Læknablaðið : fylgirit - 07.03.2014, Side 2
LÆKNAblaðið 2014/100 FYLGIRIT 77 3
Læknablaðið
the iceLandic medicaL journaL
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104 – 564 4106
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir er
ábyrgðarmaður efnis í þessu fylgiriti.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Myndin Svifið vængjum þöndum
er á forsíðu fylgiritsins. Hana tók
starfsmaður bráðasviðs, Rudolf
Adolfsson hjúkrunarfræðingur í
áfallarhjálparteyminu og vann hún fyrstu
verðlaun í ljósmyndakeppni Landspítala.
Upplag 200
Prentun: Prenttækni ehf.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir)
í eftirtalda gagnagrunna: Medline
(National Library of Medicine), Science
Citation Index (SciSearch), Journal
Citation Reports/Science Edition og
Scopus.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0254-1394
Ávarp
Á strjálbýlu landi eins og Íslandi getur verið langt í lífsnauðsynlega sérfræði-
þjónustu þegar slys eða alvarleg veikindi koma upp. Flutningar bráðveikra og
slasaðra eru því mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins. Lögum sam-
kvæmt eiga allir landsmenn að eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem
á hverjum tíma eru tök á að veita. Þegar nauðsyn krefur meðferðar sjúklinga sem
einungis er að finna á sérhæfðum sjúkrahúsum getur þurft að flytja sjúklinga um
langan veg, ýmist á landi eða í lofti. Samkvæmt skilgreiningu eru sérhæfð sjúkra-
hús aðeins í Reykjavík og á Akureyri. Landspítalinn, aðalsjúkrahús landsins,
tekur á móti um 100.000 bráðum komum sjúklinga á ári, sjúklinga hvaðanæva
af landinu. Starfsemi sérhæfðu sjúkrahúsanna snertir alla landsmenn og það er
hagsmunamál landsmanna að aðkoma þangað sé greið og þar sé ávallt hágæða-
þjónusta í boði.
Eitt af lykilatriðum við góða og hagkvæma heilbrigðisþjónustu er framþróun
þekkingar og rannsóknir sem liggja til grundvallar henni. Rannsóknir stuðla að
betri greiningu á þjónustunni, gefa vísbendingar um árangur hennar og svörun
við þörfum sjúklinga. Með því móti leggja rannsóknir grunn að þróun starfsemi
og auknum gæðum. Þema Bráðadagsins 2014, „þegar á reynir“ beinir athyglinni
ekki aðeins að starfsemi bráðasviðs Landspítala heldur einnig að samvinnu,
utanspítalaþjónustu og flutningi sjúklinga. Undibúningsnefndin óskaði eftir rann-
sóknum og kynningum á verkefnum tengdum þema dagsins. Eftir ritrýni voru
17 ágrip tekin til birtingar. Valin ágrip voru talin sýna fjölbreytta og þverfaglega
nálgun að bráðafræðum. Í þeim endurspeglast einnig mikilvægt samstarf bráða-
sviðs Landspítala við fjölmargar aðrar stofnanir og aðila í samfélaginu.
Undirbúningsnefndin kynnir með stolti dagskrá og ágrip erinda Bráðadagsins
2014. Von okkar er að efni þessa fylgirits Læknablaðsins efli áhuga og hvetji til enn
frekari rannsókna í bráðafræðum á Íslandi.
Við færum þeim sem sendu inn ágrip, styrktaraðilum, fundarstjórum og starfs-
fólki bráðasviðs bestu þakkir fyrir þeirra framlag til Bráðadagsins 2014.
Fyrir hönd undirbúningsnefndar,
Dr. Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
lektor og verkefnastjóri rannsóknarstofu
Landspítala og Háskóla Íslands í bráðafræðum