Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 32

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 32
VIÐTAL FYRSTASÆTIÁ LISTA ASGRIMSSON r ÁAUSTURLANDI HvERNIG HÓFUST afskipti pín af stjórnmálum? Ég hafði strax áhuga á stjórnmálum sem unglingur, en hafði hins vegar lítinn tíma til þess að sinna þeim meðan ég var í námi. Stjórnmálaferill minn hófst í raun ekki fyrr en 1974, þegar Framsóknarflokkur- inn bað mig um að skipa 3. sæti á lista í Austurlands- kjördæmi, en þá náði ég fyrst kjöri til Alþingis. Hvaða eiginleika þurfa menn að hafa til að komast í fremstu röð í stjórnmálum á íslandi? Það sem mér finnst mestu máli skipta í fari stjórn- málamanna er dugnaður, heiðarleiki, hreinskilni og það að menn þekki það viðfangsefni sem er verið að fjalla um. Hvað finnst pér um aldurs- skiptingu á Alþingi? Ég er andvígur því að hafa hámarksaldur á Alþingi, hins vegar finnst mér mikil- vægt að aldursskiptingin og kynjaskiptingin á Alþingi endurspegli þjóðfélagið á hverjum tíma. Eru Alpingiskosningar eini vettvangurinn par sem hinn almenni borgari getur haft áhrif eða eru aðrar leiðir? Auðvitað er hægt að hafa áhrif á stjórnmálaflokkana með margvíslegri umræðu í þjóðfélaginu því þeir verða að taka mið af þjóðfélags- umræðunni. Með þátttöku í félagsstarfi geta menn haft áhrif á stjórnmál. Hvernig finnst pér þátturinn með Hannesi og Merði? Hann er oft skemmtilegur en mér finnst þátturinn ganga ansi mikið út á það að koma sjónarmiðum stjórn- enda þáttarins á framfæri. Hvernig eiga tengslin við ESB að vera í framtíðinni að pínu mati? Ég og minn flokkur erum þeirrar skoðunar að það eigi ekki að sækja um aðild að ESB. Við teljum að sjávar- útvegsstefna sambandsins útiloki það, hins vegar teljum við mikilvægt að ná sem bestu sambandi við ESB og þá í gegnum Norður- landaráð og í gegnum EES samninginn. Ert pú fylgjandi pví að gefa opnunartíma vínveitingahúsa frjálsan? Það fylgja oft mörg önnur vandamál ákvörðunum sem þessum,.svo sem nauðsyn á aukinni löggæslu og mér finnst rétt að gætt sé að öllum hliðum og ákvörðun tekin í samræmi við það. Tekur pú tillit til pess sem kemur fram í kvartanapáttum útvarpsstöðva? Sumt sem þar kemur fram er þess eðlis að það er eðli- legt að hlusta á það og mér finnst það mjög eðlilegt að stjórnmálamenn taki tillit til kvartana. Finnst pér réttlátt að sum atkvæði hafi meira vægi en önnur? Ef við ætlum að koma því Halldór Ásgrímsson er fæddur 8. september 1947Maki hanser Sigurjóna Sigurðar- dóttir. Halldórlauk prófi frá Samvinnu- skólanum 1965 og varð löggiltur endurskoðandi 1970. Hann stundaði fram- haldsnám við Versl- unarháskólann í Bergen og í Kaup- mannahöfn 1971 - 1973. Halldór var fyrst kjörinn á þing 1974 og hefur setið þar síðan með eins árs hléi. svo fyrir að öll atkvæði gildi jafnt þá verðum við að gera landið að einu kjördæmi, en mér þykja gallar slíks kerfis fleiri en kostirnir, samband fólksins við stjórnmálamenn mun slitna og vald flokk- anna mun aukast of mikið. Ég vil halda kjördæma- skiptingunni og þeim tengsl- um sem þar eru á milli stjórnmálamanna og kjós- enda. Ég vil líka koma á landslista þannig að helm- ingur fulltrúa komi af lands- lista og helmingur úr kjör- dæmunum, þannig næst mun meiri jöfnuður. Hvað finnst pér um hlutverk forsetaembættisins í stjórn- kerfinu? Ég er mjög sáttur við þá skipan sem nú er. Ég tel að það sé góð reynsla af starfi forsetaembættisins eins og það hefur verið og Islend- ingar hafa verið mjög gæfu- ríkir við val á fólki til að gegna þessu embæti. Hefur pú farið á ræðunámskeið ogfinnst pér pað mikilvægt? Nei, en það var þáttur í kennslu í Samvinnuskól- anum á sínum tíma, en almennt tel ég að öll leið- sögn og kennsla sé af hinu góða. Hver er skoðun pín á stefnu- mótun í menntakerfinu með tilliti til bóknáms og verk- náms? Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það sé of lítið tillit tekið til þarfa atvinnu- lífsins í menntamálum í landinu. Mér finnst oftast tekið of mikið mið af þörfum Hvernig stendur norrænt samstarf í dag að pínu mati og hvernig sérðu fyrir pér próun pess á næstu árum? Norrænt samstarf er á tíma- mótum og stóra spurningin er hvaða áhrif innganga Finnlands og Svíþjóðar í ESB hefur á það. Nú er verið að gera tilraun til þess að byggja upp hluta evrópu- samstarfs Norðurlanda inn- an norræna samstarfsins. Ég trúi því að hægt verði að endurskipuleggja norræna samstarfið þannig að það verði áfram þýðingarmikið og áhugavert. 32

x

Ungt fólk takið afstöðu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.