Heima er bezt - 01.04.2002, Qupperneq 34
Ff
T
J-AN-Jl S
Vtr)_ _
Eyjaheyskapurinn samkvæmt dagbók
Sunnudagurinn 3. ágúst:
Smíðaði þrjú alúminíumorf. Undirbjó
eyjaheysakpinn.
Mánud. 4. ágúst: Eyjaheyskapur hafinn.
Við Sigurgeir, Lúðvík, Páll og Jóhann
slógum í Hleiðólfsey. Fórum fram seinni
part dagsins.
Þriðjud.: Fluttum okkur yfir í Skarðs-
eyjar og slógum þar.
Miðvikud.: Rökuðum upp í galta í
Stóru-Skarðsey.
Fimmtud.: Ég skrapp í land með Sigur-
geir, en Þorsteinn kom til baka. Rakað upp
í Hleiðólfsey og slegið í Syðri-Skarðsey.
Föstud.: Slegið og rakað upp.
Laugard.: Allt rakað upp í Stóru-
Skarðsey og hálfri Syðri-Skarðsey. Kom-
um í land kl. níu um kvöldið.
Mánudaginn 11. ágúst: Farið fram í
eyjar. Þernuhólmi sleginn. Tjaldið flutt í
Grænsey og Sigurður Elíasson sóttur í
land.
Þriðjud.: Rakað upp í galta í Syðri-
Skarðsey og sleginn Ljósbleikshólmi.
Miðvikud.: Slegið í Grænsey og rakað upp
í Þernuhólma og Ljósbleikshólma.
Fimmtud.: Lokið við upprakstur í
Grænsey og komið heim um miðjan dag.
Framlögð 53 dagsverk.
Sunnudagur 17. ágúst: Unnið að undir-
búningi flutninganna.
Mánud.: Heyflutningar hófust kl. 5 síð-
degis. Flutningunum var svo hagað að við
Sigurgeir vorum með mótorbát Tómasar
og flutningabátinn Friðþjóf í drætti, en
Þorsteinn og Tómas voru með mótorbát og
flutningaskip frá Kaupfélagi Krókstjarðar.
Aðrir í heybindingu og flutningum voru
Lúðvík, Páll, Sigurður og Jakob. Úr Hleið-
ólfsey voru fluttar heim á Friðþjófi 39 sátur, en á hinu
skipinu voru fluttar 61 sáta úr Syðri-Skarðsey. Auk þess
bundum við allt sem eftir var í Syðri-Skarðsey. Við gist-
um í landi og þetta kvöld gerði stórrigningu með kalsa-
veðri.
Þriðjud.: Fluttum úr Syðri-Skarðsey 59 sátur sem voru
tilbúnar og í Stóru-Skarðsey bundum við 151 sátu og
fluttum heim. Alls fluttum við heim 210 sátur þennan
dag. Farið var fram í eyjar og sofið nokkra tíma í Stóru-
Skarðsey. Tveir haustkópar drepnir í Þernuhólma.
Miðvikud.: Bundum og fluttum 70 sátur úr Þernu-
hólma, 50 sátur úr Ljósbleikshólma og 62 úr Grænsey.
Alls voru bundnar og fluttar í land 482 sátur á þessum
þremur dögum. Vinna við heyband og flutninga samtals
19 dagsverk.
Reyndar var heyflutningum samt ekki lokið. Daginn
JS^TJd
0 ‘■^krnghóljnar
har^nr
<9*
9 o
® Tókak»Kólmi
StóraSoUnj £
---» O O
l'r^lingnhólmi «
LongoaVcr
©s* « *
^ BriOútmi Ql
OrmatnaVer
J^tó\Tý tmcfa/a.
■ 1 V* Á f .
^r^ranaflög tt
Mw UM
4^^VrtdU«j*i
$0'rugurqjj œrhólmi
Kort af Reykhólaeyjum. Strikað er undir nöfn þeirra eyja og lendingar-
staða sem minnst er á í greininni.
eftir á fimmtudegi fór Þorsteinn á flutningabátnum úr
Króksijarðarnesi að flytja heyfeng úr Miðhúsaeyjum fyrir
Jens Guðmundsson og Stefán Magnússon. Vélin í bát
hans bilaði og þá fórum við Sigurgeir á mótorbát okkar
og drógum flutningabátinn til lands í Hrafnanesi, en mót-
orbátinn inn í Króksíjarðarnes. Síðan fórum við út í Hús-
ey og sóttum þangað nautkálf og eina rollu sem höfðu
verið þar í fitubeit um sumarið.
Fimmtudaginn 22. ágúst var flutningabáturinn Frið-
þjófur dreginn á land á Miðhúsum og honum hvolft á
Skipatanganum. Þar var gengið vel vandlega frá honum
og þar lá hann síðan óhreyfður þar til sumarið 2001. En
þá var hann gefinn Þjóðminjasafni Islands og tekinn til
endurbyggingar. Verður þetta gamla og góða skip vænt-
anlega sýnisgripur á vegum safnsins um ókomin ár.
174 Heima er bezt