Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 31
vinnulífsins. Ég held að
með þessum hætti sé far-
sælast að styrkja verknáms-
þáttinn í skólakerfinu enda
mikilvægt að við getum
mætt þörfum og löngunum
sem allra flestra hvað
menntun varðar.
Hvað viltu gera við LÍN og
fyrir Hdskóla íslands ?
Aftur vitna ég til þess sem
núverandi ríkisstjórn hefur
þegar áorkað. Þannig hefur
Háskólinn verið styrkur
mikið, bæði með mörkun
stefnu í vísinda- og rann-
sóknarmálum og ekki síður
með almennum aðgerðum.
Þá hefur auðvitað orðið
bylting í aðstöðu nemenda
og kennara með opnun
hinnar glæsilegu Þjóðar-
bókhlöðu. Varðandi LÍN þá
bendi ég á að nú er hætt
þeirri óábyrgðu stefnu að
lána úr sjóðnum meiri pen-
inga en hann hafði úr að
spila. Framlög til sjóðsins
voru aukin og reglurnar
hertar þannig að verðandi
námsmenn þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því að njóta
ekki námslánafyrirgreiðslu
vegna þess að óábyrgir
stjórnmálamenn hafi keyrt
sjóðinn í þrot. Hann stendur
sterkari en áður og getur að-
stoðað námsmenn um ó-
komin ár við að mennta sig.
Finnst þér réttlætanlegt að reka
ríkissjóð með halla ár eftir ár
og velta skuldum yfir á fram-
tíðina ?
Sem betur fer hafa ríkisút-
gjöld dregist mikið saman
að raungildi. Ríkisútgjöld
eru um 8,5 % lægri á hvert
mannsbarn 1995 en þau
voru 1991. Samdráttur í
ríkisútgjöldum hefur sem
sagt verið á milli 5 og 10
milljarðar að raungildi á
kjörtímabilinu. Þess vegna
hefur ríkissjóður verið rek-
inn með minni halla hér á
landi undanfarin ár en víð-
ast hvar í samkeppnislönd-
um. Það er mikilvægt, en
hið endanlega markmið á að
vera að hafa ríkssjóð halla-
lausan þannig að þeir sem
verji fjármunum til verkefna
sjái líka fyrir tekjum til
þeirra framkvæmda í sem
ríkustum mæli.
Hvernig kynntist þú maka
þínum ?
Ég kynnitst makanum á rölti
eftir dansleik.
£A4a4*H
0.. ð
LCllAA, SJjVL CAÁM'h-
$&^4a4' \JJZAa3, ÍJL&LÁáaSI' íJaáLL L^^áaá^
Cyt+4' 4áa44^Aa4Ma.
//
rlpRÚN!.UfJfJUR
Q
STfflEM«Wro'N
Síðastliðin 5 ár hafa mörg
hundruð íslensk ungmenni farið
sem au pairá okkar vegum
til Bandaríkjanna.
Og ekki að ástæðulausu þar sem
engin önnur samtök bjóða eins
góða, ömgga og ódýra
þjónustu. Allar ferðir fríar. ekki
aðeins til og frá Bandaríkjunum
heldur einnig innan þeirra.
Ef þú er á aldrinum 18-25 ára
og langar að fara sem aupair,
hefur þú samband og við veitum
allar nánari upplýsingar.
AuPAIR
VISTASKIPTI & NÁM
ÞÓRSGA TA 26 101 REYKJA VÍK
SÍMI562 2362 FAX 562 9662
SA MSTARFSFYRIR TÆKI
MENNINGARSKIPTASAMTAKANNA
WORLD LEARNING INC. / AuPAIR HOMESTAY
SEM STOFNUÐ VORU ÁRIÐ 1932.
SAMTÖKIN ERU EKKI REKIN í
HAGNAÐARSKYNI OG STARFA MEÐ LEYFI
BANDARÍSKRA STJÓRNVALDA.
ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 • U N G T F Ó L K T A KIÐ AFSTÖÐU
VIÐTAL