Íslensk bókatíðindi - 10.12.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAPID, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER
7
ur ferðalag um Spán nút-
ímans og hendir margt
skemmtilegt og fyndiö í
þeirri för. 225 bls. Útgef-
andi er Almenna bókafé-
lagið. Verð kr. 648,50.
agatha christie
MORÐ ER LEIKUR EINN
Fyrsta bindið í flokki bóka
eftir Agðthu Christie, einn
víðlesnasta höfundinn í
sinni grein. Flestar bækur
Agöthu eru orönar sígildar
og svo er með þessa.
Óvæntur endir kemur les-
andanum í opna skjöldu.
Þýðandi Magnús Rafns-
son. Bókin er 207 bls. út-
gefandi er Hagall. Verö
385,-.
NJÓSNAHRINGURINN
Ný spennusaga eftir
bandaríska rithöfundinn
Duncan Kyle. Hrikaleg eft-
irför á þyr'u og fallbyssu-
báti við Shetlandseyjar.
Blaöamaöur með rúss-
neska míkrófilmu, eltur af
KGB og CIA. Nútíma
njósnasaga eftir meistara-
höfund spennusagna. Bók-
in er 191 bls. Útgefandi er
Hörpuútgáfan. Verð kr.
494,-.
Howard
Fast KYNSLOÐ
INNFLYTJENDANNA
NÆSTA KYNSLÓD
INNFLYT JENDANNA
eftir Howard Fast. Þessi
bók kemur í framhaldi af
bókinni Innflytjendurnir er
kom út í fyrra um ítölsku
innflytjendurna í Kaliforníu.
476 bls. Verð kr. 796,60.
Útgefandi er Ægisútgáfan
— Bókhlaðan.
OG SAGÐI EKKI EITT
EINASTA ORÐ
Viðfangsefnið í flestum
bókum þýska nóbel-
skáldsins Heinrich Bðil er
mannlíf í örbirgð og upp-
gjöf í Þýskalandi á árunum
eftir seinni heimsstyrjöld-
ina og svo er einnig hér, en
umfjöllunin er kærleiksrík.
Fyrsta skáldsagan sem
kemur út eftir hann á ís-
lensku. Böðvar Guö-
mundsson þýddi. 151 bls.
Mál og menning gefur út.
Verð kr. 583,-.
ÓVÆNT ENDALOK
eftir Mary Stewart. Jenni-
fer er komin í sumarleyfi í
Pyreneafjöllum og hyggst
njóta lífsins, fjarri skarkala
heimsins. Hún býst við að
hitta frænku sína en grípur
í tómt. Frænkan er horfin
og sagt að hún sé látin. En
Jennifer skynjar að ekki
muni allt með felldu um ör-
lög hennar . .. Enn ein
rómantísk og spennandi
saga þessa snjalla höfund-
ar. Útgefandi er Iðunn. 183
bls. Verð kr. 548,35.
RAMÓNA
eftir Helen Hunt Jackson.
Sagan fjallar um viðskipti
hvíta mannsins við indíána,
en þó fyrst og fremst um
hina fögru Ramónu, ástir
hennar og örlög. 185 bls.
Útgefandi Sögusafn heim-
ilanna. Verð kr. 494,-.
Rááyiáíllumöndum
RÁÐ VID ILLUM ÖNDUM
í þessu sjðunda bindi í rit-
safni William Heinesens í
þýöingu Þorgeirs Þor-
geirssonar er fyrst stutt
skáldsaga og síðan Ijóð-
rænar endurminningar og
smásögur, allar frá Færeyj-
um nema ein sem gerist í
Frakklandi. Zacharias
Heinesen myndskreytti.
233 bls. Mál og menning
gefur út. Verð kr. 648,-.
RÉTTARHÖLDIN
eftir Franz Kafka. Ein
frægasta skáldsaga heims-
bókmenntanna í þýðingu
Ástráös Eysteinssonar og
Eysteins Þorvaldssonar,
gefin út í tilefni af aldar-
afmæli höfundar. Fá
skáldrit hafa haft eins mikil
áhrif á skáldsagnagerö
Franz Kafka
Réttarhöldín
Vesturlanda og Réttar-
höldin. Verk þetta geymir
ótæmandi sannleika um líf
nútímamannsins og sam-
félag okkar daga. Bókin er
293 bls. Útgefandi Menn-
ingarsjóður. Verð kr. 649,-.
ALEJO CARPENTTER
AFÞESSUM
HEIMI
RIKI AF ÞESSUM HEIMI
eftir Alejo Carpentier.
Saga eftir mesta rithöfund
Kúbu og byggir á sönnum
atburðum, þrælauppreisn
á Haítí á 18. öld. Hún er þó
ekki söguleg skáldsaga í
venjulegum skilningi öllu
heldur áleitin sannleikur
um líf og andlegt ástand
þjóða. Guðbergur Bergs-
son þýddi bókina og ritar
ítarlegan eftirmála um höf-
undinn og baksvið verks-
ins. Útgefandi er Iðunn.
139 bls. Verð kr. 548,35.
(Sartland
Scgðu já,
Samantha
SEGDU JÁ, SAMANTHA
eftir Barböru Cartland.
Samantha var ung og sak-
laus og gædd sérstakri
fegurð og yndisþokka. Þaö
var eins og græn augu
I hennar hefðu aö geyma
alla leyndardóma veraldar.
Sjálf áttaði Samantha sig
ekki á því fyrr en hún hitti
David Durham og varð ást-
fangin af honum, að hún
var aðeins fáfróð og
óreynd lítil stúlka, en ekki
sú lífsreynda sýningar-
stúlka, sem myndir birtust
af á síöum tízkublaðanna.
176 bls. Útgefandi Skugg-
sjá. Verð kr. 494,-.
SKÆRULIÐARNIR
eftir Alistair MacLean.
Meistari spennusögunnar
bregst ekki lesendum sín-
um nú frekar en fyrri dag-
inn. Skæruliðarnir eru hin-
ar frægu liðssveitir Títós í
Júgóslavíu á stríðsárunum.
Þeir berjast við sameinaða
andstæðinga úr öllum átt-
um og nasistar eru með
áform um hvernig megi
gersigra þá ... Útgefandi
er Iðunn. 206 bls. Verð kr.
548,35.
SMÁFUGLAR
eftir Anais Nin Safaríkar
gleöisögur eftir höfund Un-
aðsreits sem kom út í
fyrra. Hér er kynnautn
kvenna lýst af mikilli list og
hispursleysi. Smáfuglarnir
flögra um leyndustu afkima
i húsi ástarnautnarinnar og
sögurnar eru gæddar til-
finningahita sem lyftir þeim
hátt yfir aðrar erótískar
sögur. Útgefandi er Iðunn.
134 bls. Verð kr. 548,35
ib./428,55 kilja.