Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Side 9

Heima er bezt - 01.04.2002, Side 9
Kirkjukór Húsavikur. Arnljótur er þriðji frá hægri í fremri röð. Myndin er tekin í Húsavíkurkrikju. sprengjur. Sennilega hefðum við get- að sprengt okkur í loft upp ef við hefðum losað um spangirnar. Þetta er nú svona til að sýna hvað allt þetla hernaðarbrölt var óskaplega fram- andi fyrir manni. Svo fækkaði her- mönnunum á Húsavík og loks urðu bara örfáir eftir. í rafvirkjun á Húsavík „Strákar byrjuðu ungir að vinna á þessum árum. Maður lærði að taka til hendinni í sveitinni og svo fór ég út á vinnumarkaðinn strax, ungling- urinn. Ég var í vegavinnu ein þrjú sumur eftir ferminguna hjá Jónasi Bjarnasyni keyrara. Svo stundaði ég nú ýmsa vinnu, var til dæmis vetrar- part á skrifstofum Húsavíkurbæjar, en þó hvað lengst í verslun St. Guðjohnsen áður en ég fór að læra mína iðn. Árið 1945 fór ég á námssamning í rafvirkjun hjá Örnólfi Örnólfssyni. Hann var rafvirkjameistari nreð há- spennuréttindi, Vestfirðingur að ætt og gegndi starfi rafveitustjóra á Húsavík frá 1945 til 1952. Þá var ný- stofnaður iðnskóli á Húsavík. Hann var til húsa í Garðar, sem Kaupfélag Þingeyinga átti. Skólastjóri var séra Friðrik A. Friðriksson. Ég var í hópi þeirra fyrstu sem stunduðu nám við Við laufabrauðsskurð á Grenimel, með Hrafnkeli og Arnljóti, dœtrasonum. Iðnskóla Húsavíkur. Þar var ég í tvo vetur og útskrifaðist 1948. Þarna voru miklir ágætis kennarar, meðal annars Helgi Hálfdánarson lyfsali, sem kenndi okkur efnafræði, og Ás- geir Einarsson vélvirki, sem kenndi teiknigreinar. Námið gekk vel og ég minnist þess sérstaklega að við Jón Ármann Jónsson vorurn hvattir til framhaldsnáms.“ Þá var gamla rafstöðin frá 1918 framan í Stangarbakkanum að enda sitt skeið. Við hana störfuðu Ás- mundur og Benedikt, synir Jóns Baldvinssonar fyrsta rafstöðvarstjóra á Húsavík. Þarna undir lokin var sett upp lítil díselstöð til að keyra með litlu vatnsaflsstöðinni. Svo kom raf- magnið frá Laxárvirkjun 1947. Þá var ég í dálitlum vinnuflokki á veg- um Örnólfs við að fara hús úr húsi og endurbæta raflagnir. Þarna var verið að leggja niður gamla jafn- straumsstöð og í staðinn kom rið- straumurinn frá Laxá og þá þurfti að yfirfara og breyta öllum lögnum. Mér er minnisstæður fyrsti dagur- inn sem ég vann hjá Örnólfi. Það var fyrsti september 1945. Þá fór ég með Jóni Baldvinssyni til þess að yfirfara og lagfæra lagnir í sláturhúsi Kaup- félags Þingeyinga fyrir sláturtíðina. í minningunni finnst mér afar skemmtilegt að hafa fengið að vinna með Jóni Baldvinssyni minn fyrsta dag í rafmagninu. Ég átti eftir að starfa við þetta alla mína tíð á Húsavík og byrjaði með honum sem hafði verið fyrsti rafvirkinn þar. Hann var hálfgerð þjóðsagnapersóna, tré- smiðurinn, sem gerð- ist rafvirki og raf- veitustjóri á Húsavík fyrir 1920, gjörsam- lega sjálfmenntaður í rafmagni. Ég tók sveinspróf 1949. Þegar námi lauk var Örnólfur Örnólfs- son rafveitustjóri og meistari minn hættur í raflögnunum og ég tók við því af honum og stofnaði mitt eigið fyrirtæki. Frá 1951 til 1986 var ég rafverktaki á Húsavík, vann við raf- lagnir og þess háttar og rak samtímis verslun með raflagnaefni og raftæki. Lengst af var Bjarni bróðir minn með mér og oft fleiri menn. Ég var með aðstöðu lengi á gilbrúninni fyrir neðan samkomuhúsið gamla, en síð- ustu árin hafði ég verkstæði niðri í húsi mínu. Það var alla tíð nóg að gera á Húsavík þótt mönnum fjölgaði í iðn- inni. Við vorum í raflögnum úti um alla sýslu, lögðum í fjölda húsa bæði í Suður- og Norðursýslunni, sérstak- lega þó í Suðursýslunni. Það er margs að minnast frá þeim árum.“ Heima er bezt 153

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.