Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 34

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 34
VIÐTAL HANNIBALSSON HvENÆR HÓFUST afskipti pín af stjórnmálum? Ætli þau hafi ekki hafist fyrir alvöru eftir að ég kom heim frá námi 1964 og við bræður fengum óvart upp í hend- urnar vikublaðið Frjálsa þjóð sem þá hafði verið í óskilum um hríð. Við notuð- um þetta blað til þess að skera upp herör gegn hug- myndalegu forræði komm- únista yfir íslenskri vinstri- hreyfingu, lífslygi þeirra, andlegum óheiðarleika og hugleysi að horfast í augu við sjálfa sig. Hvaða eiginleika purfa menn að hafa til að komast í fremstu röð í stjórnmálum á íslandi? Orku. Otæmandi orku. Því að þetta er galeiðuþræl- dómur þar sem engin grið eru gefin. Það sakar ekki að vera yfir meðallag að greind - en telst ekki ómissandi. Ætli þeir eiginleikar sem að lokum skera úr um hvort þú lifir af í pólitískri forystu séu ekki þrír: Atorka, vinnuþrek og kjarkur. Hvað finnst pér um aldurs- skiptingu á Alpingi? Alþingi endurspeglar þjóð- ina ekki nægilega vel, hvort sem litið er á aldursdreif- ingu eða hlutfall kynja. Ef landið væri eitt kjördæmi, eins og Alþýðuflokkurinn hefur á stefnuskrá sinni, tel ég að framboðslistar og Alþingi myndu endurspegla þjóðina betur en nú er. Eru alpingiskosningar eini vettvangurinn par sem hinn almenni borgari getur haft áhrif, eða eru aðrar leiðir? Þátttaka í starfi stjórnmála- flokka er vitaskuld leið til áhrifa en hin formlega leið fyrir allan almenning er að taka afstöðu og kjósa í kosn- ingum til byggðastjórna og Alþingis. Annars er Al- þýðuflokkurinn afar opinn flokkur, lýðræðislegur og laus við bákn og óhætt að mæla með því við þá sem hafa áhuga á jöfnuði og réttlæti í samfélaginu að ganga í flokkinn og hafa þar áhrif. Þau hafa reynst mikil. Hvernig finnst pér pátturinn með Hannesi og Merði? Ég hef einu sinni átt orða- stað við þá félaga í þessum þætti sjálfur og skemmti mér bærilega. Hins vegar hef ég aldrei séð þættina sjálfur. Eru þeir ekki „rugl- aðir"? Hvernig eiga tengslin við Evrópusambandið að vera í framtíðinni að pínu mati? Tengsl Islands við Evrópu- sambandið verða helsta viðfangsefni ríkisstjórnar og Alþingis á næsta kjörtíma- bili. Þess vegna er það réttur kjósenda að vita fyrir kosn- ingar hvaða afstöðu stjórn- málaflokkar og frambjóð- endur taka til þess máls. Það er um leið skylda flokk- anna að skýra afstöðu sína með trúverðugum hætti fyrir kjósendum fyrir kosn- ingar. Alþýðuflokkurinn vill að hafnar verði aðildar- viðræður við ESB. Þegar niðurstaða fæst úr þeim FYRSTASÆTIÁ LISTA r í REYKJAVÍK Jón Baldvin Hanni- baisson utanríkisráð- herra er fæddur 21.febrúar 1939. Maki hans er Bryndís Schram. Jón Baldvin lauk stúdentsprófi frá MR, námi í stjórnmáiafræði og hagfræði frá Edinborg og stundaði framhaldsnám í Stokkhólmi og Har- vard. Hann var fyrst kjörinn á þing 1983. verði hún borin undir þjóð- aratkvæði. Þetta eru tvö aðskilin mál. Meginmark- mið Islendinga í aðildar- viðræðum á að vera óskoruð forráð yfir auðlindinni. Til að tryggja það enn frekar vill flokkurinn að þjóðareign fiskimiðanna verði bundin í stjórnarskrá. Islendingar fá aldrei úr því skorið hvort aðildarsamningar yrðu þeim hagkvæmir nema á slíkt verði látið reyna við samningaborðið. Unga kyn- slóðin á íslandi, sú best menntaða í sögu þjóðar- innar, er laus við þjóðrembu ogeinangrunarhyggju. Hún vill lifa sínu lífi í opnu og umburðarlyndu þjóðfélagi, sem er hluti hins evrópska velferðarríkis. Alþýðuflokkurinn hefur sýnt það í verki að hann berst heill og óskiptur fyrir samkeppni í opnu markaðs- þjóðfélagi í stað einokunar og ríkisforsjár, enda telur hann slíkt neytendum í hag. Hins vegar er brýnt að gæta þess að áfengi sé ekki selt börnum og unglingum, að veitingastaðir standi skil á opinberum gjöldum og að tekið sé tillit til réttinda þeirra um svefnró er búa í grennd við vínveitingastaði. Tekur pú tillit til pess semfram kemur í kvartanapáttum út- varpsstöðva? Ég er alltaf að vinna á þess- um tíma sólarhrings svo að því verður einfaldlega ekki við komið. Finnst pér réttlátt að sum atkvæði hafi meira vægi en önnur? Nei, það er ekki réttlátt og róttækra breytinga er þörf. Atkvæðisréttur á að vera óháður kyni, stétt, efnahag, búsetu og annarri þjóð- félagsstöðu. Reglan; einn maður - eitt atkvæði er einn af hornsteinum jafnaðar- stefnunnar og nútíma mann- réttinda og hefur verið sam- tvinnuð baráttu Alþýðu- flokksins fyrir mannrétt- indum alþýðufólks í sjötíu ár. A1 þýðu fl okkuri n n er eini flokkurinn sem hefur afdrátt- arlausa stefnu í þessu mikil- væga máli. Ert pú fylgjandi pví að gefa opnunartíma vínveitingahúsa frjálsan? Hvað finnst pér um hlutverk forsetaembættisins í stjórn- kerfinu? ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 • UNGT FÓLKTAKIÐ AFSTÖ0U U

x

Ungt fólk takið afstöðu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.