Íslenska leiðin - 01.10.2001, Qupperneq 23

Íslenska leiðin - 01.10.2001, Qupperneq 23
ur á erlendum fjárfestingum hér á landi aukast. Á hinn bóginn myndu íslendingar missa stjórn á einu virkasta hagstjórnan- tæki sínu, peningastefnunni. Þá gæti aðild að Myntbandalaginu haft í fön með sén auknan gengissveiflun í viðskiptum við önnur myntsvæði, til dæmis Bandaríkin, samanborið við núverandi fyr- inkomulag, þ.e. gengiskönfu. Kostum Myntbandalagsaðildar má að nokkru leyti ná með rýmkun heimilda fyrirtækja til að halda bókhald og telja fram til skatts í öðrum gjaldmiðli en krónu, til dæmis í evrum, og leggja Samtök atvinnulífsins áherslu á mikilvægi rýmkunar slíkra heimilda. Eftir stendur þó gríðarlegur fjármagnskostnaður ís- lensks atvinnulífs. Loks er hugsanlegt að taka einhliða upp evr- una sem gjaldmiðil og leggja niður krónuna. Sjávarútvegsmál Það kemur eflaust engum á óvart að sjávarútvegsmálin skuli vera sá málaflokkur þar sem Samtök atvinnulífsins telja að hel- stu galla hugsanlegrar aðildar íslands að ESB sé að finna. Með aðild að ESB myndi íslenskur sjávarútvegur heyra undir sam- eiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins. Ekki er ástæða til að ætla að undanþága fengist frá henni, þótt látið yrði á það reyna í aðildarviðræðum, en ella leitað ásættanlegra sérákvæða. Ljóst er að íslenskur sjávarútvegur gæti ekki unað við núverandi stefnu ESB í sjávarútvegsmálum. Ákvarðanataka um leyfilegan heildarafla og stjórnun veiða úr deili- og flökkustofnum myndi flytjast alfarið til stofnana ESB. í Ijósi reynslunnar bendir fátt til að ráðgjöf íslenskra fiskifræðinga eða stefna íslenskra stjórnvalda hefðu mikil áhrif í þessum efn- um. Aftur á móti hníga rök að því að ráðgjöf íslenskra stofnana yrði lögð til grundvallar ákvarðanatöku um leyfilegan heildarafla innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Meginregla ESB við kvótaút- hlutun til aðildarríkja er reglan um hlutfallslegan stöðugleika. Þá yrði fyrirkomulag vió úthlutun veiðiheimilda til útgerða á forræði íslendinga sjálfra. Samkvæmt meginreglu ESB má hins vegar ekki mismuna þegnum sambandsins hvað snertir fjárfesting- ar, þótt til séu undantekningar frá þeirri meginreglu. Við aðild gætu íslendingar jafnframt sett reglur um að ráðstöfunar- og nýtingarréttur á innlendum kvóta yrði bundinn raunverulegum tengslum við efnahagslíf í landi. Hins vegar er allsendis óvíst hvaóa áhrif íslendingar hefðu á sjávarútvegsstefnu ESB. Eftir stendur að ESB-aðild hefði í för með sér rétt erlendra aóila til að eignast meirihluta í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum með beinum hætti, erlenda aðkomu að mótun íslenskrar sjáv- arútvegsstefnu og aó ákvarðanir um heildaraflamagn yrðu tekn- ar á vettvangi ráðherraráðs ESB. Fyrir dyrum stendur endur- skoðun sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar og því ríkir ákveð- in óvissa um horfur á því sviði. Innan ESB eru viðhorf til sjávar- útvegs víða ólík því sem er hérlendis. í stað þess að leggja áher- slu á viðskiptafrelsi og hagkvæmni í rekstri hefur sjávarútvegs- stefnan víða treyst á byggðastyrki. Þá hafa jafnvel heyrst efa- semdaraddir um meginregluna um hlutfallslegan stöðugleika. Flest bendir þó til að þróunin innan ESB sé í þá átt að reyna að koma á sjálfbærum og arðbærum rekstri, en beita öðrum að- ferðum til stuðnings vió jaðarbyggðir. Hins vegar er ófyrirséð um þá þróun. Meginsjónarmið fslendinga í samskiptum við ESB á sviði sjávar- útvegs verður þó ávallt það að hér á landi er um allt annan at- vinnuveg að ræða en víðast hvar í ESB og að fslendingar gætu aldrei fallist á að greinin yrði sett undir önnur sjónarmið en þau er lúta að sjálfbærum og arðbærum rekstri. Verkefnið framundan Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að stuðlað sé að upplýstri umræðu um kosti og galla ESB aðildar og að stjórnvöld og hags- munasamtök hefjist handa við skilgreiningu samningsmark- miða íslands vegna hugsanlegrar aðildarumsóknar að ESB. Á vettvangi SA eru hafnar umræður um skilgreiningu samnings- markmiða komi til umsóknar um aðild, þ.e. hvaða atriði bæri að leggja mesta áherslu á í aðildarviðræóum. Loks þarf að tryggja eins og kostur er að EES-samningurinn haldi gildi sínu og virkni gagnvart íslandi. í því skyni er meðal annars brýnt að efla sam- ráð við einstök aðildarríki ESB og EFTA, að ógleymdum þeim ríkj- um sem nú eiga í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Islenska leiðin • Áhersla á aukið samráð Bls. 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Íslenska leiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.