Íslensk bókatíðindi - 01.12.1974, Side 3
Fylgt úr hlaði
Svo sem mönnum er kunnugt, birtist reglulega
I Árbók Landsbókasafns skrá um íslenzk rit
eins árs í senn. Á þessu hefur þó veriö sá galli,
að um langt árabil hefur ekki reynzt unnt að
birta skrá um rit undanfarandi árs, heldur árs-
ins þar áður, svo að liðið hefur talsvert á ann-
að ár frá því er ritin komu út, unz birt var á
prenti allsherjarskrá um þau.
Bókaskrá Bóksalafélags íslands hefur þarna
að nokkru brúað bilið, þar sem í henni er tal-
inn allur þorri þeirra bóka fyrra árs, er á mark-
að fóru.
Landsbókasafn hefur hin síðustu ár lagt Bók-
salafélaginu alldrjúgt lið við samningu um-
ræddrar skrár, en nú er skrefið stigið til fulls,
þannig að skrá sú um íslenzk rit 1974, er hér
birtist, er algerlega samin í þjóðdeild Lands-
bókasafns í umsjá Ólafs Pálmasonar deildar-
stjóra og gefin út á vegum safnsins.
Bókabúð Máls og menningar og Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar hafa léð eintök til
skráningar, jafnóðum og út komu, en síðar er
ætlunin, að Bóksalafélag íslands leggi safninu
til eitt eintak hverrar bókar, er á markað fer, og
þá I þeim búningi, er hún ber. Verða bækurnar
síðan varðveittar þannig í Landsbókasafni, en
þau rit, er safnið fær samkvæmt prentskilalög-
um, eru óbundin, og stuðlar Bóksalafélagið á
þennan hátt að því, að búningur ritanna varð-
veitist ekki síður en ritin sjálf.
Bókaskráin í þessu hefti verður siðan stofn í
þeirri allsherjarskrá um íslenzk rit ársins 1974,
er væntanlega verður gefin út sérstök á næsta
ári. Breytingar eru ýmsar frá því, sem tíðkazt
hefur í Árbók Landsbókasafns, og uppsetning
hefur verið löguð að alþjóðlegum reglum, en
hún auðveldar jafnframt samantekningu einnar
skrár um rit ákveðins árafjölda, hvort sem það
verður t. a. m. fimm ára skrá eða hún tekur yfir
lengra árabil.
Það er allra hagur, að sem fullkomnastar skrár
um íslenzk rit geti komið út sem greiðast, en
til þess að svo megi verða, þurfa allir, sem að
þessum málum starfa, að leggjast á eitt.
Ég fagna þeirri samvinnu, sem hér hefur tekizt,
og þakka þeim, er unnið hafa að gerð þessa
fyrsta heftis.
Finnbogi Guðmundsson
Nokkur þáttaskil eru nú í störfum Bóksalafélags
islands. Félagið hefur gefið út Bókaskrá sína
allt frá árinu 1937 og ætíð undir ritstjórn Stef-
áns Stefánssonar. Hann hefur rækt störf sín af
mikilli prýði og umhyggju fyrir framgangi bóka-
útgáfunnar í landinu. Heilsa Stefáns leyfir hon-
um ekki að annast ritstjórnina lengur, og hafa
mál skipast á þann veg, að Landsbókasafn ís-
lands gefur í staðinn út og héðan í frá islenska
bókaskrá. Við þessi tímamót vil ég flytja Stef-
áni Stefánssyni sérstakar þakkir íslenskra
bókaútgefenda og árna honum allra heilla.
Landsbókasafnið hefur á síðustu árum veitt
Bóksalafélaginu talsverða aðstoð við útgáfu
Bókaskrárinnar, og það verður að teljast eðli-
leg framvinda mála, að safnið taki að sér út-
gáfu slíkrar skrár. Enginn annar íslenskur aðili
hefur betri aðstöðu til þess. Það er bókaútgef-
endum því fagnaðarefni, að Landsbókasafnið
sjái um þennan þátt framvegis.
Til þess að auðvelda safninu skráninguna og
gera hana fljótvirkari er ætlunin, að bókaútgef-
endur afhendi safninu eitt innbundið eintak af
hverri bók, sem þeir gefa út, og jafnóðum og
þær koma út. Með því móti munu bækur einnig
varðveitast hjá Landsbókasafni í upprunalegri
mynd en áður hefur verið.
Landsbókasafn íslands og Bóksalafélag íslands
hafa einnig komið sér saman um það, að Is-
lensk bókatíðindi, er félagið hyggst gefa út og
birtast hér í fyrsta skipti, fylgi jafnan islenskri
bókaskrá Landsbókasafnsins, en þau geta einn-
ig komið út þess á milli, ef nauðsyn ber til. Ætl-
unin er, að þessi tíðindi flytji ýmsar upplýsingar,
sem félagið vill koma á framfæri við almenn-
ing, auk auglýsinga frá útgefendum og fyrir-
tækjum innan bókaiðnaðarins.
Islenskir bókaútgefendur vænta góðs af auknu
samstarfi við Landsbókasafn islands.
Örlygur Hálfdanarson
ÍSLENSK BÓKATÍÐINDI
ÚTGEFANDI: BÓKSALAFÉLAG ÍSLANDS
Vesturgötu 42 — Slmi 25722
Ritstjóri: Gisli Ólafsson