Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 15

Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 15
Agúst Sigurðsson frá Möðruvöllum Af Jöklajörðu rís Danir viðhafa gamla orðalag- ið, þegar presturinn kastar rekunum. Þess vegna segja grænlenzku prestarnir hið sama við höfðagaflinn á kistunni, þótt enginn jarðvegur sé í kirkjugarðinum, ekki opin moldargröf. Síra Imaka Elías- sen, fráfarandi sóknarprestur í 111- oqqortoormiut, vildi ekki orðlengja, hver úrræði hann hefði fundið við tuttugu jarðarfarir í tveggja ára þjón- ustu norðurfrá. Hann er fæddur og upp alinn í hinu prestsetursþorpinu á austurströnd Grænlands, Tasiilaq í Ammassalík, en þar eru raunar svip- uð vandkvæði. í Rostungavík, skammt innan nýlenduþorpsins norður frá, er leirborinn sandur og má vera, að þangað sé sóktur jökla- leir í kassann, sem rekunum er kastað af, en hann fann ég þó ekki í kirkjunni. Hún var vígð 11. ágúst 1929 og er næsta vel búin munum, þótt ekki séu þar líkakrakur, járn og haki. Stunguspaði og reka eru tól, sem hér þarf ekki að leita. Hjá kirkj- unni stendur líkhús, rúmlengd dýpra en í Kulusuk, sem er annexía frá Tasiilaq, þar sem presturinn kemur venjulega í byrjun júlí, um all langan sjóveg og vinnur skylduga, tilfallna þjónustu. Ekki mun heiglum hent að jarða í hinni stóru klapparþró uppi í kirkju- garðinum norðan Scoresbysunds í óveðrum vetrarins og nóttdimmu dagsins. Virtist síra Imaka gleðilaus, hann var að kveðja sókn sína fyrir fullt og allt. Búslóð hans komin í lítinn gám á hlaðinu og átti að fara um borð í Álaborgarskipið á fárra daga fresti. í síðari birgðasiglingunni til Tasiilaq, með höfuðdagsstraumnum. Fjórði þáttur úróbyggðá Crænlandi Vígður kateket Eflaust hafði skammæ þjónustan hér í fjarlægu norðri verið álagsþung í rás viðburðanna, og ekki var eftir- ver fenginn, en kennari í grunnskól- anum, ung kona, þegar vígður kateket, og hafði hún sókt námskeið á prestaskólanum í Nuuk á sl. vetri. Einnig hún var þögul, nema sagðist sakna þess að mega ekki nota staup- in, sem stóðu þétt og tugum saman á grind innan á gráðuboganum, því að hún mætti ekki veita sakramenti. Voru nægar hillur í ónotaðri funda- Mía Símonsen kateket í stólnum. og fræðslustofu í bislagi vestur af kórnum. Ekki hafði verið venja að geyma staupin þar og nýbreytni var ekki á hennar færi, eins og vandlætið stjórnaði því. Kateketinn heitir Mía Símonsen og er hún ljósari á hörund en innfæddir Inúítar á Austurströnd- inni og ber nokkur önnur einkenni kynblendinga, sem hér eru fáir. Eru fréttir af störfum hennar dapurlegar, því að danskur guðfræðingur, sem tókst á hendur að vera um sinn á Grænlandi, kirkjuþjónunum til upp- örvunar og hollra ráða, segir, að Mía hafi gefizt upp á þjónustunni í hinni fjarskalegu afbyggð tíðra vandræða og margra dauðsfalla, a.m.k. í bili. Hræðsla við díoxíð eitrunina, krabbameinsvaldinn, enn til að auka á vanmáttinn og kvíðann. Það þarf sterk bein til að þola góða daga, en mikið sálarþrek til að afbera einangr- un fámennisins við Scoresbysund, al- mennt atvinnuleysi og fátækt. Vegna fréttar um óforvarað sjúkra- leyfi hins geðþekka katekets og kennara og auðséð vonleysið í fari síra Imaka, hins fáorða, unga upp- gjafarprests, skal ekki Ijölyrt um þá mynd, sem hann dró ósjálfrátt upp í bæjardyrunum á prestsetrinu, sem hann var að flýja, atvinnulaus í hinu brauðinu í Óbyggð á sínu ættarlandi. Hann mun hafa setzt að í Tasiilaq hjá móður sinni, sem er ekkja. Eru mæðginin afkomendur lítt blandaðra Inúíta, en síra Imaka er afar dökkur á hörund eins og kynsfólk hans á Aust- urströndinni, augun brún, hárið strítt og svart. Hef ég aldrei séð eins kaffibrúnt fólk og hér norður í Ishaf- inu. Hin brúna brá er ævafornt mongólskt afsprengi Dorset- og Sarqaqfólksins, blandað Rauðskinn- Heima er bezt 159

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.