Íslensk bókatíðindi - 01.12.1974, Síða 27
Ógnirnar hófust svo hægt, að
þau hefðu getað gleymt þeim.
Hávaði í herbergi Regan, und-
arleg lykt, húsgögn á röngum
stað, ískuldi.
Sjúkdómseinkenni stúlkunnar
urðu sífellt hræðilegri. Það
var eins og nýr persónuleiki
hefði tekið sér bólfestu i henni.
Andrúmsloftið á heimilihu var
þrungið illsku. í örvæntingu
sinni sneri móðir Regan sér
til jesúítaprests, sem jafnframt
var geðlæknir og fróður um
djöfladýrkun. Mátti lækna sjúk-
dóminn með særingum?
Jesúítapresturinn streittist gegn
hugmyndinni. En loks var um
lif og dauða Regan að tefla.
Og þá féllst kirkjan á að beita
særingum.
Djörfustu reyfarahöfundar ættu
erfitt með að láta söguhetjur
sinar lenda í slíkum ævintýrum
og Jörundur hundadagakon-
ungur lýsir í sjálfsævisögu
sinni. Samt vitum við úr öðr-
um heimildum, að frásögn
hans er rétt í höfuðatriðum.
Stjórnarbylting Jörundar á ís-
landi var aðeins hápunktur
furðulegrar lífsreynslu hans.
Hann hafði áður verið sjómað-
ur og skipstjóri og flækst um
heimsins höf. Hingað til hafa
menn lítið vitað um feril hans
eftir að hann var fluttur fang-
inn frá íslandi og hafa fyrir
satt, að hann hafi fljótlega lát-
ist sem fangi í Ástraliu. En það
er ekki einu sinni hálfur sann-
leikurinn.
5éra
Róbert
Sennilega eru þeir fáir íslend-
ingarnir, sem ekki hafa heyrt
séra Róberts Jack getið, svo
mjög hefur hann orðið nafn-
togaður. Sögu hans þekkja þó
færri, sögu unga stórborgarbú-
ans sem „strandaði" á íslandi,
þegar þjóðum heims laust
saman í heimsstyrjöld. Ungi
pilturinn var á heimleið frá
knattspyrnuþjálfun í Vest-
mannaeyjum, og notaði sér
timann hér og gekk í guð-
fræðideild Háskóla islands.
i bókinni kynnist lesandinn
merkilegu ævintýri merkilegri
ævi, manni sem hafnar að taka
við blómlegu fyrirtæki föður
síns, en þjónar heldur guði
sínum hjá fámennum söfnuð-
um uppi á íslandi.
Hilmirht
Hvers vegna -
Vegna þess að hjá okkur færðu prentun alls konar,
frá nafnspjaldi til bóka og tímarita
Offsetprentun — Litmyndaprentun
Prentum einnig samfelld eyðublöð fyrir allar gerðir
skýrsluvéla og bókhaldsvéla
Bókband — Pappírssala
PRENTSMIÐJAN EDDA HF.
Lindargötu 9A — Reykjavik — Sími 26020 (4 línur)