Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Qupperneq 22
Ef skoðaðar eru
stefnuskrár íslenskra
stjómmálaflokka
kemur í Ijós að þær
eru mjög svipaðar og
ef skoðað er grannt
kemur líka í Ijós að
þær hafa lítið breyst í
gegnum árin.
Ennfremur kemur í
Ijós að þær eru bara
stefnuskrár. Það er
ekki endilega þar
með sagt að þær séu
framkvæmdaskrár.
Sérhver
stjómmálaflokkur
hefur á bak við sig
eins konar
eigendafélag; það er
flokk fjármagns- eða
hagsmunaeigenda,
sem velja sér
málpípur til að
viðhalda og
varðveita hagsmuni
sína. Þessar
málpípur heita
stjómmálamenn. A
hverjum tíma em
margir ungir menn
kallaðir til - til
hlýðnis og
hollustuuppeldis
innan hvers flokks.
Það verður að kalla
marga til, vegna þess
að ekki er ljóst þegar
af stað er farið hver
hefur úthaldið í það
sem kallað er
„póhtískur ferill".
En vegna þess
hversu margir úr
hópnum hafa úthald,
berjast þeir um sætin
innbyrðis. Það er
nauðsynlegt, því það
tryggir hollustu við
„eigendurna". Þeir
sem em hlýðnastir
og hollastir fá að ná
langt; þeir fá völdin
og virðinguna -
svona út á við, eða
að því er virðist.
Kvennahstinn er eini
flokkurinn sem hefur
ekkisvona
eigendafélag. Það er
einn af veikleikum
flokksins og kannski
þessvegna sem fylgi
hans er svo htið.
Hann er svona
útópíuflokkur með
sólskin og grasgrænu
í augum; hefur
stefnuskrá eins og
hinir en dettur ekki
einu sinni í hug að
reyna að framfylgja
henni. Þær
kvennalistakonur
hampa eignaleysi
sínu en það er nú svo
að því fjárhagslega
sterkari sem
eigendur
stjórnmálaflokks em,
því fleiri eiga
hagsmuna að gæta í
viðhaldi flokksins;
allir sem vinna hjá
fyrirtækjum
eigendanna.
Ef stjórnmálamenn
hér framfylgdu
stefnuskrám flokka
sinna, væri íslenskt
þjóðfélag ekki sá
glundroði sem það
er; hér þarf ekki að
vera atvinnuleysi og
fátækt. Afsökun
stjórnmálamanna
fyrir því að
stefnuskrám er ekki
framfylgt er alltaf sú
að þeir séu í
stjórnarsamstarfi
með öðrum sem hafi
ekki sömu stefnu og
þetta sé spurning um
að fara
samningaleiðina við
hinn flokkinn. Þar
með firra allir sig
,Þcu) vt engin
pdíUM á
Jóíandi.
fficvta
áagötnunvt.
J>eóói
ötadwynd
Bíaö bc uið í
fw&tt óinn
óem
ótjámmáía-
menn apna
munninn,
öem þevt gma
mjdg ccft þiu
þevc uinna í
{feinni
útöendingu
ad þuí est
uvtðiöt.
ábyrgð. Þegar svo
talað er um
skattamál, er
skattpíningin
fyrrverandi
ríkisstjórn að kenna.
Þeir sem em við völd
á hverjum tíma, bera
aldrei ábyrgð á einu
né neinu.
Núverandi
ríkisstjóm hreykir
sér af því að hafa náð
verðbólgunni niður
fyrir heimilin í
landinu. En það var
ekki fyrir heimilin.
Það var fyrir
fyrirtækin í landinu,
sem skulda eins og
skrattinn sjálfur og
em alltaf að fara á
hausinn, vegna þess
að hér er alltaf verið
að stofna fyrirtæki
með lánum, sem fara
svo á hausinn. Hér
er aldrei hægt að
hugsa fyrst - hvað þá
skipuleggja - og
framkvæma svo. Og
þegar fyrirtæki fara á
hausinn, þarf
ríkissjóður oftar en
ekki að standa
straum af stórum
hluta kostnaðar. Það
þarf að greiða
launakröfur á
hendur fyrirtækinu.
Það þarf að fella
niður opinber gjöld
af því. Það þarf að
skuldbreyta og fella
LK TAKIÐ AFSTÖÐU
niður lán úr
einhverjum
opinberum sjóðum
eða láta þau fyrnast.
Svo er okkur sagt að
heilsugæslan sé svo
dýr, félagslega kerfið
sé svo dýrt,
vegakerfið sé svo
dýrt, húsnæðiskerfið
sé svo dýrt; allt sem
varði almannaheill sé
svo dýrt.
Það er þrúgandi
mein í sálarlífi
þjóðarinnar að geta
ekki hugsað áður en
framkvæmt er. Við
hugsum í
fyrirsögnum og
framkvæmum í
samræmi við það
lottó- og
happdrættishugarfar
sem gerir okkur að
sérstakri tegund í
úníversinu.
Afleiðingarnar eru
þær að við emm
núna að greiða
milljarða fyrir
refahappdrættið,
minkahappdrættið,
fiskeldishappdrættið
og það næsta verðrrr
bændagistingar-
happdrættið. Mill-
jónaskuldir hlaðast
upp án þess við
fáum neitt við ráðið
og þjóðin fær að
leika sér svona með
fjármagnið eins og
hún hafi "monopolí"
platpeninga milh
handanna.
Því finnst mér
hlægilegt og sorglegt
í senn að heyra ungt
fólk tala um að það
ætli að breyta þessu
öllu. Ungt fólk sem
hefur ekki kannað
hvort flokkseigendur
kæra sig um það.
Ungt fólk með ekkert
fjármagn á bak við
sig til að versla með
völdin. Ungtfólk
sem er fullt af
hugsjónum sem
fölna fljótlega þegar
það þarf að byrja að
verja sig fyrir
ALÞINGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ UNGT FÓ