Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 35

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Síða 35
 Forseti íslands er sam- kvæmt stjórnarskránni og hefðinni þjóðhöfðingi og sameiningartákn, sem á að vera hafinn yfir stjórnmála- deilur og flokkadrætti. Ég sé ekki ástæðu til að breyta því. Hefur pú farið á ræðunámskeið og finnst pér pað mikilvægt? Nei, nei. Hvernig stendur norrænt sam- starf í dag að pínu mati og hvernig sérðu fyrir pér próun pess á næstu árum? Samstarf Norðurlandaþjóð- anna hefur lengi verið sér- stakt í samanburði við ann- að milliríkjasamstarf. Norð- urlöndin sameiginlega hafa mun meiri áhrif á alþjóð- legum vettvangi en unnt væri fyrir hvert og eitt þeirra um sig. Islendingar hafa notið góðs af Norðurland- asamstarfinu umfram aðra. Nú hafa þrjár þessara þjóða talið hagsmunum sínum betur borgið innan hins evrópska heildarsamstarfs. Norrænt samstarf kann í framtíðinni að snúast í meira mæli um málefni þessara ríkja á vettvangi ESB, þótt samstarf á sviði menning- armála í krafti sameigin- legrar sögu og menning- ararfleifðar kunni að vera óbreytt. Hver er pín skoðun á stefnu- mótun í menntakerfinu með tilliti til bóknáms og verk- náms? Islendingum er lífsnauðsyn að halda uppi háum staðli og gera strangar kröfur um gæði almennrar menntunar og sérfræðikunnáttu. Skóla- kerfið verður að laga sig að þessum kröfum. Það kann ekki góðri lukku að stýra að ætla sér að steypa alla í eitt mót. Koma verður til móts við þarfir, óskir og hæfileika þúsunda ungmenna sem myndu njóta sín betur í lífinu að fengnu vönduðu sérhæfðu starfsnámi. Þess vegna á að auka vægi starfs- menntunar. Hvað vilt pú gera við LÍN og fyrir Háskóla íslands? Efnahagsleg og menning- arleg framtíð okkar krefst þess að framlög til mennta- mála verði aukin á næstu árum, jafnvel á kostnað annarra útgjalda. Alþýðu- flokkurinn mun beita sér fyrir því að svo verði.Gera verður áætlun um uppbygg- ingu í skólamálum til nokk- urra ára í senn. Tryggja þarf að fjárveitingar til kennslu við Háskóla íslands verði sambærilegar við það sem gerist í nágrannarríkjum okkar. Koma þarf upp sum- arnámskeiðum við skólann og tryggja til framtíðar rekstur Háskólabókasafns- Landsbókasafns. En háskól- ar eru einnig rannsóknar- stofnanir og því þarf að fara í saumana á skipulagi rann- sóknarstarfs við skólann og draga hingað erlent fé til rannsóknar. Eitt brýnasta verkefnið varðandi Lána- sjóð íslenskra námsmanna er að gerð verði óháð úttekt á því hvernig hann nái sem best markmiðum sínum. Tilgangur sjóðsins hlýtur að vera sá að enginn hæfi- leikamaður þurfi að hverfa frá námi vegna fjárskorts. Finnst pér réttlætanlegt að reka ríkissjóð með halla ár eftir ár og velta skuldum yfir á fram- tíðina? Nei, einmitt þess vegna hefur Alþýðuflokkurinn í núverandi ríkisstjórn beitt sér fyrir umtalsverðum sparnaði og aðhaldssemi í rekstri velferðarkerfisins, einkum á sviði heilbrigðis- mála sem spanna helming ríkisútgjalda. HefðiAlþýðu- flokkinn brostið kjark til að gegna skydu sinni í þessu efni hefðu öll sparnaðar- áform ríkisstjórnarinnar runnið út í sandinn. En einmitt vegna þessara verka verðskuldar Alþýðuflokk- urinn stuðning ungs fólks sem veit að ella hefði út- þensla kerfisins verið fjár- mögnuð með lántöku og velt yfir á herðar ungu kyn- slóðarinnar í framtíðinni. í næstu kosningum mun því reyna á það með óvenju skýrum hætti, hvort ábyrgð- artilfinning gagnvart fram- tíðinni er nokkurs metin eða hvort skrum og yfirboð má sín meir í huga kjósenda. Hvernig kynntist pií mak- anum? Ég sá hana fyrst í Gaggó- Vest - aftanverða, því að ég sat fyrir aftan hana. Svo sneri hún sér við og bros hennar lýsti upp sólkerfið. Síðan hef ég verið í álögum. Viá þökkum eftirtöldum aáilum stuðninginn MtrgunblaMi llrmjiirkiiiipMiiiur Képamgsbær Félagsstofnun stúdenta linMuasjóiiir SkómlsuninStepp Seilabankinu llróilliiliur ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 • U N G T F Ó L K T A KI Ð A F S T Ö Ð U 35 VIÐTAL

x

Ungt fólk takið afstöðu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.