Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Qupperneq 4

Heima er bezt - 01.04.2002, Qupperneq 4
w rfTiHii Agœtu lesendur. Hver kannast ekki við vísuna góðu um regnbogann sem hljóðar eitthvað á þessa leið: Hver er sá veggur víður og hár, vœnum settur röndum, gulur, rauður, grænn og blár, gjörður af meistarahöndum. Þessi gamal vísnagáta, sem sjálfsagt allir kunna svarið við og getur því vart talist erfíð, svo mörgum sem hún hefíir verið á tungu töm í gegnum árin, fjallar um eitt með fegurri fyrir- bærum er séð verður í víðbláma jarðar, regnbogann. Hann er sérstakt fyrirbæri, sem aldrei er hægt að reikna nákvæm- lega út hvort, hvenær eða hvar muni sjást, og veit ég fá dæmi þess að hann hafi ekki vakið athygli fólks, þegar hann birtist. Hygg ég að allflestir hafi orð á því þegar þeir koma auga á skýran regnboga og þá yfirleitt til að benda öðrum viðstöddum á hann. Ekki eru litir hans reyndar alveg jafn hreinir og klárir og í vísunni segir, svo sem eðlilegt er, vegna þess hvemig þeir em til orðnir, né er röðin sú hin sama. Þar hefur að sjálfsögðu stuðlasetning vísunnar ráðið ferð hjá höfundi og skáldaleyfi. Ýmsu hefur regnboginn tengst í gegnum tíðina, bæði þjóð- trú og guðstrú. í Biblíunni segir að hann sé áminning Guðs um sáttmála hans og mannkyns, í þjóðtrúnni er hann aftur á móti fyrirbæri sem uppfyllir óskir manns takist manni að komast undir enda hans. Það er náttúrlega, eins og svo margt annað í þá vem, afskaplega erfitt og liggur það auðvitað í hlutarins eðli, því litagleðin, eins menn vita, stafar af ljósbroti í regndropum og verður aðeins til undir vissu sjónarhomi, og því mun regnboginn alltaf hörfa undan manni, eftir því sem maður nálgast hann, eðli málsins samkvæmt. Þess vegna hef- ur líka höfundi eða höfundum þjóðsögunnar um hann, talið nokkuð óhætt að lofa mönnum gulli og grænum skógum, kæmust þeir undir enda hans, vitandi það að slíkt væri með öllu ógerlegt. Þó er svolítið merkilegt hvað þessi trú á auðævi regnbogans er lífsseig, þó í gamni sé gert í dag. Eg minnist þess að á vinnustað einum, sem ég starfaði á fyrir nokkmm ámm síðan, kom kvenkynshluti starfsfólksins auga á afar bjartan og fal- * ‘ legan regnboga, sem út um gluggann að sjá virtist í nokkuð sæmilegri seilingarfjarlægð. Allar tóku þær þá ákvörðun að ffeista nú gæfunnar og komast undir enda bogans. Vitandi um hins vegar, þennan annmarka eðlisffæðilögmálsins, þá ákváðu þær að snúa á það með þeim hætti, að staðsetja ná- kvæmlega hvar endinn nam við jörðu frá þeim séð. Var það tiltölulega auðvelt, þar sem hann bar niður á milli húsa og annarra mannanna handverka. Stormaði síðan hersingin út og öll á þann stað þar sem fyrr hafði verið ákveðinn. Þar hafa þær væntanlega sett fram sínar óskir, enda komu þær all glað- beittar til baka og ánægðar með stundina. Aldrei hef ég þó heyrt um árangurinn, hvort regnboginn skilaði því sem um var beðið, en hver veit líka hvers eðlis óskimar vom, ekki er endilega víst að þær hafi allar fjall- að um auð og völd, eins og sagt er. En það má alltaf prófa, til gamans, þó ekki sé til annars, eins og þessar ágætu stúlkur gerðu, og einmitt það viðhorf held ég að sé eitt af því sem viðheldur svo vel þessari trú á regnbogann. í vísunni góðu, sem hér var nefnd áður, er litaröðin talin gulur, rauður, grænn og blár, en hún mun í raunveruleikanum vera rauður, gulur, grænn og blár, þ.e.a.s. höf- uðlitimir, en svo spannar regnboginn nánast flesta liti þama á milli, því allt fer það eftir því undir hvaða sjónarhomi sólar- geislamir falla á dropana frá áhorfandanum séð. Það er því ekki svo fjarri sanni þegar fólk talar um að eitthvað sé í “öll- um regnbogans litum.” Stundum er regnboginn tvöfaldur og er sagt að ástæða þess sé sú að ljósbrot verður einnig þegar ljósgeislamir fara út úr dropanum á þeirri hlið er ffá áhorfandanum snýr. Það er svo margt þegar að er gáð, sem er svo einfalt en samt flókið, þeg- ar vísindin upplýsa fólk um ýmislegt það sem fyrir augu ber. Náttúran er litrík og margt í henni gleður svo sannarlega augað, ef menn bara gefa sér tíma til þess að veita því athygli og skoða. Það er því miður, hygg ég, talsverður misbrestur á því í nútíma þjóðfélagi að fólk gefi sér tíma til þess að njóta þess sem næst því er og þá um leið ódýrast í þessu allsnægta þjóðfélagi okkar. Því ekki að gefa sér aðeins tíma og horfa í kringum sig, njóta þess sem okkur hefur verið veitt til fegurð- ar og yndis, án tillits til stéttar, stöðu eða efnahags. Þannig em reyndar flest tilboð náttúmnnar og betur verður tæplega boð- ið. Guðjón Baldvinsson 148 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.