Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 17

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 17
Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið er kjölfesta félagshyggjunnar á íslandi. Félagshyggjan leggur áherslu á samhjálp tií að auðvelda einstaklingnum að hafa áhrifá líf sitt ogforða honum frá þvíað vera kjarklaus leiksoppur aðstæðnanna. Félagshyggjan berst einnig gegn þvíað eignarétturinn veiti eigandanum drottnunarvald yfir samborgurum sínum. Þetta sameinar Alþýðubandalagið, í öðrum málaflokkum er nhn fyrir fjölbreyttar skoðanir. SfatáAcujrttttáC Ríkisstjórnin á ekki að bíða eftir því að kreppan lagist af sjálfu sér. Ríkisstjórnin getur stuðlað að hagstæðu efnahagsumhverfi, t.d. með öflugu menntakerfi og nýsköpun og með milligöngu urn samvinnu útflutningsfyrirtækja. Viðvarandi atvinnuleysi er vítahringur. Það skaðar fjárhag hinna atvinnulausu, dregur úr vinnusiðferði, spillir stjórnunarháttum í fyrirtækjum með því að vera kúgunartæki gegn launafólki, eykur útgjöld ríkisins og fækkar skattborgurum. Atvinnuleysi verður að útrýma með því að ríkið láti vinnuaflsfrekar framkvæmdir hafa forgang og með almennum efnahagsbata. jéct&Cp&W&t Á samdráttartímum reynir bæði á velferðarríkið og velferðarþjóðfélagið. Ríkið verður að vinna að þeim þjóðfélagsþáttum sem stuðla að velferð, s.s. atvinnu, menntun, fjölskyldunni og samhjálp. Títuuní&iúmát íslendingar eiga ekki að framselja vald lengra en þörf er á, sérstaklega ekki fyrir óljós og óörugg áhrif. í utanríkismálum eiga þeir frekar að treysta á samningsrétt en kosningarétt. Ríki með jafn einhæfan efnahag og Island verður að vara sig á að lokast ekki inni í tollabandalögum. /éú&uœhi&mát Fólk reynir að koma upp fjölskyldu og tryggja sér öruggt húsnæði á sama æviskeiði. Til að standa vel að fjölskyldumálum verður því að standa vel að húsnæðismálum. Greiðslubyrði verður að jafna sem mest yfir ævina. HteMttawtál Að vinna gegn kreppu með því að skera niður í menntamálum er eins og að lækna blóðleysi með blóðtöku. Strax á næsta kjörtímabili verður að hefja uppbyggingu á öllum stigum menntakerfisins. Ekki má gleymast að vel menntuð verkalýðsstétt er ekki síður mikilvæg en vel menntuð þekkingarstétt. Tdlm&veriffiámát Umhverfisvernd er hvort tveggja; siðferðileg skylda mannkyns og sérstakt hagsmunamál íslendinga. Ferðamannaþjónusta og matvælaiðnaður verða að vera umhverfisvæn ef tryggja á hámarksafrakstur. Umhverfisvænar leiðir verði gerðar hagkvæmar með mengunarsköttum, umhverfisfræðsla verði virk og aðgengileg. Si/t <í (íauyi Setja þarf nýjar áherslur í efnahags-, félags- og stjórnmálum. í stao samkeppni komi atvinna, í stað mismununar komi jöfnuður, í stað spillingar komi siðferði. Hér styður hvað annað; atvinna styður jöfnuð, jöfnuður styður siðferði, siðferði styður atvinnu. D HH w w D Alþýðubandalagið var stofnað árið 1968. Formaður: Olafur Ragnar Grímsson. Varaformaður: Steingrímur J. Sigfússon. Formaður g' Þingflokks: Ragnar pH Arnalds. W Formaður Framkvæmdastjórnar: Sigríður Jóhannesdóttir. Framkvæmdastjóri: Einar Karl Haraldsson í síðustu Alþingiskosningum fékk Alþýðubandalagið 14,2 % atkvæða og 9 Þingmenn; Heimilisfang: p/ Laugavegur 3, 101 > Reykjavík. ÁT Símanúmer: 55- w 17500 2 Stjórnmálafélög ^ ungs fólks: Æskulýðsfylking r Alþýðubandalagsins ^ og Verðandi: Félag ungs alþýðubandalagsfólks og óflokksbundins félagshyggjufólks. (ekki aðildarfélag að alþýðubandalaginu). w w ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ U N G T FOLKTAKIÐ AFSTOÐU KYNNING

x

Ungt fólk takið afstöðu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.