaupmönnum sem svar við samkeppninni,
sem stóru keðjufyrirtækin veittu, og reyndist mjög
áhrifaríkt. Keðjufyrirtækin svöruðu með því að
kaupa framleiðslufyrirtæki, en það reyndist ekki
heppilegt. Það var heildsalinn, sem tapaði í þess-
ari baráttu og fyrir 25 árum heyrðust háar radd-
ir um að þeir væru tilgangslausir og gáfust marg-
ir þeirra þá upp. Þeir, sem eftir þraukuðu, hafa
síðan sannað og tryggt tilverurétt sinn með ýmsu
móti, t. d. með lánum og þjónustu og fleiru, sem
þeir láta nú smásöiuverzlunum í té. Samvinnufélög
hafa aldrei orðið þýðingarmikil fyrirtæki í U.S.A.
Þetta er í fáum orðum það helzta, sem við feng-
um að heyra og sjá hjá New York University.
Nokkrum sinnum fórum við svo á þessu tímabili
í verzlanir í sambandi við fyrirlestrana.
Trundle Consultants, Inc.,
er ráðunautaskrifstofa í Cleveland, Ohio. Þá
daga, sem við vorum í Cleveland fengum við inn-
sýn í störf verzlunarráðunauta í U.S.A. Flest fyrir-
tæki í Bandarikjunum hafa í þjónustu sinni mann
eða menn, sem vinna að rannsóknum á ýmsum
sviðum verzlunarinnar og eru þeir kallaðir „Super-
visers“ eða ráðunautar. Stóru keðjufyrirtækin
hafa sína eigin menn, en einstakir kaupmenn gera
samninga við fyrirtæki eins og Trundle Consultants
um þjónustu verzlunarráðunauta. Þarna fengum
við lýsingu á helztu viðfangsefnum þessara manna,
sem ekki eru ólík viðfangsefnum starfsfélaga
þeirra í Evrópu.
The B. F. Goodrich Co.,
er eins og margir munu kannast við, eitt stærsta
fyrirtækið í heiminum, sem framleiðir gúmmíhjól-
barða á bifreiðir. Okkur þótti þess vegna skrýtið
að vera sendir þangað, en fljótlega kom á daginn
að þar var margt að læra. Það er ekki nóg að
framleiða, við verðum að selja, og það gera þeir.
Auk þess að selja hjólbarða á benzínstöðum hefur
fyrirtækið opnað verzlanir út um öll fylki Banda-
ríkjanna. 1 upphafi voru það einungis hjólbarðarn-
ir, sem þeir seldu, en til að fá fólk inn í búðir sínar
hafa þeir bætt við vörutegundum jafnt og þétt,
t. d. er nú svo komið að síðast liðið ár seldu þeir
56
VERZLUNARTÍÐINDIN