Íslensk bókatíðindi - 10.12.1983, Page 2

Íslensk bókatíðindi - 10.12.1983, Page 2
2 MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER Aadardráttur maimiif'sins ANDARDRÁTTUR MANNLÍFSINS Gamlar sögur og nýjar. Fimmta bindi ritsafns Ein- ars Kristjánssonar frá Hermundarfelli. Nokkrar teikningar eru í bókinni. 168 bls. Útgefandi Skjald- borg. Verð kr. 679,-. BEOIO EFTIR STRÆTÓ eftir Pál Pálsson. Saga um ungt nútímafólk — fyrir ungt nútímafólk. Sögusvið- iö er Hlemmur þar sem unglingar ráfa um í svikul- um sæluheimi vímugjafa. I fjörlegri frásögn vekur höf- undur máls á staðreyndum sem ekki er hægt aö loka augum og eyrum fyrir. Út- gefandi er Iðunn. Verð kr. 398,-. RIT III — BENEDIKT GRÖNDAL j þessu lokabindi rita Gröndals er ævisaga hans, „Dægradvör og ritgerðin „Reykjavík um aldamótin 1900“. „Dægradvöl“ er eitt merkasta bókmenntaverk sinnar tíðar og fyrir löngu taliö til sígildra bók- mennta. „Reykjavík um aldamótin 1900“ geymir ýmsan fróöleik um mannlíf í Reykjavík undir lok 19. aldarinnar og er eitt hið skemmtilegasta sem Grön- dal skrifaöi á efri árum. 463 bls. Útgefandi Skugg- sjá. Verö kr. 769,60. DALALÍF II Skáldsaga eftir Guðrúnu frá Lundi. AB er aö gefa út þessa merkilegu og geysi- vinsælu skáldsögu í 3 bindum. Síðasta bindið kemur út næsta ár. 583 bls. Útgefandi er Almenna bókafélagiö. Verð kr. 852,15. DREKAR OG SMÁFUGLAR Þriðja bindið í sagnabálki Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar, framhald af Gang- virkinu og Seiði og hólog- um. Einn örlagaríkasti tími í þjóðarsögunni er hér magnaður fram í dagsbirt- una í andstæöum fortíðar og nútíöar, þjóöhollustu og þjóösvika. 599 bls. Mál og menning gefur út. Verö kr. 883,-. Ji \ M.; .... Uóm “f'■ jkáuíma § “M # Jíkúlajw , knn_ W." oáíhntja & # 4 EITT RÓTSLITIÐ BLÓM eftir Valgarð Stefánsson myndlistsrmann. Þetta er söguleg skáldsaga um Skúla Skúlason hinn oddhaga, fyrsta Islending- inn sem Alþingi veitti myndlistarstyrk. 168 bls. Útgefandi Skjaldborg. Verð kr. 679,-. FORLAGAFLÆKJA Höfundur ísól Karlsdóttir og er þetta hennar fyrsta bók. Þetta er ótrúlega spennandi saga, þar sem forlögin spinna sinn flókna vef. 160 bls. Útgefandi Skjaldborg. Verð kr. 593,-. INGA Opinská lífsreynslusaga ungrar stúlku. Sagan gerist í sjávarplássi á Suðurlandi og í Reykjavík. Fyrsta bók ungs höfundar, Birgittu H. Halldórsdóttur, sem vafa- laust á eftir að vekja mikla athygli. 192 bls. Útgefandi Skjaldborg. Verð kr. 593,-. JAKOBSGLÍMAN Þriðja bindi uppvaxtar- sögu Sigurðar A. Magnús- sonar, framhaldiö af Undir kalstjörnu og Möskvum morgundagsins. Sagan nær yfir þrjú átakaár í lífi söguhetju þegar hann reynir að komast til mennta og ná fótfestu í KFUM. Næm lýsing á við- kvæmu skeiði. 260 bls. Mál og menning gefur út. Verð kr. 648,-. KALLAÐUR HEIM Skáldsaga eftir Agnar Þórðarson. Hún gerist í Vestmannaeyjagosinu 1973. Sþennandi saga um náttúruhamfarir, tilfinn- ingar og ástamál. 217 bls. Útgefandi er Almenna bókafélagið. Verð kr. 679,50. iðum KYRR KJÖR eftir Þórarin Eldjárn. Fyrsta skaldsaga Þórarins mun ekki valda hinum stóra lesendahóþi hans vonbrigðum. Saga farlama skálds sem hvergi er frjáls nema í draumum sínum og skáldskap. En í eymdinni lifir draumurinn um frelsiö og tekur á sig margvíslegar myndir í hugum þess sem ekki unir kyrrum kjörum. Bókmenntaviöburður, vönduð saga og áhrifarík. 151 bls. Útgefandi er Ið- unn. Verð kr. 648,40. SAGAN UM ÖNNU eftir Stefaníu Þorgríms- dóttur. Glæsileg frumraun ungs höfundar. Sagan um Önnu litlu á Selsmýri sem fór út í heim, fann sér pilt og rataði aftur heim í sveit- ina á ný. En haföi þá næst- um farið sveitavillt því að hreppurinn hennar hafði fengið sér andlitslyftingu. Fjörug og lifandi frásögn og yfir sögunni vakir draumur ungrar stúlku um að finna tilganginn með lífi sínu. Útgefandi er Iðunn. Verð kr. 548,35 ib./385,30 kilja. X | Sigurður Á- Friðþjófeson { Sjö fréttír * SJÖ FRÉTTIR Hér eru á ferðinni sjö smásögur eftir Sigurð Á. Friðþjófsson. Þær fjalla um mannskepnuna viö hin- ar ólíkustu aöstæöur. Léttleikandi og hugmynda- ríkur stíll þessarar fjórðu bókar hins unga höfundar vekur sérstaka athygli. 104 bls. Útgefandi er Svart á hvítu. Verð kr. 444,60.

x

Íslensk bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.