Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Page 11

Heima er bezt - 01.04.2002, Page 11
kenna við Húsmæðraskólann á Laug- um. Þar lágu okkar leiðir saman, sem varð aftur til þess að við giftumst og hófum búskap á Húsavík. Þar kom- um við okkur upp húsi og fjölskyld- an stækkaði eins og gengur. Ásta kenndi við Barna- og gagnfræðaskól- ann á Húsavík öll okkar ár þar og við Laugalækjarskóla eftir að við kom- um suður árið 1986. Ástæða þess, að við fluttum, var einkum sú, að dætur okkar báðar voru búsettar í Reykja- vík og barnabörnin og það var ósköp eðlilegt, að við færðum okkur bara til þeirra. Ég hef nú stundum orðað það svo í gamni, að Ásta hafi komið norður til mín og verið hjá mér þenn- an tíma, tæp þrjátíu ár, og síðan hafi ég farið suður með henni. Hún kom héðan úr Reykjavík, hafði starfað hér í Reykjavík og átti allt sitt fólk hér. Ragnhildur, móðir hennar, kom reyndar norður og dvaldi hjá okkur þó nokkuð lengi. Við eigum barnaláni að fagna. Slíkt verður aldrei fullþakkað. Dætur okkar eru tvær, Þórhalla og Ragn- hildur. Eldri dóttirin, Þórhalla, er kennaramenntuð og kerfisfræðingur hjá Flugleiðum og hefur verið það síðan hún byrjaði að vinna hér í Reykjavík. Maður hennar er Sighvat- ur Sævar Árnason. Hann er doktor í lífeðlisfræði og dósent við lækna- deild Háskóla íslands. Þau eiga tvö börn, Hrafnkel sem stundar nám í Menntaskólanum við Sund og Ástu Guðrúnu. Yngri dóttirin, Ragnhildur, hefur starfað sem lögfræðingur hjá Alþingi og í stjórnarráðinu í tæp 10 ár. Hún er skrifstofustjóri i heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neyti en tekur í sumar við stöðu í sendiráði íslands í Brussel, þar sem hún mun starfa sem fulltrúi tveggja ráðuneyta næstu ár. Maður hennar er Ástvaldur Jóhannsson, er hefur starfað sem framkvæmdastjóri hjá Nýherja, og er að vinna að meistara- gráðu, MBA, við Viðskipta- og Hagfræðideild Háskóla íslands og hefur nýverið hafið störf í fram- kvæmdastjórn Össur Europe, sem staðsett er í Eindhoven í Hollandi. Börn þeirra eru þrjú. Arnljótur er elstur. Hann stundar nám við Menntaskólann í Reykjavík. Svo koma tvö yngri, Jóhann Páll og Ást- hildur Emma. Faðir hitaveitunnar? „Ég hef haft áhuga fyrir ýmsu um dagana. Þegar ég bjó á Húsavík hafði ég þó einkum áhuga fyrir farsæld bæjarins. Það var áhugamálið sem upp úr stóð. Ég sat í bæjarstjórn Húsavíkur urn margra ára skeið. Þá var heilmikill uppgangur á Húsavík en hefði vafalaust getað verið enn meiri. Besta framkvæmd frá þessum tíma er að mínu viti hitaveitan í bæn- um. Hún komst í gagnið á mínum bæjarstjórnarárum og reyndar sagði nú Björn Friðfinnsson við vígslu hennar, að eiginlega mætti segja að Arnljótur væri faðir hitaveitunnar. Hann hafði á takteinum svolítið skemnrtilega sögu til þess að renna stoðum undir þá fullyrðingu sína. Sagan var í stuttu máli þannig að bæjaryfirvöld höfðu látið gera áætl- un um lögn frá Hveravöllum til Húsavíkur og hún reyndist alltof dýrt fyrirtæki rniðað við olíuverð á þeim tíma. Húshitunarkostnaður hefði orð- ið hærri með Hveravallavatni en olíu. Svo gerist það á fundi með Birni Friðfinnssyni, þar sem við spjöllum um þetta, eins og gengur, að ég segi sem svo:„Við eigum bara að henda þessari einangrun af lögninni og leiða vatnið frá Hveravöllum til Húsavíkur án þess að einangra lögn- ina.“ Þannig var, að í áætlun Sigurð- ar Thoroddsen var gert ráð fyrir því, að gengið yrði frá lögninni, eins og hitaveituæðinni frá Reykjum í Mos- fellssveit til Reykjavíkur, þar sem allt var lagt í stokk og einangrað í bak og fyrir. Ég hafði lesið að hægt væri að gera þetta öðruvísi, það væri hægt að grafa lögnina í jörð og láta hitann í lögninni raunverulega mynda sína eigin einangrun í jarð- veginum. Ég man eftir því að einn af bæjarfulltrúunum sagði: „Jah, há. Þetta er ljóta vitleysan. Og fá þetta svo bara hlandvolgt til Húsavíkur.“ Honum leist nú ekkert á blikuna. En Björn Friðfinnsson sagði: „Við skul- um bara láta skoða þetta.“ Og af sín- um alkunna dugnaði dreif hann í því að fá Fjarhitun í Reykjavík til að kanna málið. Það leið ekki nema vika, eða svo, þá hringir Karl Ómar frá Fjarhitun í Reykjavík og segir. „Við erum búnir að líta á þetta dæmi og höfum séð í sænskum skýrslum að þetta á vel að vera hægt. Ef þið leggið æðina svona á vatnið að geta komið ágætlega heitt til Húsavíkur sennilega upp undir áttatíu stiga heitt.“ Okkur leist svo vel á, að við drif- um í málinu. Ég man nú ekki hvert einasta skref, en allt er það að sjálf- sögðu til skrifað. Við fórum til Reykjavíkur fimm saman, bæjar- stjórnarmenn, ásamt bæjarstjóra og héldum fund með fjármálaráðherra, Magnúsi Jónssyni frá Mel, i fundar- sal í Alþingi og á stuttum fundi var bara ákveðið að við fengjum heimild til þess að fara í kerfið og afla fjár- muna í hitaveitu frá Hveravöllum. Þetta var gert, drifið í hlutunum og það leið rúmt ár fá því að við fórum að vinna í þessu þar til brennheitt vatnið var farið að buna til Húsavík- ur. Það voru svo margir á móti þessari framkvæmd að ef greidd hefðu verið atkvæði um hana hefði hún verið kolfelld, það er ég sannfærður um. Það voru mjög sterkir áróðursmenn gegn þessu, umboðsmenn olíufélag- anna og fleiri. Mörgum leist ekkert á þessa nýjung. Þetta var á þeim tíma sem olían var ódýr og margir höfðu fengið mjög góð olíukynditæki, sjálfvirk, amerísk tæki, sem þeir voru ánægðir með. Þessi mál voru í ágætu lagi í bænum og menn voru hræddir við að skipta yfir.“ Heldur þú að við fáum ekki verkið? „En ég kom nú meira við sögu hita- veitunnar. Þannig var að við höfðum verið að vinna saman við raflagnir í Kísiliðjunni í Mývatnssveit, félag- arnir, ég, Grímur Leifsson og Haukur heitinn Ákason, allir rafvirkjar frá Húsavik. Við höfðum nýlokið þar verki um vorið þegar boðin var út hitaveitulögnin Hveravellir - Húsa- vík. Við tókunr okkur saman og sett- um inn tilboð í lögnina og heldur þú Heima er bezt 155

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.