Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 20

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 20
FRÆÐSLA eftirÁgústu ÝrÞorbergsdóttur Megindrættir íslensks stjórnskipulags eru dkveðnir í stjórnarskránni. I henni er að finna helstu grundvallarreglur um stjórnskipulag ríkisins. Þær eru: sérstök stjórnarskrá, prígreining rikisvaldsins, pingræði og mannréttindaverna. Stjórnarskráin Stjórnarskrár hafa að vissu leyti þversagnakennt hlutverk. Þeim er ætlað að tryggja að vald ríkisins eigi sér uppsprettu hjá þjóðinni og sé ekki beitt í andstöðu við hana. Jafnframt er þeim ætlað að tak- marka vald ríkisins og þar með einnig vilja meirihlutans eins og hann birtist á þingi eða í ríkis- stjórn. Sú grundvallarhugsun liggur að baki flestum stjórnar- skrám að til séu gildi og réttindi sem séu svo mikilvæg að þau beri að vernda sérstaklega, þess vegna er erfiðara að breyta greinum stjórnarskrárinnar en venjulegum lögum. A Islandi hefur Alþingi valdið til að breyta stjórnar- skránni, til þess nægir einfaldur meirihluti þings, þó þannig að þing verður að samþykkja breyt- ingar tvisvar sinnum með kosn- ingum á milli. Samþykki Alþingi tillöguna í annað sinn óbreytta tekur hún gildi þegar hún hefur hlotið staðfestingu forseta. Árið 1848 féll danska einveldið endanlega og leiddi það til óvissu um stöðu Islands innan konungs- ríkisins. íslendingar töldu að samband landanna hlyti að breyt- ast við þetta, dönsk stjórnskipun og dönsk lög ættu ekki að ná lengur til Islands. Dönsk stjórn- völd voru á öðru máli, þau töldu Island vera hluta danska ríkisins og að danska stjórnarskráin ætti að ná til íslands líka. Það var ekki fyrr en 1871 að stöðulögin svo- kölluðu voru staðfest. Þar skil- greindu Danir Island sem óað- skiljanlegan hluta Danaveldis, með sérstökum landsréttindum. í kjölfarið voru gerðar umfangs- miklar breytingar á stjórnskipun íslands og 1874 gaf Danakon- ungur Islendingum stjórnarskrá. Með stjórnarskránni fékk Alþingi löggjafarvald í innanlandsmálum, sem takmarkaðist af neitunarvaldi konungs. Framkvæmdavaldið var hins vegar hluti af dönsku stjórnsýslunni. Baráttan fyrir endurskoðun stjórnarskrárinnar, bæði við Dani og milli andstæðra fylkinga á íslandi, varð höfuð- viðfangsefnið næstu áratugi. Með heimastjórn 1904 varð til íslenskt framkvæmdavald og fengum við þá einnig fyrsta ráðherrann, Hannes Hafstein. Þessari baráttu lauk svo 1918 með setningu lag- anna um samband Islands og Danmerkur sem kváðu á um að bæði löndin væru frjáls og full- valda ríki í sambandi við einn og sama konung. Það var þó ekki fyrr en 1920 að Islendingar fengu algjör yfirráð yfir innlendu dóms- valdi, þegar Hæstarétti íslands var komið á fót. Sú stjómarskrá sem við búum við í dag var sett af þjóðinni í þjóðar- atkvæðagreiðslu árið 1944. Ekki hafa verið gerðar neinar róttækar breytingar á stjórnarskránni frá 1874 en má þar helst nefna þes- sar: 1903 vom gerðar breytingar sem nauðsynlegar voru vegna tilkomu fyrsta íslenska ráð- herrans og heimastjórnar á ís- landi, 1915 var kosningaréttur karla og kvenna gerður almenn- ur, 1920 vom gerðar þær breyt- ingar sem leiddu af fullveldi Islands og 1944 vom gerðar þær breytingar á stjómarskránni sem voru nauðsynlegar vegna sam- bandsslitanna við Dani. Ákvæði um konungsvaldið féllu út, en ákvæði um forseta íslands komu inn í staðinn. Árið 1959 var kosningakerfið stokkað upp. Þingmönnum fjölgað í 60, gömlu kjördæmin voru lögð niður að Reykjavík undanskilinni og átta núverandi kjördæmi tekin upp. 1991 vom þær breytingar gerðar sem nauðsynlegar voru vegna afnáms deildaskiptingar Alþingis og aðskilnaðar umboðsvalds og dómsvalds í héraði. ALMENNINGUR Rfkisvald Framkvæmdavald Ríkisstjórn Löggjafarvald Alþingi Dómsvald Dómsstólar ALMENNINGUR SHipu£xtg. &esi£ióitvt> ttiidcitt við ueLfi&tð aímenningo. ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 • U N GT FOLKTAKIB AFSTÖÐU

x

Ungt fólk takið afstöðu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.