Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 15

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 15
Framsóknarflokkurinn Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur félagshyggjuflokkur. Hann er miðjuflokkur sem sækir fylgi sitt til allra þjóðfélagshópa. Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á að atvinnuleysinu verði útrýmt. Flokkurinn setur menntamál íöndvegi og lítur á útgjöld til menntamála sem fjárfestingu sem muni skila sér margfalt til baka. Framsóknarflokkurinn hafnar þeirri stefnu aðgerðarleysis sem hefur leitt afsér stöðnun og atvinnuleysi á Islandi síðustu fjögur árin. Skuldabyrði er orðið eitt alvarlegasta vandamál heimilanna og á þvíað vandamáli vill Framsóknarflokkurinn taka. Hagstjórn Framsóknarflokksins mun miðast að því að halda verðbólgu í skefjum, jafna sveiflur í þjóðarbúskapnum og halda raungengi krónunnar stöðugu. Einungis þannig geta nýir útflutningsatvinnuvegir dafnað við hlið þróttmikils sjávarútvegs. í kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins er að finna leiðir til að efla atvinnulífið á íslandi og auka hagvöxt um 2,5 - 3% á ári. Þannig verður halla ríkissjóðs eytt. Það er forgangsverkefni að bregðast við því atvinnuleysi sem núverandi ríkisstjórn skilur eftir sig. Aukin atvinnutækifæri felast í því að draga úr innflutningi með því að auka innanlandsframleiðslu og auka útflutning á vörum, þjónustu og hugviti. Framsóknarflokkurinn vill efla verðmætasköpun innanlands með fullvinnslu afurða. ^^&t^^#2#^Framsóknarflokkurinn mun koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot íslenskra heimila sem nú blasir við, komist flokkurinn í ríkisstjórn eftir komandi kosningar. Ef ekkert verður að gert munu þúsundir fjölskyldna standa uppi heimilislausar. Leið Framsóknarflokksins felst í skuldbreytingu heimilanna, eflingu atvinnulífs og kjarasamningum sem hafi lífskjarajöfnun og framsækna atvinnustefnu að markmiði. Þannig verður hægt að koma í veg fyrir gjaldþrot heimilanna í landinu. Framsóknarflokkurinn hafnar aðild að Evrópusambandinu miðað við núverandi aðstæður. Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB útilokar aðild íslands að sambandinu. Flokkurinn samþykkir ekki framsal á yfirráðum yfir auðlindum sjávar. Flokkurinn telur að stórauka eigi þátttöku utanríkisþjónustunnar í viðskiptum og að sendiráðum verði beitt af fullum krafti í þágu íslenskrar útflutningsframleiðslu. 'ítyú&ficzb i&mát Hlutverk Húsnæðisstofnunar sem ráðgjafastofnunar verði stóraukið og stofnunin geti komið þeim til hjálpar sem ekki standa í skilum við húsnæðiskaup. Flokkurinn vil treysta stöðu félagslega íbúðakerfisins með ýmsum úrbótum til að það geti sinnt hlutverki sínu. ’TfCefuttamát Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á rétt allra til að stunda framhaldsnám án tillits til efnahags og búsetu. Flokkurinn berst gegn þeirri stefnu núverandi ríkisstjómar að gera nám að forréttindum þeirra efnameiri. Flokkurinn lýsir stuðningi við aukið framlag til Háskóla íslands og andstöðu við gildandi lög um LÍN og leggur m.a. áherslu á að teknar verði að nýju upp mánaðargreiðslur til lánþega. VWHvU/eKÍtAftt&t Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á að verndun umhverfis og sjálfbær próun er skilyrði fyrir farsælli framtíð þjóðarinnar. Ábyrgð í náttúru- verndarmálum á að færa heim í héruð því þannig verður best virkjaður hinn mikli áhugi landsmanna á náttúmvemd. Þá verður að auka fræðslu í umhverfismálum. 'P Framsóknarflokkurinn var stofnaður 1916. Formaður: Halldór Ásgrímsson. (^ Varaformaður: w Guðmundur ,J Bjamason. Q Ritari: Ingibjörg Pálmadóttir. Gjaldkeri: Unnur pH Stefánsdóttir. Vararitari: Drífa Sigfúsdóttir. Varagjaldkeri: Þuríður Jónsdóttir. Formaður þingflokks: Finnur Ingólfsson. Formaður LFK: Kristjana Bergsdóttir Formaður SUF: Guðjón Ólafur Jónsson Flokkurinn fékk 18,9% atkvæða í síðustu kosningum og 13 þingmenn kjöma. Hægt er að nálgast < 0 2 55 > hJ Oh £ upplýsingar inn Framsóknarflokkinn á skrifstofu flokksins í Hafnarstræti 20, 3. hæð. Þar er m.a. hægt að fá stefnuskrá flokksins fyrir komandi kosningar. Viljir þú ganga til liðs við Framsóknarflokkinn getur þú haft samband við flokksskrifstofuna, s.562-4480, eða við fulltrúa í stjóm Sambands ungra framsóknarmanna. Þeir eru: Guðjón Ólafur Jónsson formaður (s. 568-4104), Páll Magnússon varaformaður (s.5542725), Þorlákur Traustason gjaldkeri (s. 581-4432) og Ingibjörg Davíðsdóttir ritstjóri (s.562-3561). f ko Framsóknarflokksins: Endurreis komandi alþingiskosningum verða helstu baráttumál índurreisn heimilinna, útrýming á atvinnuleysi, menntamálin sett í öndvegi og ríkissjóðshalla eytt. ALÞINGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ UNGT FOLKTAKIÐ AFSTÖÐU 15 KYNNING

x

Ungt fólk takið afstöðu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.