Austurland - 26.04.2018, Blaðsíða 14
14 26. apríl 2018
i-t.isOpið virka daga frá 9 til 18
laugardaga 11 til 15
Ármúla 31 - Sími 588 7332
Walk-in N
Stilhrein sturta.
Sturtubotn fáanlegur í
mörgun stærðum og litum.
Sturtuveggur með væng,
8mm hert öryggisgler.
Einherjamenn halda Alþjóða-
dag verkalýðsins hátíðlegan
með för til Vestmannaeyja til
að keppa við ríkjandi bikarmeistara í
32-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppn-
innar. Fyrirliði Vopnafjarðarliðsins,
Bjartur Aðalbjörnsson segir hug í
hópnum fyrir ferðinni.
Einherji komst í 32ja liða úrslitin í
fyrsta sinn frá 2009 um helgina með
1-0 sigri á Leikni á Fellavelli. Jökull
Ólafsson skoraði markið beint úr
aukaspyrnu þegar kortér var eftir.
Í samtali við Austurfrétt sagði
Bjartur Einherjamenn taka leiknum
eins og hverju öðru verkefni. „Við
mætum til Eyja til að halda áfram
í bikarnum. Það hefur verið mikil
stemming í hópnum og þjálfari og
leikmenn höfðu einsett sér að fara
langt í bikarnum.“ Einherji hef-
ur þegar slegið út Sindra-liðið frá
Hornafirði og Leikni frá Fáskrúðs-
firði.
Austurland óskar þeim góðs
gengis með baráttukveðjum en
einnig mun Höttur taka þátt í 32-
liða úrslitunum. Höttur mætir Kára
á Akranesi. Höttur sló út Huginn frá
Seyðisfirði með 3-0 sigri á heimavelli.
Mæta ÍBV á 1. maí
Bjartur og félagar í Einherja kljást við
Bikarmeistarana þann 1.maí. Mynd: z&S
Baðstaður við Urriðavatn á
Fljótsdalshéraði verður opn-
aður í júní 2019 ef allt gengur
að óskum. Vonast er til að tugir þús-
unda gesta sæki staðinn árlega sem
efla muni atvinnulíf á Fljótsdalshéraði.
Verkefnið hlaut heitið „Vök Baths“
og var kynnt á dögunum. Heitið er
sótt í vakir sem mynduðust á Urriða-
vatni sem urðu tilefni í þjóðsögur og
síðar þess að látið var á það reyna að
bora þar eftir heitu vatni á svæði sem
áður var talið kalt með góðum árangri.
Ívar Ingimarsson, Hilmar Gunn-
laugsson og Hafliði Hafliðason hafa
farið fyrir verkefninu fyrir hönd
heimamanna þótt hugmyndin hafi
upphaflega orðið til hjá Hitaveitu
Egilsstaða og Fella sem nýtir Urriða-
vatnssvæðið. Teikningar að baðhúsi
Vakar voru kynntar á dögunum en
sömu arkitektar eru að baki henni og
Bláa lóninu. Gert er ráð fyrir að nota
efni af svæðinu, panel innan úr Fljóts-
dal og einingar frá verksmiðju VHE í
Fellabæ.
Stórir hluthafar úr ferða-
iðnaðinum
Tæp tvö ár eru síðan Jarðböðin í Mý-
vatnssveit, sem að hluta eru í eigu Bláa
lónsins, komu inn sem hluthafar að
verkefninu. Eftir það fóru hjólin að
snúast en um leið var baðstaðurinn
hannaður upp á nýtt. Gert er ráð fyrir
að aðalbaðhúsið sjálft verði hulið með
torfi og falli þannig inn í landslagið.
Út frá því ganga síðan nokkrar laugar,
eða vakir. Húsið sjálf verður tvískipt,
annars vegar baðsvæði og búnings-
klefar, hins vegar veitingasal þar sem
afurðir af svæðinu verði í fyrirrúmi.
Þá er unnið með hugmyndir um að
gestir geti sjálfir blandað 75 gráðu
heitu vatninu út í mat sinn.
Framkvæmd upp á milljarð
Steingrímur Birgisson frá Jarðböð-
unum við Mývatn segir að áætlað-
ur heildarkostnaður verkefnisins sé
talinn slaga upp í einn milljarð króna.
Þess er vænst að 50 þúsund gestir sæki
staðinn fyrsta heila árið í rekstri og til
verði 10 ný störf. Talsmenn verkefn-
isins lögðu í dag áherslu á að mesti
ávinningurinn fælist í afleiddum störf-
um á svæðinu. Heiður Vigfúsdóttir,
framkvæmdastjóri verkefnisins sagði í
viðtali við Austurfrétt að margföldun-
aráhrifin, afleiddu störfin og tækifærin
sem koma í kjölfarið myndu gera mikið
fyrir samfélagið. Grímur Sæmundsen,
framkvæmdastjóri Bláa lónsins, sagðist
trúa að baðhús Vakar myndi gera Aust-
urland að enn áhugaverðari áfanga-
stað en verkefnið hefur verið í gerjun
í meira en áratug. Hilmar Gunnlaugs-
son sagði á fundinum að verkefnið
hefði tekið lengri tíma en vonast var til
í fyrstu því fjárfestar hefðu verið tregir
til og álitið Austurland svæði sem ekki
gæfi góða ávöxtun.
VÖK – Ylströndin
verður opnuð
þarnæsta sumar
Listamaður List án landamæra
2018 Aron Kale opnar einka-
sýningu á verkum sínum á
Skriðuklaustri í Gallerý Klaustri
sunnudaginn 6. maí kl 14:00.
Aron Kale er fæddur í Reykja-
vík þann 21. Júlí 1989. Hann vinnur
málverk og blýantsteikningar. Mann-
eskjan og tilveran eru honum oft
hugleikin í verkum sínum og notar
hann myndlistina sem nokkurskon-
ar úrvinnslu á hversdeginum. Aron
stundaði nám við starfsbraut Mennta-
skólans á Egilsstöðum og útskrifaðist
þaðan 2012. Hann hefur verið mjög
virkur þátttakandi í List án landamæra
á Fljótsdalshéraði allt frá árinu 2011
og hefur tekið þátt í fjölda samsýninga
ásamt því að halda margar einkasýn-
ingar. Hann hefur tekið þátt í Lunga
á Seyðisfirði og sýnt á samsýningu í
Reykjavík.
Sýning á Skirðuklaustri opnar
sunnudaginn 6. maí kl. 14:00 og er
opin til 31. maí. Hún er opin daglega
frá 11 til 17.
Aron opnar á
Skriðuklaustri