Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 23

Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 23
til sjávar. Daginn eftir var Grænlandið farið að fiskaí firðinum. Þegar Sörensen og skipverjar hans komu í heimsóknina var móðir mín ófrísk af sínu sjötta barni og eignaðist dreng sex eða sjö vikum síðar. Svo var það rétt fyrir jólin að pabbi var staddur á Hvammsranga og gekk inn í póst- húsið. Þar var honum fenginn stór pakki til móður minn- ar, Ólafar Ólafsdóttur, sem settur hafði verið í póst í Grimsby á Englandi. Þessi pakki frá Englandi var pabba mikil ráðgáta og ekki síður móður minni þegar heim kom. Hún réðst nú samt í að opna pakkann og kom þá í ljós miði með kveðju og jólaóskum frá Hinrik Sörensen. Nú skildu allir hvernig á þessu stóð. Sörensen hafði sann- arlega haft augun opin og tekið eftir því hvernig ástatt var fyrir móður minni þegar hann kom í heimsóknina um haustið. í pakkanum var alklæðnaður á barnið og eitthvað fleira sem hann hefur talið að kæmi henni vel. Skömmu síðar kom ein af grannkonum móður minnar í heimsókn. Náttúrlega sýndi mamma henni innihald pakk- ans sem konan dáðist mikið að. En þegar hún heyrði nafn gefandans varð hún verulega undrandi, og það svo að fyrst mátti hún varla mæla. En þegar hún hafði jafnað sig sagði hún af mikilli sannfær- ingu. „Þú lætur nú náttúrlega drenginn heita Hinrik Sör- ensen.” Ekki fór það nú samt svo að mamma færi að ráðum vinkonunnar um nafnið á drengnum. Hann var skírður Ingileifur Steinar og má segja að hann hafi fetað í fótspor þess er fötin sendi. Hugur hans hneigðist snemma til sjó- mennsku og sextán ára var hann kominn á vöruflutninga- skip sem sigldi milli landa. Síðar lærði hann stýrimanna- fræði og var eftir það ýmist stýrimaður eða skipstjóri á ís- lenskum fiskiskipum. Hann lést langt um aldur fram. SÍÐUSTU SAMFUNDIR Seint í september haustið 1938 var ég sendur einhverra erinda út að Almenningi, sem er svona tæpur klukkutíma gangur hvora leið. Hafði ég þar nokkuð langa viðdvöl, og því þar fékk ég afskaplega góðar viðtökur og svo var líka gaman að tala við gamla Teit, sem var einstakur persónu- leiki og aldeilis hafsjór af sögum. Degi var því nokkuð tekið að halla þegar ég hélt á stað heimleiðis. Mér var lit- ið vestur á flóann og sá að þar var Grænlandið á norður- leið og hjó mikið á öldunni, því nú var farið að hvessa á norðan og komin töluverð alda. Þegar ég kom heim að bænum sá ég að þar sem kallaður var Skiptavöllur var mikið af fiski. Var ég alveg undrandi og gat á engan hátt hugsað mér hvaðan allur þessi fiskur væri kominn. En þegar ég kom vesturfyrir bæinn fékk ég skýringuna. Þar var pabbi að búa sig til fiskaðgerðar, brýna hnífa og þess- háttar. Hann sagði mér að Grænlandið hefði komið upp undir landið fram af bænum og svo hefði sýnst sem þeir vildu hafa samband við heimamenn. Þeir Guðmundur Jónsson drifu sig þá fram að skipinu þó sjór væri úfinn. Þegar þeir nálguðust skipið sáu þeir að Sörensen stóð út við lunninguna og benti þeim að leggiast að skipinu. Ekki var auðvelt að hemja þar bátinn vegna sjógangs en þeir gátu þó aðeins rennt að. Um leið lét Sörensen háseta sína hella úr nokkrum körfum fullum af þorski niður í bátinn en benti piltunum svo að leggja frá.Ekki var staður né stund til viðræðna og sáu bændurnir það síðast til skip- stjórans að hann veifaði þeim og gekk síðan inn í stýris- húsið og beitti skipi sínu í ölduna norður flóann. Þetta hafði þá verið erindi hans að láta þá hafa fiskinn. Hefur líklega verið búinn að fylla skipið en illa kunnað við að henda því sem afgangs var. Nokkur dæmi vissi ég til þess að Sörinsen gaf mönnum sem komu um borð til hans þorsk þegar hann var að ljúka veiðiferð. Ýsan og skarkolinn voru þá miklu verðmætari fisktegundir á mörkuðunum í Englandi og ef þeir fengu mikinn afla í síðustu hölunum var þorskurinn látinn fara. Því miður veit ég lítið meira um skipstjórann Hinrik Sörensen en kemur fram í pistlunum hér að framan. Hann var frá Esbjerg í Danmörku og átti þar ijölskyldu sína og heimili. Hann gerði út fiskiskipið Grænland og stundaði á því dragnótaveiðar í Norðursjónum og við ísland. Afl- ann seldi hann aðallega í fiskihöfnunum á austurströnd Englands og eitthvað í heimahöfn. Þetta hef ég eftir fólki sem kynntist honum á þeim árum sem hann stundaði veiðarnar við ísland og talaði og skildi hans móður- mál.Sjálfur var ég ungur drengur þegar ég sá hann og skildi illa mál hans. Þó varð mér maðurinn ærið minnis- stæður og hefur hann og skipið hans fylgt mér í huganum ætíð síðan. Ég hef áður lýst útliti hans og búnaði. En þó hann væri ekki neinn tilhalds eða fríðleiksmaður bar per- sóna hans og hátterni þess augljós merki að þar fór eng- inn veifiskati. Þá bar öllum sem sáu saman um a rifnaður og umgengni væri til fyrirmyndar í skipi hans. Auk þess sem áður er getið var Sörensen eitthvað við veiðar á þess- um slóðum haustið sem hann kom að Ánastöðum og tvö haust þar á eftir (1937 ogl938) en eftir það man ég ekki eftir að Grænlandinu sæist bregða fyrir, enda hófst heim- styrjöldin haustið 1939 og ekki ólíklegt að eftir það hafi verið erfitt fyrir Dani að stunda veiðar við ísland. Sjálf- sagt hafa margir sem stunduðu sjó í Húnaflóa orðið fegn- ir þegar Grænlandið sást ekki lengur. En við krakkarnir söknuðum vinar í stað þegar það klauf ekki lengur ölduna á firðinum. Einhverjar lausafregnir bárust til okkar um að Græn- landið hefði fyrstu stríðsárin stundað veiðar við Austfirði en farist með allri áhöfn á siglingu til Englands. Ég hef ekki getað athugað hvort þetta er rétt. En sé svo, hafa Sörensen og menn hans, eins og svo margir aðrir sjó- menn, orðið fórnarlömb þessarar voðalegu styrjaldar. Skrifað ífebrúar 2002 Heima er bezt 167

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.