Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 36
LETTMETI
Hvað heldur pú að
elsta bindið á Alpingi
sé gamalt?
Ég hugsa að það sé
örugglega fimmtán
ára gamalt. Maður
getur séð aldurinn á
breiddinni á bind-
unum. Núna eiga
þau t.d. að vera 10
sentímetra breið.
Þegar fatastúl
stjórnmálamanna er
nefndur hvað er pað
fyrsta sem pér dettur í
hug?
Það minnir mig á
þegar það komu til
mín menn á
framboðslista eins
flokks á Suðurnesj-
um, fyrir u.þ.b. 11
árum síðan. Það
var maður frá
auglýsingastofu
sem hringdi í mig
og spurði mig hvort
ég gæti ekki lánað
þeim föt fyrir
myndatöku því að
það ætti að fara að
kynna fram-
bjóðendurna. Ég
sagði náttúrulega
að það kæmi ekki til
greina, ég væri ekki
með neina útleigu
eða lánsviðskipti
með föt. Svo gat ég
sannfært þá um að
þeir yrðu bara að fá
sér ný föt fyrir
þessa myndatöku
og með herkjum gat
ég selt nær öllum
listanum fatnað.
Svo komu þeir og
mátuðu og ég
reyndi að velja
þeim föt eftir
persónuleika.
Ymsir af þessum
mönnum komust á
þing og eru þar enn
í dag. Ég held að
enginn þeirra hafi
komið inn í búðina
síðan en ég sé þá
ennþá í fötunum.
Þetta er líka til
sanninda um það
að föt skipta þá
engu máli.
Elsín bindiö
áAIþingi d
iiiétd ttié Scem %uá éimm
Annars dettur mér
helst í hug nægjusemi
þegar fatastíll
stjórnmálamanna er
nefndur.
Telur pú að fatastíll
stjórnmdlamanna hafi
áhrif á pað hvað fólk
kýs?
Það hefur örugglega
áhrif á fólk og sama
má segja um mig.
Hvaða stjórnmálamaður
er best klæddur að pínu
mati?
Stjórnmálamenn eru
margir mínir
viðskiptavinir og ég
get ekki sagt til um
hver er best klæddur.
Almennt séð er sá best
klæddi ekki endilega
sá sem kaupir sér
mest af fötum. Þar er
það smekkmaðurinn
sem gildir. En ég held
að sumir þingmenn
klæði sig betur eftir
því sem þeir hafa
verið lengur inni í
okkar fallega og
klassíska þinghúsi,
sumir þeirra
samsvara umhverfi
sínu, þessum
klassíska stíl hússins,
betur með árunum.
Konur í stjórnmálum -
ættu pær ekki bara að
halda sig við gömlu
góðu dragtina?
A Alþingi vil ég sjá
konur í jakka frekar
en í einhverri blússu
eða mussu. Það er
meira sannfærandi
að sjá þær í
„alvarlegri" fötum.
Það er alveg í lagi þó
að þær séu í stuttum
drögtum ef þær hafa
vöxt til þess. Konur
eiga að undirstrika
að þær eru konur,
þær eru nefnilega
miklu fallegri en
karlar.
Er fatastíll stjómmála-
manna ekki einfaldlega
eins og íslenska
veðurfarið, p.e. sýnis-
horn aföllu mögulegu?
Jú, ég get tekið undir
það. Það eru fáir, ef
nokkrir þeirra sem
hafa einhvem stfl.
Þeir senda 1
konumar sí
bæihn tn að teupa
eitthvað á sig. Það
svipar til „Glasgow-
stflsins" þar sem fólk
kaupir bara það sem
hendi er næst en fer
ekki til sérfræðinga
sem það ætti að gera.
Þá er ég ekki að tala
um neina
litgreiningu, slíkt er
hallærislegt, heldur
að fá aðstoð fag-
manna.
Telur pú að velgengni
í stjórnmálum hafi
eitthvað með góðan
fatastú að gera?
Já, það er ég sann-
færður um. Fötin
em það sem þér er
næst og segir þ.a.l.
eitthvað um þig
sjálfan.
Hver heldur pú að
ástæðan sé fyrir pví að
stjórnmálamönnum
virðist vera sama um
útlit sitt?
Við erum ung þjóð,
það er svo stutt síðan
að föt fóm að fást
hvað gæði og úrval
snertir.
ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 - UNGI FOLKTAKIÐ AFSTÖÐI
Væri ekki ein leið til að
bæta fatastú ping-
manna að bjóða peim
sérstakan pingmanna-
afslátt í verslun
Sævars Karls?
Jú, og meira að segja
hef ég gert slíkt hér á
ámm áður. Þá fór ég
á fundi flokkanna og
bauð þeim góð kjör,
dreifði auglýsingum
á alla mögulega
staði, meira að segja í
Alþingishúsið. Ég
hef vissulega lagt
minn skerf í þessi
mál.
Hvernig myndir pú
vilja sjá stjórnmála-
menn klædda?
Þingmaður þarf að
eiga 20-30 skyrtur og
mörg silkihálsbindi.
Hann á að kaupa
vönduð klassísk föt,
blá eða grá í vinnuna
og hann þarf líka að
eiga að vandaðan
sportfatnað þegar
hann fer í
kjördæmið. Hann á
að klæða sig eftir
aðstæðum og eftir
því hvern hann talar
við í hvert sinn og
vanda sig við
fatavalið. Reyndar
komst Steingrímur í
Seðlabankann þrátt
fyrir að vera alltaf
með sama græna
bindið í sambands-
htunum og hann er
með það ennþá.
Einhver skilaboð til
íslenskra stjórnmála-
manna?
Þeir eiga að huga
meira að fatastfl, það
er stórt atriði að vera
í vönduðum og
fallegum fötum.
Þetta er það sem
maður sér fyrst, áður
en þeir byrja að tala.
Föt eiga að vera
framar á for-
gangslistanum. Svo
eiga þeir að fá sér
skyrtu sem er ekki
straufrí.