Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 17

Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 17
allrar húshitunar, heldur þarf straum- ur að fylgja utanhússlögnum vegna frosta, en hér verður ekki grafið nið- ur fyrir frost í mold og möl. Alls staðar er grjót og undir því hörð klöppin, litfagurt fornberg, eins og bezt má greina í þverskurðarmynd sprengdu stórgrafarinnar í kirkju- garðinum. Húsin eru olíufrek til upphitunar í kuldabeltinu, enda eru þau flestöll byggð á stólpum og holt undir. Steyptur sökkull sést varla, því að steinsteypan hefur löngum þurft nokkurt frostlaust ráðrúm til að laga sig eftir aðstæðum. Allra nýjustu tæknibrellum er ekki til að dreifa. Einangrun lélegra, óvandaðra timb- urhúsa er lítil og undir bröttu, pappa- klæddu þaki eru kamers fjölskyldn- anna. Svo barnmargt er í plássinu, hvað sem líður ófijósemi af völdum díoxíðsins, að í 10 skyldubekkjum grunnskólans eru nálægt 100 nem- endur. Fjórðungur íbúa nýlendunnar er talinn undir 18 ára aldri. Skólinn er langt hús á einu gólfi. Virðist ný og ný kennslustofa vera viðbyggð sama endann eftir nauðsyn þeirrar kröfu, að skóli sé einsetinn hér sem annars staðar í landinu og samkennsla árganga aflögð. Kvað vera gott bókasafn í skólahúsinu, en ógreitt í að komast, vegna þess að flestir kennaranna hafa sig á burt í stuttu sumarleyfinu. Bækur hljóta að vera að mestum hluta á grænlenzku, enda ritmálið nær 240 ára, runnið frá síra Páli Egede, sem var undranæmur tungumálamaður. Fullmótað til festu og framtíðar um 1850, samhæft eftir 1970, opinbert tungumál á Vestur- Grænlandi, en reynt að leggja af mál- lýzku-mun, sem enn helzt þó við í fámenni Austurstrandarinnar. Áberandi er, hve nýlendufólkið við Scoresbysund skilur illa dönsku og talar málið báglega. Dönsk tökuorð eru þó mörg, enda nýyrðasmíð lítil og torveld, en aðlögunarhæfni græn- lenzku í nútímasamfélagi í allra óþjálasta máta. Stofnorðið lengist og viðtengist, svo að úr verður kæfandi stafarófa. Út yfir tekur þó í talna- fræði. Fyrir 20 árum sagði græn- lenzkur námsmaður í Kaupmanna- höfn mér, að enginn landi hans hefði numið verkfræði, einn, hélt hann, læknisfræði. Grunnskólinn verður að vera fyrir alla árganga frá 6 ára til 16-17 ára eftir getu. Ef það væri ekki í fram- kvæmd, yrði að senda unglingana til Nuuk. Þangað er hér um bil helm- ingi lengra flug en til Reykjavíkur og þrefalt lengra en til Ísaíjarðar. Þá væri málsins varnað og kemur slíkt vitanlega ekki til greina, meðan ból- seta helzt í nýlendunni. Mikil stækkun spítalans er sam- ræmd bygging, en arkitektinn ekki kunnugur kuldabeltisaðstæðunum: Stórar svalir til útivistar og heilsu- bótar vita gegn austlægu norðri. Mun þar ærið kaldsamt, en fagurt, því að árdagssól og aftanninn eiga stóla saman eins og Þorsteinn Er- lingsson ljóðaði um leikspil vor- ljósanna út hjá póli. Embœtti í tvítaki Stjórnvöldum ber skylda til að sjá svo um, að bæði læknir og ljósmóðir séu í Scoresbysundi, því að allt of langt og torfært er til Tasiilaq, þar sem hinn spítalinn á Austurströnd- inni er, læknir, ljósmóðir og hjúkrun- arkona. Er því háttað eins og um prestana, einn á hvorum stað. Hið sama um skólastjórana tvo og bæjar- stjórana báða. Sjúklingar frá Scores- bysundi hafa ekki ósjaldan verið sendir á Landsspítalann, enda flugið til íslands stytzt og talið eftir aðstæð- unum öruggt. Áður en flugvöllurinn var opnaður í Harrýsfirði 1985 var skíðaflugvél stöku sinnum send héð- an og lent norður á snjóbreiðunni í námunda við íshafsbyggðina. Hefur Helgi Skúlason flugstjóri frá Guð- laugsvík sagt mér gerr frá því, en hann er vel kunnugur þeim sögukafla flugsins og staðháttum á austurströnd Grænlands, þar sem sjúkraflugs hef- ur verið þörf. Það er raunar aðeins á þeim sjaldgæflega fáu og smáu mannvistarbólum á allri hinni gríðar- legu strandlengju í Óbyggð. Áður hef ég getið burstaljallgarðs- ins að sunnanverðum firðinum, sem rís í tign og ró í allt að 2500 m hæð úr sjó. Þetta eru norðurmörk basalt- svæðisins, sem liggur úr órafjarlægu vestri, hverfur í Grænlandshaf við hornbjarg Scoresbysunds, Brewster- höfða, og kemur aftur úr kafinu og verður þar á all löngu bili megin undirstaða íslands. Útnorðan við Scoresbysundið, breitt og mikið, eru einnig fjöll, en þau eru ekki risar, sízt á mælikvarða hinnar mikilúðlegu Jöklajarðar, og bera ekki hina hvítu kórónu. Þar er sá margnefndi Tóbín- höfði og töluvert, ógróið undirlendi. Innan við nýlenduþorpið flæmast Heima er bezt 161

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.