Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Page 25
ég þess. Ræðunámskeið geta
verið mjög góð til að byggja
upp sjálfstraust fólks og gera
það þjálfaðra í framkomu en
hins vegar finnst mér leiðin-
legt að hlýða á fólk sem
hefur farið á of mörg ræðu-
námskeið.
Hvernig stendur norrænt
samstarf ídag að pínu mati og
hvernig sérðu fyrir pér próun
pess á næstu árum?
Mér sýnist það standa sæmi-
lega. Það mun auðvitað
breytast vegna þess að Svíar
og Finnar eru farnir inn í
ESB. Nú ríður á að stjórn-
málamenn standi við stóru
orðin um að samstarfið skipi
áfram sama sess og það
hefur gert, en mér sýnast
blikur á lofti í því efni.
Hver er pín skoðun á stefnu-
mótun í menntakerfinu með
tilliti til bóknáms og verk-
náms?
Við verðum að leggja meiri
áherslu á alls konar verk-
nám og starfsmenntun til að
halda við og þróa verk-
menningu og verkþekkingu
í landinu. Við þurfum víð-
tæka og fjölbreytta mennt-
un. Það er of algengt að fólk
svífi í gegnum skólakerfið
án þess að staldra nokkurn
tíma við og íhuga hvort
þetta sé endilega það sem
það langar að gera eða hvort
aðrir betri kostir séu í boði.
Hvað vilt pú gera við LÍN og
fyrir Háskóla íslands?
Lánasjóðurinn hefur mikil-
vægu hlutverki að gegna til
að stuðla að jafnrétti til
náms. Stúdenta bíða nú allt
önnur kjör og allt annað líf
að loknu námi en fyrri kyn-
slóða. Lánskjörin hafa
versnað og eftirágreiðsla
lána gerir fólki mjög erfitt
fyrir með dýrum lántökum.
Það sem er efst í huga mín-
um nú varðandi Lánasjóð-
inn eru afborgunarkjör sem
eru verri en áður. Við verð-
um að horfast í augu við þá
staðreynd að sumir komast
í nám og aðrir ekki vegna
þess að þeir hafa ekki efni á
því. Það stefnir í að háskóla-
nám verði forréttindi þeirra
sem hafa efni á því. Núver-
andi ríkisstjórn hefur gengið
mjög nærri Háskólanum
með skerðingu framlaga til
hans. Það verður að bjarga
þjóðinni frá menntastefnu
Sjálfstæðisflokksins.
Finnst pér réttlætanlegt að reka
ríkissjóð með halla ár eftir ár
og velta skuldum yfir á fram-
tíðina?
Nei það er ekkert sem rétt-
lætir hallarekstur ríkissjóðs
svo árum skiptir. Við höfum
gengið á auðlindir okkar og
nú er komið að skulda-
dögum. Upprennandi kyn-
slóðum er gert að borga fyrir
togarasukk, óarðbærar fjár-
festingar, mistök og vonda
skipulagningu fyrri kyn-
slóða. Við erum í raun fyrsta
íslenska kynslóðin sem þarf
að borga allt upp í topp. Til
þess að lifa af verður að
breyta um lífsstíl og minnka
neyslu. Hagvöxtur er ekki
eitthvað sem heldur enda-
laust áfram. Við þurfum að
huga að því hvernig Is-
lendingar ætla að draga
fram lífið á 21. öldinni,
vitandi að það er ekki enda-
laus fiskur í sjónum
Hvernig kynntist pú maka
pínum?
Hvaða maka?
...SEM AUÐVELT ER AÐ FORÐAST
AIVR
ÞETTA ERU SLYS...
A L M N i
N G A R 1 9 9 5 • U N G T FOLK TAKIÐ A F S T 0 Ð II
25
VIÐTAL