Íslenska leiðin - 01.10.2001, Page 15

Íslenska leiðin - 01.10.2001, Page 15
I öðru lagi Þrátt fyrir samninginn um evrópska efnahagssvæðið eru enn allt að 20 prósent tollar á fullunnum íslenskum sjávarafurðum inn í ESB. Þetta hefur leitt af sér að íslenskir aðilar hafa frekar einbeitt sér að frumvinnslu í stað fullvinnslu, auk þess sem ný- leg dæmi eru um að hérlendir fullvinnsluaðilar hafi neyðst til að færa starfsemi sína frá fslandi til Evrópusambandsríkja sökum þessa. Með aðild að Evrópusambandinu yróu þeirtollar sem eft- ir eru á sjávarafurðum afnumdir og jafnframt fengi íslenskur landbúnaður loks frjálsan aðgang að mörkuðum Evrópusam- bandsins. í þriðja lagi Forsenda þess að taka upp evru sem gjaldmiðil á íslandi er að ganga til liðs við Evrópusambandið en þátttaka í peningamála- stefnu ESB myndi auka stöðugleika í íslensku efnahagslífi til mikilla muna frá því sem nú er. Ennfremur myndi evruaðild samstundis leiða af sér töluverða vaxtalækkun; eða því sem samsvarar vaxtamuninum milli íslands og evrusvæðisins sem nú er um 4 prósent. Og þar sem vaxtastig er stór þáttur í ákvöróun fjárfesta um sín viðskipti getur það haft mikinn ávinn- ing í för með sér fyrir íslenskt efnahagslíf, auk þess sem lægri vextir hefðu einfaldlega í för með sér mun ódýrari lán fyrir heimilin. Hingaó til hefur mönnum þótt muna um minna. I fjórða lagi i heimi þar sem vörur, þjónusta og fjármagn flæðir frjálst yfir landamæri, þá hlýtur að verða hörð samkeppni um fjárfesting- at bæði innan landa og yfir landamæri. Áður en ráðist er í um- fangsmikla fjárfestingu í framleiðslufyrirtæki yfir landamæri, þá nannsaka fjárfestar gaumgæfilega viðskiptaumhverfi fjárfest- ingakostsins. Til að mynda vegna gengisóvissu og hærra vaxta- stigs eru íslensk fyrirtæki einfaldlega ekki jafn fýsilegur fjár- festingarkostur ef þau standa fyrir utan ESB og evrusvæðið. Um þetta eru flestallir fjármálaspekingar sammála. I fimmta lagi Ein helsta röksemd þess að taka upp sameiginlegan gjaldmiðil f Evrópu hefur verið hinn mikli kostnaður sem fylgir því að flytja fjármagn milli hinna ýmsu gjaldmiðilsvæða í Evrópu. Það fylgir því aukinn kostnaður þegar tekjur eru í einum gjaldmiðli en út- gjöld í öðrum. Og meðan íslendingar standa fyrir utan evru- svæðið mun gengiskostnaður skekkja samkeppnisstöðu ís- lenskra fyrirtækja gagnvart svæðinu. Það má því segja að geng- iskostnaður virki eins og auka skattur á íslenska framleiðslu. Að- ild að ESB og evrunni myndi þannig veita íslenskum fyrirtækjum möguleikann til að keppa á jafnréttisgrundvelli við fyrirtæki í Evr- ópu. Það er augljóst að gengisbreytingar gera það að verkum að það er alltaf áhættusamt að eiga í viðskiptum milli gjaldmiðilssvæða. Þessi óvissa um gengisþróun kemur hvað harðast niður á litlum og meðalstórum útflutningsfyrirtækjum, en þau eru mjög mik- ilvægur hluti af hinu íslenska hagkerfi. í raun teljast flestöll fyr- irtæki á íslandi til lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Með aðild að evrusvæðinu yrði óvissan um gengisbreytingar gagnvart þess- um stærsta markaði okkar íslendinga úr sögunni og meiri stöð- ugleiki yrði í vióskiptaumhverfi fyrirtækjanna. í sjötta lagi Enn er ónefndur sá ávinningur sem íslensk heimili nytu við að- ild þar sem matvælaverð er töluvert lægra í nágrannaríkjum okkar í Evrópusambandinu en hér á íslandi. Þrátt fyrir að ís- lensk stjórnvöld geti enn gert margt á þessu sviði án aðildar að ESB, til að mynda með einhliða tollalækkunum, þá ætti evruaðild ennfremur að leiða til lægra vöruverðs, þar eð allur samanburð- ur við vöruverð annarsstaðar í álfunni yrói sýnilegri. Afleiðingin yrði því aukin kaupgeta almennings. í sjöunda lagi Eins og áður segir fengu íslendingar að mestu aðild að sam- starfi Evrópusambandsríkja á sviði mennta og vísindamála með samningnum um evrópska efnahagssvæðið, en það áhrifaleysi sem fylgir stöóu EFTA ríkjanna í EES hefur þó haft nokkuð tak- markandi áhrif á möguleika íslendinga í því samstarfi. Hvað skólamál varðar yrði sú breyting helst við aðild að Evrópusam- bandinu að skólagjöld íslenskra námsmanna í Evrópu, sérstak- lega í Bretlandi, myndu minnka til mikilla muna og nánast hver- fa en íslenskir námsmenn greiða við núverandi fyrirkomulag rúmlega 50 milljónir á ári í skólagjöld til breskra háskóla. í áttunda lagi Inn í útreikninga um kostnað og ávinning við Evrópusambands- aðild hefur ekki verið tekið tillit til þess áhrifaleysis sem við íslend- ingar búum við með núverandi fyrirkomulagi, enda er það kannski flókið reikningsdæmi, en áhrifaleysið er til að mynda fólgið í því að íslendingar þurfa að taka vió lögum og reglugerðum frá ESB en geta nánast ekkert haft innihald þeirra að segja. Til að mynda hafa íslendingar afar litla möguleika á að koma hags- munamálum landsins á framfæri í við núverandi aðstæður. Þannig má fullyrða að stærsti gallinn við núverandi stöðu íslands sé fólginn í því áhrifaleysi á þróun samstarfsins sem fylgir að- stöðu EES-ríkjanna í EFTA. Nær öll stefnumótun og ákvarðana- taka um framtíðarsamstarf, reglugerðir og lagasetningu fer fram í stofnunum Evrópusambandsins þar sem íslensk stjórn- völd hafa mjög takmarkaða aðkomu og enn minni áhrif. í níunda lagi Við hugsanlega aðild íslands að Evrópusambandinu mun aðkom- an að ákvarðanatökunni aukasttöluvert á nær öllum sviðum. Öll aðildarríki ESB fá fulltrúa í framkvæmdastjóm sambandsins sem fer í raun með framkvæmdavaldið og sér um allan rekst- ur ESB. Þessir fulltrúar hafa mikil áhrif á þróun samstarfsins og því er það einkar mikilvægt fyrir smærri ríki að hafa aðkomu að fundum framkvæmdastjómarinnar þar sem málum er ráð- ið. Ráðherraráðið fer í raun með löggjafarvaldið innan ESB og er æðsta ákvörðunarvald sambandsins. Ráðherraráðið er einfald- lega myndað af ráðherrum aðildarríkjanna á hverju málefnasviði fyrir sig. Þannig eru það til að mynda ráðherrar sjávarútvegs- mála í aðildarríkjunum sem skipa ráðherraráðið um sjávarút- vegsmál. Hvert ríki hefur einn ráðherra í hverjum málaflokki en aðildarríkin hafa mis mörg atkvæði eftir íbúafjölda. í fjölmörgum málaflokkum þurfa ákvarðanir þó að hljóta samþykki allra aðild- arríkjanna. Meðan ísland býrvið þá stöðu að þurfa að taka upp í löggjöf landsins um það bil 80 prósent af lagagerðum ESB hlýt- ur það teljast til galla að hafa ekki aðkomu að ráðherraráðinu, sérstaklega í Ijósi þess að leitast er við að ná málamiðlunum í ákvarðanatöku innan ráðsins, líkt og gerist innan annarra stofnana ESB, en það hentar smáríkjum eins og íslandi sér- staklega vel. í tíunda lagi Ómögulegt er að reikna það út með nokkurri vissu hvaða pen- ingalegan ávinning ofangreindir þættir muni nákvæmlega hafa íslenska leiðin • Átta - Fimm I Bls. 15

x

Íslenska leiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.