Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Qupperneq 27
Hvað finnst pér um hlutverk
forsetaembættisins í stjórn-
kerfinu?
Ég held að forsetaembættið
og hvernig það er statt í
stjórnkerfinu hafi reynst
okkur ágætlega, ég sé ekki
nauðsyn á neinum sérstök-
um breytingum þar. Ég tel
þó rétt að styrkja forseta-
embættið með því að þegar
forseti lýðveldisins er kjör-
inn verði hann að fá hreinan
meirihluta atkvæða. Ef
enginn einn frambjóðandi
fær hreinan meirihluta í
kjöri í fyrstu umferð, þá
skuli kosið milli þeirra
tveggja sem urðu efstir.
Hefur púfarið á ræðunámskeið
og finnst pér pað mikilvægt?
Nei, ég hef ekki farið á
ræðunámskeið en hugsaði
þó mikið um það hér áður
fyrr þegar ég var að byrja í
pólitíkinni. Ég held að það
hafi allir gott af því að fara
á ræðunámskeið því ræðu-
mennska er mikilvægur
þáttur í pólitíkinni.
Hvernig stendur norrænt sam-
starf i dag, að pínu mati og
hvernig sérðu fyrir pér próun
pess á næstu árum?
Norrænt samstarf skiptir
okkur miklu máli. Ég hygg
að það geti að einhverju leyti
staðið veikara eftir að þrjú
Norðurlandanna hafa gerst
aðilar að ESB. í norrænu
starfi hefur alltaf verið lögð
mikil áhersla á menntun og
menningu og ég hygg að
það muni ekki breytast þó
eitthvað annað komi til með
að gera það. Ég hygg að
þetta muni allt skýrast á
þingi Norðurlandaráðs sem
haldið verður í Reykjavík nú
á næstunn. Það þarf að
leggja mikla áherslu á að
styrkja norrænt samstarf.
Hver er pín skoðun á stefnu-
mótun í menntakerfinu með
tilliti til bóknáms og verk-
náms?
Ég tel að menn verði að
horfast í augu við það að
lykillinn að hagvexti og
atvinnuuppbyggingu er
ekki síst í öflugu mennta-
kerfi sem stuðlað getur að
nýsköpun, tækni og hugviti.
Ég tel að það þurfi að fjár-
festa meira í menntun en við
höfum gert. Ég held að það
þurfi líka að auka vægi
verknáms og starfsmennt-
unar en á það hefur skort á
liðnum árum.
Hvað vilt pú gera við IÍN og
fyrir Háskóla íslands?
Ég vil auka fjármagn til
Háskólans, annars held ég
að við munum dragast aftur
úr. Ég tel að það þurfi að
skoða ýmislegt varðandi
Lánasjóðinn og Háskólann í
leiðinni. Fjöldatakmarkanir
eru þar t.d. áhyggjuefni. Ég
nefni líka að ég tel að hætta
eigi eftirágreiðslum náms-
lána til námsmanna sem eru
lengra komnir í námi þannig
að þeir geti fengið námslán
á haustin. Kostnaði vegna
núverandi kerfis verði mætt
t.d. með því að bankakostn-
aður vegna eftirágreiddra
námslána verði frádráttar-
bær að hluta til frá skatti. Ég
tel eðlilegt að í samráði við
atvinnulífið sé komið upp
styrkjum í námsgreinum
sem tengjast mikilvægum
atvinnugreinum t.d. í út-
flutningi og nýsköpun.
Ég tel endurgreiðsluformið
þrengja verulega möguleika
námsmanna til að koma sér
upp þaki yfir höfuðið. Það
þyrfti að greiða úr því m.a.
''með því að hækka lán í
húsbréfakerfinu fyrir þá sem
eru að koma sér upp hús-
næði í fyrsta sinn, úr 65% í
75% af íbúðarverði.
Finnst pér réttlætanlegt að reka
ríkissjóð með halla ár eftir ár
og velta skuldum yfir á fram-
tíðina?
Það er ekki réttlætanlegt að
velta skuldum yfir á fram-
tíðina en þó verður að skoða
aðstæður hverju sinni. Mér
finnst að forgangurinn varð-
andi útgjöld ríkisins hafi
verið rangur og að hann
þurfi að endurmeta frá
grunni. Heilbrigðiskerfið
hjá okkur er mjög dýrt og oft
mun dýrara en hjá öðrum
þjóðum miðað við það fjár-
magn sem við látum í félags-
málin sem er mjög lítið
samanborið við aðrar þjóðir.
Þannig þarf að styrkja for-
varnir og fyrirbyggjandi
aðgerðir sem skila veru-
legum sparnaði í heibrigðis-
kerfinu. Hlunninda- og fríð-
indagreiðslur hjá hinu opin-
bera og æðstu embættis-
mönnum verður líka að
endurskoða og takmarka
stjórnsýsluhafa mjög, því
þar er hægt að spara veru-
lega. Onýtt launa- og lífeyr-
iskerfi verður líka að stokka
upp til að ná fram meira
jafnrétti í kjörum fólks.
Hvernig kynntist pú mak-
anum?
Ég kynntist honum á balli en
við slitum samvistum fyrir
nokkrum árum.
Stlórnmálafræöinemar!
Bækurnar sem allir stjómmálafræðingar þurfa að eiga eru á tilboðsverði til 12. apríl
n.k. Yfir 1.100 bls. af fróðleik fyrir áhugamenn um stjómmál og þjóðmál.
Kosningaskýrslur 1874-1987 og Alþingiskosningar 1991 á kr. 3.900.-
Kosningaskýrslur 1874-1987, Sveitarstjórnarkosningar 1990,
Alþingiskosningar 1991, Forsetakjör 1988, á kr. 4.500.-
Hagstofa íslands, Skuggasundi 3 150 Reykjavík. Sími 560 9800 Bréfsími 562 3312
ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ U N G T F 0 L K T A KI Ð AFSIÖÐI
VIÐTAL