Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 28

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 28
GRIMSSON HvENÆR HÓFUST afskipti þín af stjórnmálum? Ég byrjaði að hafa áhuga á stjórnmálum mjög ungur á Isafirði og tók sem ungur strákur þátt í forsetakosn- ingunum 1952. En formleg afskipti hófust uppúr 1966 þegar ég starfaði með ung- um framsóknarmönnum sem var mjög vösk sveit í þeirri tíð og lauk ferli sínum með því að stofna Möðru- vallahreyfinguna. Hvaða eiginleika þurfa menn að hafa til að komast ífremstu röð í stjórnmálum á íslandi? Það er engin ein formúla til við því. Menn horfa mikið á foringja fyrri tíðar og það gildir um þá eins og margt annað að fjarlægðin gerir fjöllin blá og menn eru að mikla þá fyrir sér. Ég met mest sjálfur sjálfstæða skoð- anamyndun, hæfileikann til að koma með nýjar hug- myndir, að geta sett fram gagnrýni á jákvæðan hátt, að vera svona skapandi þátttakandi í því sem verið er að gera. Ef ég er á fundum þar sem allir eru sammála og enginn kemur með neitt nýtt eða önnur sjónarmið þá finnst mér sá fundur ekki hafa tekist. Hvað finnst þér um aldurs- skiptingu á Alþingi? Mér finnst hvorki að það eigi að vera hámarksaldur né lágmarksaldur á Alþingi. Reyndar finnst mér að við látum stjórnmálamenn hætta of snemma. A íslandi „parkerum" við fólki á á- kveðnu aldursskeiði og ég er ekkert alveg viss um að það sé heppilegt. Þess vegna held ég að það sem við þyrftum að gera væri að fá bæði meira af ungu fólki fyrr inn í stjórnmálin og halda síðan áfram að hafa með í för eldra fólk sem ennþá getur miðlað miklu. Það er of einhæf aldursskipting á þingi. Stjórnmál byggjast óskaplega mikið á reynslu, kannski vegna þess að þeir sem eru reynslulitlir hafa tilhneygingu til að taka hluti of alvarlega og telja að í þeim felist mikil vandamál og vandræði. Eru Alþingiskosningar eini vettvangurinn þar sem hinn almenni borgari getur haft áhrif, eða eru aðrar leiðir? Nei, það eru margar aðrar leiðir og það er eitt af því sem er ánægjulegt við ís- lenskt þjóðfélag að almenn- ingur eða áhugafólk um ákveðin málefni hefur mjög greiðan aðgang að íslensk- um stjórnmálamönnum miðað við erlendis. Einfald- asta leiðin er bara að hringja heim til þeirra. Islensk hags- munasamtök af hvaða tagi sem er eru mjög virt af þinginu og geta komið sín- um athugasemdum á fram- færi. Hvernig finnst þér þátturinn með Hannesi og Merði? Það er erfitt að dæma hann af því að þetta er eftirlíking af bandarískum og breskum þáttum sem ég þekki mjög vel. Ég hef nú aðallega þann FYRSTASÆTIÁ LISTA IHIIIMI ÁREYKJANESI Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður er fæddur 14. maí 1943. Maki hans er Guðrún Þorbergsdóttir. Ólafur lauk stúdenstprófi frá MR 1962 og B.A. prófi í hagfræði og stjórnmálafræði frá Unisversity of Man- chester 1965 og Ph.d. i stjórnmálafræði frá sama skóla árið 1970. Ólafur var fyrst kjörinn á þing árið 1978. ótta í brjósti að Mörður muni færast svo hratt til hægri að hann verði innan tíðar orðinn eins og Hannes. Þess vegna eru þeir e.t.v. bestir þegar "absúrdtetið" er komið í hámark og gest- urinn segir ekki orð, Hannes bara talar og Mörður reynir að komast að. Ég tel að Mörður sé í vissri hættu. Hvernig eiga tengsl við Evrópusambandið að vera í framtíðinni að þínu mati? Ég held að þau séu komin í það form sem er að mörgu leyti heppilegast fyrir okkur íslendinga. Mér finnst vera skynsamlegt fyrir okkur Islendinga að halda þessum viðskiptatengslum við ESB, þróa viðskiptatengsl okkar við NAFTA-svæðið í Banda- ríkjunum og byggja upp öflug tengsl við Asíu. Ég held að niðurstaðan af ESB aðild gæti ekki orðið okkur í hag. Það sem ég hef verið ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 - UNGT FÓLK T A KI Ð AFSTÖ að reyna að gera síðustu 6-7 ár er að tala fyrir því að menn átti sig á að jörðin er einn hnöttur og við eigum að sækja okkur efnivið í góð lífskjör til þeirra svæða sem mest er að sækja til þ.e. Asíu og N-og S-Ameríku. Það væri mikil tímaskekkja að telja Evrópu eitthvert aðal- atriði alþjóðlega séð. ESB er bara varnarmúr. Við eigum ekki að vera inni í gamla virkinu, við eigum að vera úti á akrinum þar sem menn eru að gera nýja og spenn- andi hluti. Ert þú fylgjandi því að gefa opnunartima vínveitingahúsa frjálsan? Er hann nú ekki nægilega frjáls eins og hann er ? Mér sýnast nú allir geta skemmt sér og orðið fullir eftir eigin geðþótta. Tekur þú tillit til þess sem kemur fram í kvartanaþáttum útvarpsstöðva? Það er svona upp og ofan, stundum er það ákveðinn mælikvarði á svona sjónar- mið sem fram koma. Ég hlusta á þá þegar ég er að hamast í leikfiminni síð- degis. Þannig að það fer svolítið eftir því í hvaða tækjum ég er þá stundina hvað ég tek mikið mark á þeim. Finnst þér réttlátt að sum atkvæði hafi meira vægi en önnur? Menn geta velt því fyrir sér um hvað lýðræði snýst, á það ekki að snúast um val á U

x

Ungt fólk takið afstöðu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.