Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - dec. 2022, Side 27
27
Inogen ferðasíurnar
Samkvæmt upplýsingum frá framleiðendum Inogen ferðasíanna
getur meirihluti súrefnissjúklinga notað þessar vélar til
súrefnisgjafar á næturnar! Á það við um Inogen One 2, 3, 4 og 5
sem eru algengar á Íslandi. Vélarnar sem nýta má á næturnar
eru búnar séstakri snjalltækni (Intelligent Delivery Technology)
sem tryggir að súrefnispúls er þrýst út um leið og búnaðurinn
skynjar að innöndun notandans hefst og skilar þannig öllum
hleðsluskammtinum á réttum tíma inn í öndunarferlið.
Bregðast líka við öndunarhraða
Ásamt því að skila súrefni á réttum tíma, bregst tæknin við
öndunarhraða þínum! Þessi eiginleiki gerir þér kleift að nota
tækið á meðan þú sefur þó að það bjóði ekki upp á stöðugt
flæði. Þegar þú sefur dregur úr öndunartíðni sem tækið skynjar
og eykur sjálfkrafa, eða minnkar magn súrefnis í hverjum
hleðsluskammti eftir súrefnisstillingu og öndunarhraða. Þetta er
til að tryggja að þú fáir nauðsynlegt súrefni í svefni.
Greinir grunnan andardrátt í munni
Eitt stærsta vandamálið við notkun á púlsflæði frá ferðavélum
meðan sofið er, kemur fram þegar notendur anda í gegnum
munninn. Inogen hefur fundið lausn á því og getur greint
grunnan andardrátt í munni. Þetta á þó alls ekki við um
einstaklinga sem eru með kæfisvefn, eða önnur svefntengd
öndunarvandamál og alls ekki þá sem þurfa að nota CPAP eða
BiPAP vélar. Ef einhver vafi er um hvort þú getir notað
ferðavélina þína á næturnar, er best að fá ráðgjöf frá eigin
lungnalækni.
Andrjes Guðmundsson, formaður Lungnasamtakanna.
Inogen One 2
Stilling Einföld rafhlaða Tvöfald rafhlaða
1 Allt að 5 tímar Allt að 10 tímar
2 Allt að 4 tímar Allt að 8 tímar
3 Allt að 3 tímar Allt að 6 tímar
4 Allt að 2 tímar Allt að 4 tímar
5 Allt að 2 tímar Allt að 4 tímar
6 Allt að 2 tímar Allt að 4 tímar
Inogen One 3
Stilling Einföld rafhlaða Tvöfald rafhlaða
1 Allt að 4 tímar og 30 mín. Allt að 9 tímar og 30 mín.
2 Allt að 4 tímar Allt að 8 tímar og 30 mín.
3 Allt að 3 tímar Allt að 6 tímar
4 Allt að 2 tímar Allt að 4 tímar
5 Allt að 1 tímar og 42 mín. Allt að 3 tímar og 18 mín.
Inogen One 4
Stilling Einföld rafhlaða Tvöfald rafhlaða
1 Allt að 2 tímar og 42 mín. Allt að 5 tímar
2 Allt að 2 tímar og 15 mín. Allt að 4 tímar og 30 mín.
3 Allt að 1 tímar og 20 mín. Allt að 2 tímar og 30 mín.
Inogen One 5
Stilling Einföld rafhlaða Tvöfald rafhlaða
1 Allt að 6 tímar og 30 mín. Allt að 13 tímar
2 Allt að 5 tímar Allt að 10 tímar
3 Allt að 3 tímar og 30 mín. Allt að 7 tímar
4 Allt að 2 tímar og 30 mín. Allt að 5 tímar
5 Allt að 1 tímar og 51 mín. Allt að 3 tímar og 48 mín.
6 Allt að 1 tímar og 26 mín. Allt að 2 tímar og 58 mín.
Næturnotkun á ferðasíum
Er hún leyfileg?
Hversu lengi endist ferðasían
Eftir Andrjes Guðmundsson, formann Lungnasamtakanna
Notendur sem hafa þörf fyrir viðbótarsúrefni eru gjarnan óöryggir um hvernig nota skuli tækin og spyrja oft hversu lengi kúturinn eða
ferðavélin endist. Þetta á einkum við í byrjun, áður en þeir hafa kynnst þessum tækjum af eigin raun. Hins vegar er yfirleitt erfitt fá svör
við þessum spurningum en skýringin á því er einfaldlega: „Það fer eftir ýmsu!“ Það fundust þó upplýsingar um Inogen ferðasíur sem
eru algengastar á Íslandi og hægt er að notast við sem gróft viðmið. Það ber þó að athuga vel að alls kyns umhverfisþættir geta haft
áhrif og má þar nefna hitastig, gæði rafhlaða, gæði andrúmslofts í rýminu þar sem tækið er notað, öndunartíðni og margt fleira.
Hér að neðan má sjá töflur yfir endingu eftir tegundum.
Enn og aftur ber að ítreka að þessar töflur eru eingöngu til viðmiðunar. Hver og einn þarf að læra inn á sína vél og hvernig hún nýtist
honum í hans umhverfi. Rafhlöður slappast líka með tímanum og styttir endinguna til muna.