Heima er bezt - 01.04.2002, Qupperneq 10
Það þurfti enginn að láta sér
leiðast á Húsavík
„Það var furðu margt sem ungt fólk
og óbundið gat haft fyrir stafni í frí-
stundum sínum um miðja öldina á
Húsavík. Þar voru til að mynda bíó-
sýningar nokkuð reglulega. Vern-
harður Bjarnason var með bíóið og
sýndi Roy Rogers og Trigger og
fleira skemmtilegt. Einhverju sinni
ætlaði ég að gerast sýningamaður hjá
Venna en af einhverjum ástæðum
varð lítið úr því. í þá daga voru
sveitaböllin nokkuð fastur punktur í
tilverunni, böll á Hólmavaði, Breiðu-
mýri, Fosshóli og á fleiri stöðum.
Ungt fólk vill yfirleitt lifa lífinu lif-
andi. Það átti
líka við mig.
Þá þótti sjálf-
sagður hlutur
að líta á
sveitaböllin.
Einnig hef ég
alltaf kunnað
vel við mig úti
í guðsgrænni
náttúrunni.
Húsavík og
nágrenni hefur
upp á fagurt
umhverfi að
bjóða, sem
allir geta unað
við, ungir og
gamlir. Oft
fórum við á litlum bátum út á Flóann
með byssur eða færi. Það gat verið
afar skemmtilegt.
Ég hafði og hef gaman af söng eins
og bræður mínir. Hér á árum áður
söng ég með karlakórnum Þrym í þó
nokkur ár. Einnig söng ég með
Kirkjukór Húsavíkur og hafði
ánægju af. Áður en ég byrjaði minn
sjálfstæða rekstur var ég eitt ár, ung-
ur maðurinn, á Akureyri. Þá söng ég
með Karlakór Akureyrar og ferðaðist
með honum hingað til Reykjavíkur
þar sem sungið var á kóramóti. Það
var ómetanlegt að kynnast mönnum
eins og Jóhanni Konráðssyni og fleiri
snillingum. Einnig fór ég söngferðir
með karlakórnum Þrym um landið.
Þar var fyrst stjórnandi séra Friðrik
A. Friðriksson og seinna þeir feðgar
frá Heiðarbót, Sigurjón Pétursson og
Sigurður Sigurjónsson. Á flestum
konsertum okkar söng Eysteinn
bróðir minn einsöng.
Ómetanlegt að eiga góða
fjölskyldu
„Kona mín, Ásta Jónsdóttir, er fædd í
Austur-Landeyjum í Rangárvalla-
sýslu, dóttir hjónanna Jóns Árnason-
ar og Ragnhildar Runólfsdóttur. Hún
er kennari að rnennt og kom norður í
Reykjadal árið 1956 til þess að
I sumarfríi á Hawaii.
154 Heima er bezt