Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Page 18

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Page 18
KYNNING [Vj Þjóðvaki, 1D o E hreyfing fólksins varð til haustið 1994, og samtökin [t] sjálf voru stofnuð í l ] Reykjavík 28. Q janúar 1995. Formaður Þjóðvaka er Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður, Reykjavík, varaformaður Svanfríður Jónasdóttir forseti bæjarstjórnar, Dalvík, og ritari Ágúst Einarsson prófessor, Seltjarnarnesi. Framkvæmdastjóri flokksins er Katrín Theodórsdóttir Þjóðvaki býður fram til þings í fyrsta sinn í kosningunum nú í vor. < 0 z I—I cn / hJ Ph Ph 'P Kosningaskrifstofur Þjóðvaka eru á eftirtöldum stöðum: Reykjavík: Hafnarstræti 7, sími 28100, fax 627060. Hafnarfjörður: Reykjavíkurvegi 62, sími 655740, fax 655742. Akureyri: Brekkugata 6B, sími 96-22103, fax 96-22403. Ollum er velkomið að hringja eða mæta á kosningaskrifstofur flokksins og nálgast þannig frekari upplýsingar. Einnig má fá allar upplýsingar um stefnu og frambjóðendur Þjóðvaka á Internetinu. Þjóðvaki Þjóðvaki berst fyrir jöfnuði í tekju- og eignaskiptingu og vill vinna í nánu samráði við samtök launafólks. Samtökin munu beita sér fyrir öflugri atvinnuuppbyggingu. Þau leggja áherslu á að taka upp heiðarleg vinnubrögð með siðvæðingu í stjórnmálum, stjómsýslu og atvinnulífi. Þjóðvaki vill ábyrga stefnu í ríkisfjármálum, m.a. til að áfram sé hægt að halda uppi öflugu velferðarsamfélagi sem tryggir öryggi fjölskyldnanna í landinu og er að auki forsenda heilbrigðs og skilvirks atvinnulífs. Varðveita þarf efnahagslegan stöðugleika, beita aðhaldi í ríkisfjármálum og efla möguleika atvinnulífsins með endurskipulagningu, aukinni tæknivæðingu og áherslu á markaðssókn erlendis. Launamenn hafa tekið á sig herkostnaðinn af þróun síðustu ára, og árangur sem náðst hefur er í hættu ef launamenn fá ekki að njóta ávaxtanna. I samvinnu við samtök launafólks þarf að gera áætlun um bætt lífskjör almennings í tengslum við meiri hagvöxt, lága verðbólgu og aukna framleiðni. /kvimcmÁl Fyrst og fremst verður nú að leita sóknarfæra og nýsköpunar, auka framleiðni í atvinnulífinu og efla útflutningsgreinar. Þjóðvaki leggur áherslu á að öflugt menntakerfi er undirstaða atvinnusóknar. I sjávarútvegi vill Þjóðvaki staðfesta þjóðareign á fiskimiðunum með afnotagjaldi í áföngum, og setja allan fisk á markað. Sérlega brýnt er að gæta að grundvelli smábátaútgerðar í yfirstandandi sviptingum. Atvinnuleysi er það félagslega vandamál sem nú er brýnast að vinna gegn. I kjaramálum telur Þjóðvaki að opið launakerfi og nýtt starfsmat sé ein af forsendum fyrir kjarajöfnun í samningum og með skattaaðgerðum. Opinber fjölskyldustefna og markvissar aðgerðir til að rétta við fjárhag heimilanna, þar á meðal tekjutengdur persónuafsláttur, gætu skapað grunn að nýrri þjóðarsátt um að efla þjónustu í velferðarkerfinu án þess að auka við það kostnað. jóðvaki telur samningana um EES og GATT mikilvæga hornsteina utanríkisviðskipta á næstu árum. íslendingar eiga nú að fylgjast sem allra best með þróun Evrópusambandsins og meta kosti og galla hugsanlegrar aðildar. Varnarsamninginn við Bandaríkin þarf að endurmeta í samræmi við breytta tíma. Þjóðvaki vill efla SÞ, leggur áherslu á náið norrænt samstarf og vill að þjóðirnar við norðanvert Atlantshaf taki upp náin tengsl um málefni hafsins. Það eru mannréttindi að eiga kost á húsnæði. Þjóðvaki vill áframhaldandi uppbyggingu félagslegs íbúðakerfis, meðal annars með traustum leigumarkaði. Húsbréfakerfið hefur sannað sig, en það verður að treysta betur, m.a. til að koma í veg fyrir þunga greiðslubyrði við skammtímafjármögnun. ‘Tttemfamát Menntunarstig og þekking eru hinar raunverulegu auðlindir framtíðarinnar. Til að framlög til menntamála verði sambærileg við grannþjóðir þarf að hækka þau um helming. Þjóðvaki vill víðtæka áætlun um þessa framtíðarfjárfestingu í menntun. Auka þarf sjálfstæði skólastofnana, bæta menntun og kjör kennara, og gera auknar kröfur til skólastjórnenda. Skerðingu námslána undanfarið verður að bæta í áföngum. 7tmAv&i{fi&mát Þjóðvaki leggur áherslu á stefnu sjálfbærrar þróunar við auðlindanýtingu og stjórnun efnahagsmála þannig að ekki sé í sífellu gengið á rétt næstu kynslóða. Matvælaframleiðsla og ferðaþjónusta, sem verða meginviðfangsefni okkar á næstu öld, byggjast á ómengaðri náttúru. 18 ALÞINGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ U N G T F Ó L K TAKIÐ AFSTÖÐU

x

Ungt fólk takið afstöðu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.