Heima er bezt - 01.04.2002, Page 16
um í Norður-Ameríku á langri hirð-
ingjaleið og veiðimannaslóð austan
yfir Beringssund og undranafull
heimskautslönd Kanada.
Kirkjuskip
Kirkjuhúsið er reist í stíl, sem
stundum er líkt við skip á hvolfum.
Er það táknrænt, því að ekki varð
komizt í nýlenduna né úr, nema á
skipi, og aðeins í 5-7 vikur á hæstu
heimsskautssumri, eins og sagt var
frá í 1. tbl. Heima er bezt í fyrravet-
ur.
Kirkjugólf er rúmt milli bekkj-
anna, sem taka um 100 manns í sæti,
en því miður var þess ekki gætt, þeg-
ar gömlu gólfbreddurnar frá 1929
voru orðnar svo ágengilegar, að end-
urnýjunar var fullþörf, að sem líkast-
ur borðviður fengist. Parket varð
fyrir valinu. Sambærileg stílbrot eru
algengari hérlendis en tali taki. Par-
ketið nægði ekki á forkirkjuna og var
það lán. Minning kirkjugöngu ný-
lendufólks í 73 ár, svo fjarri heimsins
vegsemd, verður enn lesin, þar sem
slitið er dýpzt milli naglanna.
Prýðilegt orgel, sent af rausn norð-
ur í fámennið fyrir nokkrum árum, er
inni við kórinn sunnanvert, gegnt
predikunarstólnum, sérkennilegu
spjaldasmíði eins og sjá má af mynd-
inni af Míu Simonsen. Hún steig í
stólinn til þess arna, af því að ég var
ekki svo heppinn að vera um messu-
helgi norðurfrá, né heldur á útfarar-
degi.
Viðhald hins fyrsta og eina kirkju-
húss er ekkert að utan og liggja
vatnsklæðning og tréskífuþak undir
skemmdum. Þorpsklukkan á stafni
er löngu fjöðurslitin og hætt að tifa.
Mun ekki um það fengizt, en sóknar-
fólkið gengur í öðrum takti en rétt
stillt turnúr með rómversku tölunum.
Utskipið norðvestanvert, sem er
sæmilega rúm uppfræðslustofa í fé-
lagsheimilislausri sókn, þar sem
hvorki er missions- né góðtemplara-
hús, er í vanhirðu. í hliðstæðri út-
byggingu norð-austan nú upplýs-
inga- og ferðaskrifstofa með
nokkrum söluvarningi. Mía kateket
taldi, að von væri á viði í nýtt ytra
Skipið, sem flntti nýlendusöfnuðinn
norður, siglir í hvelfingu kirkjunnar.
Hún er vel búið og hátíðlegt guðshús.
Undir bröttu risi
Spítalinn er hið snotrasta timbur-
hús, gulmáluð þil og stafnar, ekki
portbyggt og þakið hátt og bratt.
Þetta er veglegasta húsið í plássinu
ásamt skrifstofuhúsi hreppsnefndar
og bæjarstjóra. Standa þau á sömu
lóð, en elliheimili rétt hjá. Gæti ver-
ið torg, en er gersamlega óumhirt og
varla færður steinn úr stað. Rétt fyrir
innan eru olíutankamir, ærið fyrir-
Síra Imaka Elíasson.
Drengir i kvöldsól.
Líkaminn er til muna
Ijósari en ásjónan.
byrði á kirkjuna, þakskíf-
ur og aðra nauðsyn húsinu
til aðbóta og verndunar.
Líklega þó með síðara
birgðaskipinu. Hafi efniviðurinn
borizt, hlýtur viðgerð að bíða fram í
júlí 2002. Ef til vill lengur, nema fá-
ist flokkur iðnaðarmanna. Þetta er
ekki ígripaverk á stuttri og stopulli
tíð vorsumarsins, sem getur horfið í
veturinn eins og hendi sé veifað.
ferðarmiklir og allar leiðslur ofan
jarðar. Munu þeir standa á þessum
fallegasta stað og eina undirlendi bú-
plássins, vegna aðdýpis og legu olíu-
skipsins. Hér þarf miklar birgðir, því
að rafmagn frá díeselmótorum er
ekki aðeins til ljósa, suðu og mest
160 Heima er bezt