Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Page 14

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Page 14
KYNNING Alþýðuflokkurinn - ý~\ Jafnaðarmanna- íj flokkur íslands " Stofnaður 21. mars pj 1916 sem I ~| stjórnmálaarmur Q Alþýðusambands íslands. 'jú Formaður: Jón Ph Baldvin '"L| Hannibalsson, frá 1983. Varaformaður: Guðmundur Ámi Stefánsson. Formaður Þingflokks Alþýðuflokksins er Sigbjöm Gunnarsson Framkvæmdastjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson. Fylgi Alþýðuflokksins í síðustu Alþingiskosningum.var 15,5% og fékk hann 10 þingmerm.kjöma. Alþýðuflokkurinn - ^ Jafnaðarmanna- Oflokkur Islands er til húsa í /L, Alþýðuhúsinu í r7\ Reykjavík, Hverfisgötu 8-10, 'j 101 Reykjavík. p Nánari upplýsingar p ^ má fá með því að i—>. hringja í síma 55- H-' 29244, senda fax í númer 562-9155 eða senda tölvupóst á Intemetinu í netfang: baldstef@centmm.is Ungir Jafnaðarmenn hafa aðstöðu í sama símanúmeri. Framkvæmdastjóri þeirra er Baldur Stefánsson og harm er í hópi fjölda imgra Jafnaðarmanna sem veita fúslega allar upplýsingar og svör við fyrirspumum. Alþýðuflokkurinn Alþýðuflokkurinn er lýðræðislegur jafnaðarmannaflokkur, sams konar og norrænir sósíaldemókrataflokkar. Úr heitinu demókrati (lýðræði) er gælunafnið „krati" komið. Alþýðuflokkurinn á aðild að Alþjóðasambandi jafnaðarmannaflokka ásamt bræðraflokkunum á Norðurlöndum, breska Verkamannaflokknum ogflokkum sósíaldemókrata í Frakklandi, Þýskalandi, Spáni og víðar um allan heim. Hver flokkur hefur þó eigin stefnumótun um viðfangsefni heima fyrir og er aðeins háður eigin ákvörðunum. Flokkurinn berst fyrir jafnvægi í ríkisbúskap, fyrir frjálsum viðskiptum og markaðsbúskap. Hann telur stöðugleika og heilbrigt efnahagslíf vera forsendu fyrir velferð almennings. pitcÚUtClitt&é Alþýðuflokkurinn vill stöndugt atvinnulíf, sem stendur á eigin fótum. Hann er andvígur velferðarkerfi atvinnugreinanna, sem byggir á ríkisaðstoð og skattlagningu þegnanna til stuðnings atvinnugreinum, sem standast ekki markaðsum- hverfi. Með nýsköpun og endurnýjun telur hann fært að nýta hina miklu menntun þjóðarinnar til verðmætra og vel greiðandi starfa. Hann vill m.a. nýta erlenda fjárfestingu til þess að ná þessu markmiði. Saga flokksins hefur verið saga baráttunnar fyrir bættum kjömm og félagslegum réttindum alls almennings í landinu. Uppbygging hins íslenska velferðarkerfis hefur fyrst og fremst verið verk Alþýðuflokksins. Hann hefur hins vegar ekki verið verkfæri hagsmunahópa, síst af öllu hinna fjársterku. Alþýðuflokkurinn hefur alla tíð stutt samband og samstarf við nágrannaþjóðir. Ávinningur af aðild að EFTA, sem Alþýðuflokkurirm beitti sér fyrir er einn helsti vaxtarsproti nýs efnahagsbata sem er í augsýn. í eðlilegu framhaldi af þessu vill Alþýðuflokkurinn láta hefja samningaviðræður um aðild að Evrópusambandinu. Meginmarkmið í slíkum viðræðum yrði sú krafa að íslendingar héldu fullu forræði yfir auðlindum hafsins við landið. Flokkurinn telur ísland eiga helst samleið með hinum evrópsku þjóðum, bæði í menningarlegu og efnahagslegu tilliti. *^éctCitC&b(A(tt&é Ráðherrar Alþýðuflokksins hafa farið með stjóm húsnæðismála undangengin tvö kjörtímabil með góðum árangri. Eftir er að leysa vanda þeirra húsbyggjenda sem átt hafa í greiðsluerfiðleikum sem hlutust af erfiðri tíð, bæði hér heima og í viðskiptalöndum okkar. Alþýðuflokkurinn hyggst leysa þann vanda en slá honum ekki á frest með sífelldum skuldbreytingum. 'TtficCUtt&Ctt&t/ Unga kynslóðin er hin best menntaða í sögu þjóðarinnar, en hennar bíða ekki í sama mæli störf við hæfi. Flokkurinn vill meiri fjölbreytileika í skólakerfið þannig að ekki verði allir steyptir í sama mót. Flokkurinn telur rétt að auka og efla starfstengt nám. Þrátt fyrir að Alþýðuflokkurinn telji aðhaldsaðgerðir í opinberum útgjöldum forgangsverkefni til að leysa næstu kynslóð úr fjötmm fortíðarskulda, þá telur hann rétt að gera útgjöld til menntamála að forgangsverkefni. Timétvenfatotuít Mengunin spyr ekki um landamæri. Baráttan fyrir hreinsun og varðveislu umhverfis okkar er ekki einkamál þjóðanna heldur samstarfsverkefni þeirra. Hin mörgu, brýnu og stóm viðfangsefni á því sviði sanna þá skoðun Alþýðuflokksins, að í nánu samstarfi Evrópuþjóða munum við ná mestum árangri í að bæta og varðveita ásýnd íslands sem hins hreina og ómengaða. ^dt & Stuðla að útflutningi á raforku, endurheimta forræði yfir fiskistofnunum úr höndum sægreifanna og þannig stuðla að ávöxtun auðlindarinnar og að efla fullveldið með því að auka áhrif okkar í samstarfi Evrópuþjóðanna. ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ U N G T FÓLKTAKIÐ AFSTÖÐU

x

Ungt fólk takið afstöðu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.