Verzlunartíðindi - 01.12.1957, Síða 9
ísskápa (Kelvinator) fyrir hærri upphæð heldur
en hjólbarða. Við skoðuðum nokkrar verzlanir sem
þeir eiga eða leigja út, en þeir leggja meiri áherzlu
á að leigja kaupmönnum verzlanirnar heldur en
að eiga þær sjálfir. Venjulega er leigan ca. 3%
af brúttósölu.
National Cash Register Co., Dayton, Ohio
er, eins og sennilega allir kaupmenn vita, fyrir-
tæki, sem framleiðir peningakassa. Fyrirtæki
þetta hefur haft þann sið að halda sjálfstæða fyrir-
lestra um smásölu fyrir þá útlendinga, sem huga
hafa á að kynnast bandarískri verzlun og er það
hiuti af þjónustu þeirra við viðskiptavini. Auk
fyrirlestranna fórum við allmikið í verzlunarheim-
sóknir þann tima, sem við vorum í Dayton. Okkur
var bent á að 90% af verzluninni fer fram á 12
tímum vikunnar í U.S.A.: á kvöldin og á laugar-
dögum. Yfirleitt eru búðir opnar frá 9—9 hvern
virkan dag, en sums staðar er búðum aldrei lokað.
Síðast iiðið ár seldu „afsláttarhúsin“ fyrir 25 mill-
jarða dollara, en vöruhúsin fyrir 9 milljarða. 1960
er gert ráð fyrir að ,,Super-Markets“ muni selja
80% af allri matvöru U.S.A.
Red & White Corporation
er sjálfboða-keðja margra heildsala og smásala.
Aðalstöðvar samtakanna eru í Chicago, 111., þar
sem okkur var í fáum orðum sagt frá starfsemi
þessari, en fyrirtækið er nú starfandi í flestum
fylkjum Bandaríkjanna.
Eftir að hafa verið í Chicago vorum við send
sitt í hverja áttina, ég var sendur til Red & White
heildsala í Greensburg, Pa. og var þar rúma viku
og kynnti mér störf verzlunarráðunauta fyrirtæk-
isins, en þau voru fólgin í því að ferðast á milli
kaupmanna og vinna fyrir þá.
Hver kaupmaður fær heimsókn einu sinni í
viku og hver ráðunautur átti að heimsækja 25
kaupmenn. Aðallega var vinnan fólgin í því að
kynna nýjar vörutegundir, athuga uppstillingu í
búðinni og ræða við kaupmanninn um erfiðleika
hans. Sumir voru í starfsmannaerfiðleikum (ráðu-
nauturinn talaði við umsækjendur ásamt kaup-
manninum), sumir voru að endurbyggja eða fá
sér nýtt húsnæði, bæta við verzlunina o. s. frv.
Það var alltaf eitthvað, sem athuga þurfti og var
mér þetta góður skóli. Ráðunauturinn sá um aug-
lýsingar fyrir kaupmennina, en þeir auglýstu einu
sinni í viku, allir sameiginlega. Frá heildsalanum
fá kaupmennirnir vörur vikulega, en heildsalinn
gefur út innkaupaskrá, sem kaupmennirnir fylla
út eftir þörfum. Skráin segir til um verðið á vör-
unni, svo allt er útreiknað þegar varan kemur og
stór hluti hennar verðmerktur frá heildsala að
auki. Þannig eru allir þessir kaupmenn með sama
verðið á sama tíma. Heildsalinn leggur á vöruna
6% og fær ráðunauturinn 1% í laun af innkaup-
um þeim, sem kaupmenn hans gera hjá heild-
salanum.
í Washington D. C.
vorum við í tæpa viku og kynntum okkur ýmis-
legt í sambandi við landið í heild, heimsóttum t.
d. þingið o. s. frv. Skýrsla um ferðina, gerð af
þátttakendum sjálfum, var lögð fram og rædd, en
því næst var haldið tii New York, þaðan sem hver
fór til síns heima.
Um leið og ég lýk máli mínu, vil ég nota tæki-
færið og þakka öllum þeim, er gerðu mér kleift
að fara þessar ferðir og þó sérstaklega Sambandi
smásöluverzlana og Iðnaðarmálastofnun Islands.
<o>
Breyting ó greiðslushilmálom
Félaðs íslenzhra stórhaupmanna.
Sambandi smásöluverzlana barst þann 12. nóv-
ember svo hljóðandi bréf frá Félagi ísl. stórkaup-
manna:
„Hérmeð tilkynnist að sú samþykkt hefur verið
gerð í félagi voru, að félagsmönnum sé í sjálfsvald
sett, hvort þeir reikni vexti og stimpilkostnað af
víxlum skv. 3. gr. greiðsluskilmála félagsins.
Að öðru leyti eru greiðsluskilmálarnir óbreyttir
frá því sem áður var.“
<o>
Útgefandi:
Samband smásöluverzlana
Laugavegi 22. — Sími 19390.
Ritstjórn og ábyrgðarmenn:
Lárus Pjetursson, Lárus Bl. Guðmundsson
Herbertsprent
VERZLUNARTÍÐINDIN
57